Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 1

Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 1
* Afgreiðslan á ísafjarðarflugvelli, sími 3400 Afgreiðslan Aðalstræti 24, sími 3410 FLUGFÉLAC LOFTLEIBIR ISLANDS Stórkostlegt úrval. Verslunin ísafiröi símF3507 17. júní hátíðarhöldin fóru vel fram í hinu fegursta veðri 17. júnf hátíðarhöldin á ísafirði fóru fram í hinu feg- ursta veðri. Sólskin var á um daginn og hlýtt. f þjóðhátíðarnefnd sat að þessu sinni stjórn Skfða- ráðs ísafjarðar. Var formað- ur stjórnar S.R.Í. Birgir Valdimarsson jafnframt for- maður nefndarinnar. Dag- skrá hátíðarhaldanna var með svipuðu sniði og undanfarin tvö ár. Hátíðin hófst kl. 13,oo á Sjúkrahússtúninu, með því að Óli M. Lúðvíksson ávarp- aði samkomugesti. Kynnti hann dagskrá og setti hátíð- ina. Þá söng Sunnukórinn undir stjórn Kjartans Sigur- jónssonar. Fjallkonan flutti Ijóð Jó- hannesar úr Kötlum, Land míns föður. Þvínæst var Þjóðsöngurinn sunginn. Hátíðarræðuna flutti Eirík- ur Sigurðsson. Að þessum atriðum lokn- um fór fram ijúdósýning, sem félagar úr íþróttafélag- inu Reyni önnuðust. Síðan var-víðavangshlaup í aldurs- flokkum frá átta ára og yngri og upp í 14 ára. Fariö var og í ýmsa leiki, en á milli atriða sýndu táningar dansa undir stjórn Þóru Jónu Jónatans- dóttur. Kl. 17,oo fór svo fram knattspyrnuleikur á Torfnes- velli. Áttust þar við lið bæjar- Framhald á 4. síðu Fjallkonan — Marfa Marfusdóttlr. Sæmdur æðsta heiðurs- merki íslensku þjóðarinnar Hinn 17. júní sl. sæmdi forseti fslands, Einar Guðfinnsson út- gerðar- og athafnarmann í Bol- ungarvík æðsta heiðursmerki íslensku þjóðarinnar. Forsetinn veitti Einaristjörnu stórriddarakross hinnar ís- lensku Fálkaorðu fyrir störf hans að sjávarútvegsmálum um langt árabil. Framhald á 9. síðu Einar Guðfinnsson. Opnar nýja verslun M. Bernharðsson hf. Skipasmíðastöð hefur opn- að verslun í sambandi við lager fyrirtækisins í húsa- kynnum þess í Neðsta- kaupstað. Fyrirtækið rak áður Verslun Jóns A. Þórólfs- sonar, og verslaði með byggingarvörur, verkfæri, járnvöru ýmiskonar, vinnu- fatnað og fleira. Þessi starfsemi hefur nú verið sameinuð lager fyrir- tækisins og er til húsa þar sem áður var fyrsta tré- smíðaverkstæði skipa- smíðastöðvarinnar. Verslunin er opin frá kl. 7.3o til kl. 18.15 virka daga. Verslunarstjóri er Ásgeir S. Sigurðsson. Vestfjarða- mót í skák Fyrirhugað er að halda Vestfjarðamót í skák dag- ana 16.17. og 18.septem- ber í Héraðsskólanum á Núpi. Keppt verður í þrem- ur flokkum eftir Monrad- kerfi, þ.e. meistaraflokki, unglingaflokki og barna- flokki. í barnaflokki tefla 12 ára og yngri, í unglinga- flokki 13 - 19 ára og í meistaraflokki 20 ára og eldri. Sigurvegari í meist- araflokki hlýtur sæmdar- heitið skákmeistari Vest- fjarða og öðlast rétt til að tefla í áskorendaflokki á íslandsmótinu í skák. Ætlunin er að Vest- fjarðamótið í haust verði úrtökumót til að velja þátt- takendur í sveit Vestfjarða, sem keppa mun í haust og vetur í fyrstu deild f skák. En eins og mörgum mun kunnugt sigruðu Vestfirð- ingar i annari deild í fyrra og tefla því í fyrstu deild nú. Bílslys í Önundar- firði Sl. laugardag varð bíl- slys í Önundarfirði. Fimm- mannafélksbíll fór þar út af veginum. I' honum voru sjö ungmenni, sem öll voru flutt á sjúkrahúsið á ísa- firðl. Bifreiðin R-46300 var á leið inn Hvilftarströnd um kl. 9,45 um morguninn, er bifreiðarstjórinn missti vald á henni, og lenti hún út af veginum. Fór bifreiðin fjórar veltur og stöðvaðist neðan við veginn á þakinu. Læknir frá Flateyri kom mjög fljótlega á staðinn. Lögreglan á Isafirði flutti fólkið á Fjórðungssjúkra- húsið á ísafirði. Fengu sex að fara þaðan strax að lok- inni rannsókn, en einn far- þeginn, Margrét Hafsteins- dóttir var lögð inn á sjúkra- húsið, eitthvað slösuð. Ökumaður bifreiðarinn- ar var látinn sæta blóð- rannsókn.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.