Fréttablaðið - 18.04.2016, Blaðsíða 6
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
Korputorg
112 Reykjavík
Sími 551 5600
utilegumadurinn.is
FERÐAVAGNAR
KAUPLEIGA
GRÆNIR BÍLAR
Opið mán-fös kl. 10-18 - lau-sun kl. 12-16
Verð frá 4.190.000 kr.Verð frá 4.450.000 kr.
Verkalýðsfélagið Hlíf
Reykjavíkurvegi 64 - 220 Hafnarfjörður - Sími 510 0800
Fax 510 0809 - Netfang hlif@hlif.is
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar verður haldinn mánudaginn 18.
apríl 2016. kl. 18:00, í Skútunni, Hólshrauni 3. Hafnarfirði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning í kjörstjórn.
3. Önnur mál.
Léttur kvöldverður.
Stjórn Vlf. Hlífar.
MenntaMál Samvinna mennta-
skóla á Norðurlandi verður ekki að
veruleika eins og ráð var fyrir gert
á næsta skólaári. Ástæða þess er að
breyting á skóladagatali Mennta-
skólans á Akureyri náðist ekki í
gegn í menntamálaráðuneytinu.
Jón Már Héðinsson, skólameistari
MA, segir leitt að fjármagn hafi ekki
fengist í verkefnið.
„Það var ekki búið að útvega það
fjármagn sem þarf til að breyta
skóladagatalinu. Í góðri trú fór ég
áfram með þetta mál innan skólans
því ráðuneytið og ráðherra sögðu
mér að þeir myndu tryggja það fjár-
magn sem þyrfti til að breyta þessu.
Það að færa skóladagatalið kostar
fjármagn. Þegar ég fékk síðan að
vita að ekki fengist nægilegt fjár-
magn ákváðum við að slá þessu á
frest um eitt ár,“ segir Jón Már.
„Það er leitt að þetta skuli fara
svona en þetta er ekkert slegið
út af borðinu. Við frestum þessu
bara um eitt ár.“
Skólaárið byrjar mun seinna í
Menntaskólanum á Akureyri
en í öðrum skólum og
lýkur skólaárinu ekki
fyrr en við útskrift
stúdenta þann 17.
júní ár hvert. Til
að geta náð fram
samvinnu allra
menntaskóla á
N o r ð u r l a n d i
þurfti að breyta
s k ó l a d a g a t a l i
MA. „Það þarf að
kalla kennara inn úr fríi
snemma, svo það þarf að
taka mið af kjarasamning-
um og reglum um orlof,“
segir Jón Már.
Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra
réð Svanfríði Jónas-
dóttur til að stýra
vinnu um mögu-
lega sameiningu eða samvinnu
menntaskóla á landinu. Aukin
samvinna milli skóla var sam-
þykkt af ráðuneytinu til að spara
fjármagn.
Sigríður Huld Jónsdóttir, skóla-
meistari Verkmenntaskólans
á Akureyri, segir fjárhagsstöðu
síns skóla grafalvarlega. „Í byrjun
febrúar var okkur kunngjört að við
fengjum ekki rekstrarframlag fyrr
en skuld við ríkissjóð yrði greidd
að fullu. Við höfum fengið þau
svör að við verðum að borga ríkis-
sjóði til baka uppsafnaðan halla
skólans áður en við getum greitt
þá reikninga sem hér safnast upp
vegna daglegs reksturs skólans,“
segir Sigríður Huld.
sveinn@frettabladid.is
Samvinnu MA og
VMA slegið á frest
Fé vantar frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu til þess að samvinna MA
og VMA geti orðið. VMA fær ekki framlög nema borga uppsafnaðan halla.
Menntaskólinn á Akureyri. Skólaárið þar byrjar mun seinna en í öðrum
skólum og lýkur því ekki fyrr en við útskrift 17. júní.
Þegar ég fékk
síðan að vita
að ekki fengist
nægilegt fjár-
magn ákváðum
við að slá þessu
á frest um eitt
ár.
Jón Már Héðinsson
skólameistari MA
StjórnMál Sigurður Ingi Jóhanns-
son forsætisráðherra segir að verð-
tryggingin verði ekki afnumin á
þessu þingi.
Tæpar tvær vikur eru liðnar frá
því að ríkisstjórn Sigurðar Inga
Jóhannssonar tók til starfa. Stjórn-
arandstaðan vill að þingmála-
listi verði lagður fram svo ljóst sé
hvaða mál hún ætli að klára á þessu
þingi. Sigurður Ingi segir listann
enn ekki liggja fyrir. Stefnan sé
tekin á að reyna að klára fjölmörg
mál á þeim átján þingfundar-
dögum sem eftir eru á þessu þingi.
Hann segir húsnæðismálin vera í
forgangi, mál sem tengjast afnámi
hafta, auk annarra mála.
Sigurður Ingi ræddi málin á
Bylgjunni í gær. Þar kom fram að
hann er ekki tilbúinn að verða við
kröfum stjórnarandstöðunnar um
að dagsetja kosningar í haust. „Það
er auðvitað eins og við höfum áður
sagt í samspili við það hvernig þessi
mál ganga fram og ég vænti þess að
við getum átt áframhaldandi gott
samstarf um það meðal annars við
stjórnarandstöðuna.“ – lvp
Verðtrygging
ekki afnumin
Sigurður Ingi hefur verið forsætisráð-
herra í nokkra daga. FréttAblAðIð/ErnIr
Á þessari neðanjarðarlestarstöð í Pjonjang, höfuðborg hinnar einangruðu Norður-Kóreu, þarf fólk að fara ansi djúpt ofan í jörðina til að komast á
milli borgarhluta. Lestarteinarnir eru á 110 metra dýpi. FréttAblAðIð/EPA
Í undirdjúpum Norður-Kóreu
1 8 . a p r í l 2 0 1 6 M á n U D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
B
-7
B
7
4
1
9
1
B
-7
A
3
8
1
9
1
B
-7
8
F
C
1
9
1
B
-7
7
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K