Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Page 15
Íþróttafélagið Gerpla hefur
flutt í nýtt og glæsilegt íþrótta-
hús sem Kópavogsbær hefur
byggt í Salahverfi en aðsetur
félagsins hefur á undanförnum
áratugum verið að Skemmuvegi
í Kópavogi. Hið nýja hús heitir
Versalir, og er íþróttahús Ger-
plu. Það er mikil breyting hjá
félaginu við það að fara úr iðn-
aðarhverfi í nýtt íbúðarhverfi. Á
nýjum stað er öll aðstaða félags-
ins eins og best verður á kosið
og sennilega ein besta æfingar-
aðstaða fyrir fimleika á öllum
Norðurlöndunum en íþróttasal-
ur hússins er sérhæfður fyrir
iðkun fimleika en salurinn allur
er rúmlega 2200 fermetrar. Þar
er ein besta fimleikaaðstaða á
Norðurlöndunum.
Kópavogsbær hefur stutt mjög
vel við bakið á félaginu en í haust
var staðfestur samningur milli
bæjarins og félagsins um að
Íþróttamiðstöðin að Versölum
verði íþróttahús Íþróttafélagsins
Gerplu. Rekstrarsamningur fé-
lagsins var staðfestur þann 24.
september sl.
20 - 30% fjölgun hjá
félaginu
Að sögn Jóns Finnbogasonar,
varafomanns Gerplu og formanns
fimleikadeildar, kom það
skemmtilega á óvart að rúmlega
20% fjölgun varð á iðkendum fé-
lagsins sem hófu æfingar nú í
haust samanborið við síðastliðið
ár en nú eru um 750 iðkendur
sem stunda fimleika hjá félaginu.
Þessu til viðbótar eru um 10% af
fjölda iðkenda á biðlista en unnið
er að því að koma öllum sem eru
á biðlista inn í hópa og því má bú-
ast við því að innan skamms
verði um 30% fleiri sem stunda
fimleika í Gerplu miðað við síð-
asta ár félagsins að Skemmuvegi.
Af 750 iðkendum hjá félaginu
eru um 250 strákar. Mikil fjölgun
hefur verið á undanförnum árum
hjá strákunum en á Haustmóti FSÍ
sem fór fram fyrr í mánuðinum
voru fleiri keppendur frá Gerpu
stákar en stúlkur. Er það líklega
einsdæmi fyrir fimleikafélag. Sýnir
það sterka stöðu piltanna hjá fé-
laginu en framhjá því verður ekki
litið að árangur þeirra hefur
einnig verið sérlega góður á und-
anförnum árum. Ber þar hæst frá-
bær árangur Rúnars Alexanders-
sonar sem m.a. skilaði honum í
úrslit á bogahesti á Ólympíuleik-
um í Aþenu. Einnig má nefna að
meistaraflokkur pilta hefur sigrað
á Bikarmóti FSÍ í frjálsum æfing-
um 10 ár í röð og er allt kapp lagt
á að halda þeirri sigurgöngu
áfram á næstu árum.
Sérstök áhersla á yngstu
iðkendur félagsins
Að sögn Jóns Finnbogasonar
var sérstaklega hugað að yngstu
iðkendum félagsins við kaup á
áhöldum í hið nýja húsnæði fé-
lagsins. Á undanförnum árum hef-
ur sú grein innan fimleika vaxið
mikið sem kennd er við hópfim-
leika þar sem keppt er í dansi,
trampólín- og dýnustökki. Í flest-
um tilvikum eru iðkendur í hóp-
fimleikum á aldrinum 12 til 25 ára.
Hópfimleikar hafa gert það að
verkum að iðkendur fimleika
stunda nú íþróttina lengur en
áður og eru bundnar miklar vonir
við þessa tegund fimleika á næstu
árum.
Glæsilegur árangur á
alþjóðlegum mótum
Í októbermánuði sl. fór hópur
iðkenda úr Gerplu á alþjóðlegt
móti sem fram fór í Svíþjóð
(Malarcup). Þar sigraði Kristjana
Sæunn Ólafsdóttir, Íslandsmeist-
ari síðustu tveggja ára, í sínum
aldursflokki þriðja árið í röð.
