Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 11

Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 11
tsiéuawwm — ,,Það hefur aldrei staðið á töflunni” Framhald af 12. síðu samkvæmt upphaflegri tíma- áætlun. Nýlegt dæmi um þaö, hvernig slíkir og þvílíkir at- burðir gerast: ,,Það er mið- vikudagur. Flugáætlun hljóðar þannig; brottför úr Reykjavík kl. 14,3o komu- tími á ísafjörð kl. 15,15.Brott- för frá ísafirði kl. 15,45 komutími á Þingeyri kl. 16,10. Brottför frá Þingeyri kl. 16,40 komutími til Reykja- víkur kl. 17,3o. Haglega áætlað og nákvæmlega til þess að flugfarþegar geti skipulagt ferðir sínar og mið- að við ákveðnar tímasetn- ingar. Nú við erum í Reykjavík. Við komum í gær.við höfum ýmsum erindum að sinna, en vegna þess hve vel við höf- um skipulagt tímann, hefur okkur tekist að Ijúka þeim farsællega og ætlum til ísa- fjarðar í dag. Við höfum mikið meðferðis. Við höfum verið í kaupstaðarferð. Far- angur okkar þarf nauðsyn- lega að komast vestur með sömu vél, af ýmsum ástæð- um. Til öryggis, að fenginni reynslu, hringjum við á af- greiðslu Flugfélags íslandsá Reykjavíkurflugvelli kl. 13.30. Við fáum svarið ,,það er breyting á brottfarartíma til ísafjarðar. Farþegar eiga að mæta kl. 16.00 og vélin fer kl. 16,3o. “. Aftur hringjum við á af- greiðsluna kl. 15,30. Þá er okkur sagt að enn breytist brottfarartími, og nú eigi að mæta kl. 17,oo og fara kl. 17.30. Þetta finnst okkur heldur með ólíkindum, og hringjum því aftur skömmu seinna. Fáum við þá sömu svör. Kl. 16,3o höfum við svo enn samband við afgreiðslu F.í. Þá fáum við þær ágætu upplýsingar, að til ísafjarðar- flugs eigi farþegar að mæta kl. 16,30, en vélin fari vestur kl. 17,oo. Við bregðum nú svo skjótt við, sem hin ágæta leigubílaþjónusta höfuð- borgarinnar leyfir og erum við mætt á Reykjavíkurflug- velli fimm mínútur fyrir brott- farartíma þann, er síðast var upp gefinn. Drífum við nú farangur okkar inn að af- greiðsluborði og viljum fá hann veginn og fluttan um borð í flugvélina. Þá erum við látin vita það, að ekki tjói að mæta hér upp með tugl kílóa af farangri, fimm mínútum fyrirbrottför. Sæti okkar getum við að vísu fengið, en farangurinn verði skilinn eftir. Er helst á afgreiðslumanni að skilja, að slík framkoma sem okkar að þessu sinni, sé langt fyrir neðan það, sem Flugfélag (slands telursæmandi far- þegum sínum og viðskipta- vinum. Reynum við að malda í móinn og teljum að af- greiðsla F.l. eigi sök á þess- um mætingartíma okkar. Verða þarna nokkur orða- skipti og er skemmst frá því að segja að afgreiðslumaður sá er um ræðir, telur okkur hina verstu ósannindamenn. Að við höfum fengið þær upplýsingar hjá afgreiðslu F.Í., að brottfarartími til ísa- fjarðar þennan dag sé kl. 17,3o, telur hann fráleitt. ,,Það hefur aldrei staðið á töflunni", segir sá góði maður. Þar við situr. Við komumst til ísafjarðar kl. 18,oo, far- angurslaus og með skerta æru. En á afgreiðslu Flug- félags Islands í Reykjavík eru menn hneykslaðir á ósvífn- inni í ,,sveitavarginum.“ Saga þessi, sem því miður er sönn, er ekki rakin hér til þess að ófrægja Flugfélag íslands, eð afgreiðslumenn þess. Hún er sögð til þess að almenningur og forráða- menn F.l. geti gert sér Ijóst hversu bagalegt það er, þegar áætlun, sem annars er ágæt, er ekki miklu meira virt en pappírinn, sem hún er prentuð á, og starfsþjálfun og framkoma afgreiðslufólks þessa mikilvæga þjónustu- fyrirtækis er í lágmarki, svo sem áðurnefnd dæmi sýna. 11 Fundur um félagsheimili Framhald af 12. síöu fróðlegt, enda Guðmundur gagnkunnugur byggingu og rekstri slíkrar stofnunar. Fram kom í ræðu Guð- mundar að á landinu starfa nú í kringum 160 félags- heimili, en í millum þeirra er lítil samvinna, og áhugi virð- ist lítill hjá forráðamönnum þeirra um frekara samstarf. I ræðu sinni talaði Guð- mundur nokkuð um bygg- ingu félagsheimila og fyrir- greiðslu hinsopinbera til þeirra. Þá ræddi hann um rekstur félagsheimila. Telur hann að grundvöllur að skynsamlegum