Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 2

Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 2
2 (jT^ týuUfawaÁiá útgefandi og ábyrgðarmaður: Árni Sigurðsson Prentun: Prentstofan fsrún hf., Isafirði Viðreisn Vestfjarða: Samgöngur Á sama hátt og nálægðin við gjöful fiskimið hefur verið Vestfjörðum lyfti- stöng, hafa erfiðar samgöngur verið dragbítur á eðlilega uppbyggingu byggðarlaga á Vestfjörðum. Samgönguleysið á vetrum hefur í fyrsta lagi komið í veg fyrir að Vestfirð- ingar geti notið þeirrar þjónustu, sem telja verður eðlilega og sjálfsagða í nútímaþjóðfélagi, og í öðru lagi hefur samgönguleysið stuðlað að einhæfu at- vinnulífi. Innan embættismannakerfisins virðist ríkjandi sú skoðun, að þéttbýlisstað- ir með íbúafjölda, sem er mikið undir 1000 manns, séu of fámennir til að standa undir ýmis konar opinberri þjón- ustu, enda er íbúum þessara staða yfir- leitt ætlað að sækja slíka þjónustu (læknisþjónustu, skóla o.fl.) til annara byggðarlaga. Líklega er þumalputtareglum sem þessum ekki ætlað annað hlutverk, en að stuðla að jöfnuði í þjóðfélaginu og góðri nýtingu opinbers fjármagns. Þessi regla gæti hugsanlega þjónað slíku hlut- verkí á Suðurlandi, Reykjanesi og Vest- urlandi, eð t.d. í Danmörku, en á Vest- fjörðum er hún ekki til annars en óþurft- ar og skaða. Það hefur e.t.v. lánast þolanlega í stöku tilfellum að þýða dönsk lög á íslenzku, eða beita erlend- um aðferðum við íslenzkar aðstæður, en það hefur þó oftar gefist illa. Reglur sem þessar verða að víkja fyrir raunhæfum tillögum, sem taka fullt tillit til Vestfirzkra aðstæðna. Stjórnvöld verða að skilja, að annað hvort verður að sjá Vestfirðingum fyrir fullkomnu samgöngukerfi, eða taka fullt tillit til samgönguleysins við lausn allra Vestfirzkra vandamála. Vestfirzka Fréttablaðið getur ekki fall- ist á að það sé undir ónákvæmum þum- alputtareglum komið, hvort staðir eins og Þingeyri, Suðureyri og Flateyri geti séð sínu fólki fyrir fullnægjandi þjón- ustu. Því hefur verið hreyft hér í blaðinu áður, að bætt vöruflutningaþjónusta milli byggðarlaga stuðli að auknum vaxt- armöguleikum fyrirtækja á Vestfjörðum og opni nýja leið í átt til fjölbreyttara atvinnulífs. Skipaútgerð ríkisins mun nú hafa í hyggju að breyta vörudreifingar fyrir- komulagi sínu á þann veg, að viðkomu- staðir skipanna á Vestfjörðum verði að- eins þrír, Patreksfjörður, Þingeyri og ísafjörður, en vörum til annara staða verði síðan dreift frá þessum stöðum með bifreiðum. Þetta fyrirkomulag er hugsað að gildi til haustsins. Vestfirzka Fréttablaðið hefur áður bent á að æskilegt sé að rannsaka gaumgæfilega möguleika til reksturs ferjuskipa á Vestfjörðum, er gegni því hlutverki að annast vörudreifingu (m.a. fyrir Ríkisskip) út frá ísafirði og Patreks- firði, auk þess að taka við hlutverki rri/s Fagraness og m/s Baldurs. Það er hugsanlegt að hægt sé að leysa vöruflutningaþörf okkar Vestfirð- inga að nokkru leyti með bifreiðum, en aðalatriðið hlýtur að vera að koma á öruggu flutningakerfi, sem skilar vörun- um á áfangastað eftir auglýstri áætlun. Flugsamgöngur hafa verið í örri fram- þróun hér á Vestfjörðum, sem annars staðar og virðist að með auknu sam- starfi flugfélaganna ætti að reynast unnt að samræma flugáætlanir þeirra þannig að t.d. Súgfirðingar geti með millilend- ingu á ísafirði komist daglega flug- leiðis til og frá Reykjavík, jafnt á vetri sem sumri. Sjúkraflugþjónusta er starf- semi sem Vestfirðingar hafa slegið skjaldborg um, enda verður sjúkraflug ávalt mjög þýðingarmikill þáttur í heil- birgðisþjónustu á Vestfjörðum. Það er skoðun Vestfirzka Fréttablaðs- ins að taka verði aukið tillit tilóviðráðan- legs samgönguvanda, þegar ákvarðanir eru teknar um uppbyggingu ýmis konar opinberrar þjónustu á Vestfjörðum, en jafnframt verði lög áherzla á að koma á vöruflutningaþjónustu með skipum og bifreiðum, þannig að atvinnurekstri á Vestfjörðum séu skapaðir auknir mögu- leikar, og að auka samræmingu í áætl- unarflugi og bæta aðstöðu til farþega- og neyðarflugs. Vel hlaðið veisluborð frá Hótel Mánakaffi. Sendum um alla Vestfirði. Gerum föst verðtilboð. Mánagötu 1, ísafirði Slmi 3777

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.