Róbert Kristmannsson sigraði
einnig í sínum aldursflokki. Auk
þess að ná góðum árangri í
fjölþraut þá sigraði Kristjana
Sæunn einnig í úrslitum á æfing-
um á slá og gólfi. Viktor Krist-
mannsson, margfaldur Íslands-
meistari, blandaði sér í toppbar-
áttuna í úrslitum á einstökum
áhöldum með því að sigra í æfing-
ar gólfi og tvíslá og tryggja sér 2.
sætið á bogahesti og 3. sætið á
svifrá. Það var ekki bara árangur
einstakra keppenda sem vakti
athygli því í liðakeppni þá gerðu
piltarnir Ólafur Garðar Gunnars-
son, Ingvar Jochumsson, Róbert
Kristmannsson og Viktor Krist-
mannsson sér lítið fyrir og
sigruðu með 130,5 stigum.
Stúlkurnar, Ingar Rós Gunnars-
dóttir, Harpa Dögg Steindórsdótt-
ir, Margrét Hulda Karlsdóttir og
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir voru
einnig stutt frá sigri með 90,7 stig,
sem færði þeim 2. sætið. Fréttir
sem þessar eru ekki óalgengar frá
iðkendum félagsins sem eru í dag
meðal besta fimleikafólks á
Norðurlöndunum.
NÓVEMBER 2005 15Kópavogsblaðið
HK á bæði baráttusöng
og stuðningsmannasöng
Mörg íþróttafélög, en alls ekki
öll, státa af eigin baráttusöng.
HK státar bæði af HK-Söngnum
sem óneitanlega líkist baráttu-
söng danska landsliðsins í
knattspyrnu. En það er svo sem
ekki leiðum að líkjast. Hann er
svona:
Við erum rauðir
Við erum hvítir
Við erum baráttumenn
Komum úr vogi
Kenndir við Kópa
Stöndum saman, HK-menn
HK-menn!!
En stuðningsmennirnir eiga
líka sinn baráttusöng sem þeir
kyrja stundum á áhorfendapöll-
unum, en kannski allt of sjald-
an.
Stuðningsmannasöngur-HK
Það skiptir miklu máli
að styrkja sína byggð
Og sýna í verki
óbilandi tryggð.
Við látum alla heyra
hvað í okkur býr
góður stuðningur
liðið áfram knýr
Við gerum ekkert með hálfum huga
Við vitum að ekkert má okkur buga.
Viðlag
Eins og sjá má
Við styðjum okkar lið
HK, við styðjum HK
Stöndum saman
Saman hönd í hönd
HK, HK.
Það skiptir miklu máli
að vera léttur í lund
og uppskera við munum
á sigurstund.
Aldrei mun deyja baráttulogi
okkar sem búum í Kópavogi.
Viðlag
Eins og sjá má
Við styðjum okkar lið
HK, við styðjum HK
Stöndum saman
Saman hönd í hönd
HK, HK.
Eins og sjá má ..........
Texti: Kári Waage
Lag: Pálmi J. Sigurhjartarson
Stuðningsmannaklúbbur HK
hefur verið stofnaður
Forsvarsmenn HK hafa stofnað
stuðningsmannaklúbb fyrir
knattspyrnu- og handknattleiks-
deild HK. Skráningar í klúbbinn
fara fram á heimasíðu HK,
www.hk.is og eru allir stuðnings-
menn HK hvattir til að skrá sig.
Félagsgjald er frjálst en er að lág-
marki 500 krónur á mánuði sem
skuldfærist af reikningi eða
greiðslukorti stuðningsmanns.
Allir stuðningsmenn fá HK-kort
hjá SPK sem gildir sem aðgöngu-
miði á alla heimaleiki meistara-
flokks karla og kvenna í knatt-
spyrnu, handknattleik og blaki.
Markmið klúbbsins er að styðja
við bakið á HK, efla félagsandann
og vera vettvangur þar sem fé-
lagsmenn liðsins hittast og skipt-
ast á skoðunum. Stefnt er á að
halda úri öflugri starfsemi fyrir
stuðningsmenn, t.d. með útgáfu
fréttabréfs, halda úti heimasíðu,
standa fyrir opnu húsi, umræðu-
fundum og fleiru.
HK-kortið er þrjú kort í einu;
debetkort félagsskírteini og að-
göngumiði á heimaleiki HK. Ekk-
ert árgjald er af HK-kortinu og
það stendur öllum HK-ingum til
boða. Í hvert skipti sem að greitt
er með HK-kortinu rennur ákveð-
inn hluti fjárhæðarinnar til HK.
HK-kort eins og það sem fæst hjá Sparisjóði Kópavogs.
Félagið státar af mörgu af besta
fimleikafólki Norðurlandanna
Framtíð Gerplu í Versölum björt:
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Íslandmeistari í fjölþraut.
Margrét Hulda Karlsdóttir. Ein margra góðra fimleikakvenna í Gerplu
Hress piltur á æfingu hjá Gerplu