rekstri þeirra sé sá að nýta þau sem best til: a) Almennrar félagsstarf- semi. b) Sérstkrar starfsemi s.s. klúbbfunda í leik og í starfi. c) Iðkan íþrótta og heilsuræktar. d) Almenns skemmtanahalds. Guömundur lét í Ijós áhuga á því að félagsheimil- in á Vestfjörðum tækju upp viðræður um samvinnu á ýmsum sviðum. Á fundinum urðu fjörugar umræður um ýmis mál félagsheimilanna, svo sem kvótaskiptingu á samkomu- haldi, viðskipti við farand- hljómsveitir, söluskatt af húsaleigu og ráðstöfun skemmtanaskatts. Samþykkt var að fela Guð- mundi H. Ingólfssyni, Birni Gíslasyni og Braga Helga- syni, að ræða sameiginlega um hvort samstaða geti náðst um samræmda gjald- skrá. Niðurstaða þeirra var svofelld ályktunartillaga, sem var samþykkt samhljóða: „Sameiginlegur fundur stjórna og forstöðumanna félagsheimila á Vestfjörðum, haldinn í Hnífsdal 31 /5 1977, samþykkir eftirfarandi: Fundurinn telur að nánara samstarf félagsheimila á Vestfjörðum sé æskilegt og mjög nauðsynlegt. Fundurinn telur samstarf vegna rekstrar félagsheimil- anna æskilegt I gjaldskrár- málum, verði aðgöngumiða á almenna dansleiki, launum dyravatöa og annars starfs- fólks, leigu á kvikmynd- um.aðgönguverði á kvik- myndasýningar, að finna út reglur um samkomubann og að samræma aldurstakmörk. Fundurinn telur að vegna breytilegra aöstæðna nú, sé rétt að hússtjórnir félags- heimilanna fjalli um sam- ræmingu um starfs- þætti heimilanna, áður en ákvarðanir eru teknar. Væntanlegri bráðabirgða- stjórn samtaka félagsheimila á Vestfjörðum er falið að semja drög að samræmdum vinnubrögðum og leggja fyrir stjórnir heimilanna." Þá voru eftirtaldir aðilar kosnir í undirbúningsstjórn fyrir stofnun sambands félagsheimila á Vestfjörðum: Guðmundur H. Ingólfsson, Hnífsdal, Bragi Helgason, Bolungarvík, Kristján H. Þor- leifsson, Súgandafirði, Gísli Þórir Viktorsson, Patreks- firði, Stella Jónsdóttir.Flat- eyri, Pétur Sigurðsson, l'sa- firði, 1. varamaður. — Skora á konur Framhald af 12. síðu brjósti, bæði kvenna og karla. Sigurlaug talaði einnig um hið alvarlega vandamál, sem áfengis- og fíkniefnaneysla eru orðin með þjóðinni. Konur tóku ræðu Sigur- laugar mjög vel. Varð fjör- ug umræða um efni henn- ar og fleiri mál. Nokkuð voru skiptar skoðanir um jafnréttisráð og vinnu- brögð þess. Einstaka kona lýsti furðu sinni með lagasetn- ingu Alþingis um tilhögun auglýsinga, varðandi ráðn- ingu fólks f störf. Á fundinum las Ingi- björg Sigmundsdóttir upp kvæðið Móðir mín, eftir Einar Benediktsson. Að sfðustu komu fram tilmæli til allra kvenna, í hverri stétt og stöðu, að vera á verði gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu og vinna ötullega gegn þessu geigvænlega böli. Kvenfélagið Hlff boðaði til fundarins. (Fréttatilkynning) Til sölu Býlið Sólvellir við Flateyri er til sölu. Býlinu fylgir fbúðar- hús með háu risi, gólfflötur 70 ferm. hver hæð. Tveggja hektara tún, afgirt. Fjárhús fyrir 20-30 kindur.Þurrkhjallurog geymsluskúr, áfast við húsið. Garðlönd til kartöfluræktar, ásamt rababaragarði. Þá fylgir einnig gott jarðhús til kart- öflugeymslu. Einnig fylgir býlinu vísir að trjágarði. Býiið og það sem því fylgir, selst í þvf ástandi, sem það er nú. Endanleg afhending getur þó ekki farið fram fyrr en í september næstkomandi. Nánari upplýsingar gefur Hjörleifur Guðmundsson Sími 7610 Flateyri, 24. júní 1977. Enn um búfé í görðum Mikið hefur verið rætt um lausagöngu búfjár í ísafjarðar- kaupstað í sumar, og hér er innlegg í þá umræðu í bundnu máli. Vísunni var skotið inn á ritstjórn blaðsins af manni, sem ekki vill láta nafns síns getið. Garörollan mér leggur lið í lífsbjargar viöleitninni hún breytir í hrútspunga, blóömör og svið blómaræktinni minni. Höfum hafiö framleiðslu á PANEL-mið stöövarofnum Stuttur afgreiðslufrestur. Teiknum einnig miöstöðvarkerfi. Greiðsluskilmálar. Leitið tilboöa, hagstætt verö. Ofnasmiðja Vestfjarða hf. REYNIÐ Úlfsá, ísafirði sími 94-3903 VIÐSKIPTIN.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.