Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 12

Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 12
Auglýsing um verslunartíma: VERSLUNIN EROPIN mánudaga til föstudaga frá kl. 9 til 18 í júlí og ágúst er lokað á laugardögum. BÓKAVERSLUN JÓNASAR TÓMASSONAR Hafnarstræti 2 og 4, sími 3123 ísfirðingar óheppnir í tveim síðustu leikjum Búningakista f.B.f. liðsins. Annarar deildar lið Í.B.I. hefur nú fengið sex stig i íslandsmótinu í knatt- spyrnu, og er nú i sæti í deildinni. Sl. laugardag keppti liðið við Selfoss á Torfnesvelli. Lauk þeim leik með jafntefli, einu marki gegn einu. Leik Í.B.f. og Þróttar, Reykjavík, sem fram fór á Laugardagsvelli 18. júní sl. lauk með sigri Þrótt- ar, sem skoraði þrjú mörk gegn tveimur mörkum ísfirð- inga. Framhald á 10. síðu „Það hefur aldrei staðið á töflunni Í6 Það tekur aðeins 45 mínútur að fljúga milli Reykjavíkur og (safjarðar. Það þýðir að þeir sem nýta tíma sinn vel, geta farið frá ísafirði með morgunvél, haft samkvæmt áætlun Flugfélags íslands fáeinar klukkustundir til sinna erinda í Reykjavík og komið aftur hingað með kvöldvél. En því miður koma tíðar fyrirvaralitlar breytingar á flugáætlun í veg fyrir að þessu sé að treysta. Hefur það þráfaldlega komið fyrir að brottfarartíma áætlunarvéla hefur verið breytt. án þess að veðurfarslegar ástæður eða önnur flugskilyrði hafi valdið því. Er þetta því bagalegra, sem vestfirðingar eru allra landsmanna háðastir flugsamgöngum. Ekkert er við því að segja, þótt flugáætfun bregðist vegna slæmra flugskilyrða, en þegar rækilega kynntur áætlunartími er færður til fyrirvaralítið, vegna þess er mönnum virðist duttlungar einir eða tilviljanir, þá er þar komið að farþegum finnst nóg um. Við bætist svo á tíðum, að fólk fær rangar upplýsingar hjá starfsmönn- um F.f. um brottfarar-og komutíma áætlunarvéla. Slíks eru dæmi, að farþegar hafa fengið tilkynningu um seinkun á áætluðum brott- farartíma úr Reykjavík og þeir beðnir að hafa samband við afgreiðslu F.í. á tilteknum tíma síðar sama dag, að þeir hafi þá fengið að vita að flogið hafi verið til ísafjarðar Framhaldá 11.síðu Skora á konurað standa gegn áfengis og fíkni- efnaneyslu ísfirskar konur minntust kvenréttindadagsins 19. júní með fjölsóttum fundi í hinum vistlegu húsakynn- um Hótel Eddu. Aðalræðu dagsins flutti frú Sigurlaug Bjarnadóttir, alþingismaður. Rakti hún þróun kvenréttindamála allt frá upphafi og til vorra daga. Hún minntist þeirra er staðíð hafa í fylkingar- Framhald á 11. síðu Philinc- Kæliskapar l I 11II|Jö. Litasjonvorp . ... Ryksugur PhÍIÍpS: Kaffivélar POLLINIM HF Handþeytarar i hllipS: Hljómflutningstæki Isafirdi Sími3792 . ... Þvottavélar Phllips: Eldavélar Ferðamiðstöðin hf. Fundur um málefni félagsheimila á Vestfjörðum Þriðjudaginn 31. maí sl. efndi Fjórðungssamband Vest- firðinga tilfundar með stjórnum og forstöðumönnum félags- heimila á Vestfjörðum. Hófst fundurinn í Félagsheimilinu i Hnífsdal kl. 13,oo. Fundinn sóttu, auk formanns og starfs- manna Fjórðungssambandsins, fulltrúar frá flestum félags- heimilum í fjórðungnum. Formaður stjórnar Fjórð- ungssambands Vestfirðinga, Ólafur Þórðarson, bauð þátttakendur velkomna og gerði þeim grein fyrirtilgangi fundarins. Guðmundur H.lngólfsson, flutti framsöguerindi ummál- efni félagsheimilanna á Vest- fjörðum. Var erindi Guð- mundar yfirgripsmikið og Framhald á 11. síðu Vinna að skýrslu og tillögugerð um íslenskan skipasmíðaiðnað Sl. laugardag voru á ferð hér á ísafirði og í Bolungarvík þrír menn á vegum Iðnþróunarstofnunar fslands. Erindi þeirra var að skoða og afla sér upplýsinga um skipasmíða- stöð og vélsmiðjur hér. Þeir Sigurður Ingvarsson, rekstrarstjóri hjá Kochums skipasmíðastöðvunum sænsku, Ingimar Hansson, rekstrarverkfræðingur og Sveinn Guðmundsson, við- skiptafræðingur, fulltrúi Landssambands iðnaðar- manna vinna nú fyrir Iðn- þróunarstofnun íslands, að gerö skýrslu um ástand dráttarbrauta, vélsmiðja og annarra iðnaðarfyrirtækja er tengjast skipasmiðaiðnaði á landinu. Er ætlunin að þeir geri tillögur um umbætur og framtíðaruppbyggingu í skipasmíðaiðnaði og hugsanlegt tengsl þeirra aðila er að honum vinna. Þeir komu hingað vestur sl. laugardag og skoðuðu M. Bernharðssonarskipasmíða- stöð hf., Vélsmiðjuna Þór hf. og Vélsmiðju Bolungarvíkur hf. Áttu þeir viðræður við for- svarsmenn þessarra fyrir- tækja. Þá sátu þeir hádegis- verðarfund á Hótel Eddu með bæjarráðsmönnum á ísafirði, bæjarstjóra og bæjarritara, ásamt Jó- hanni T. Bjarnasyni, fram- kvæmdastjóra Fjórðungs- sambands Vestfirðinga. Frá hádegisverðarfundinum. 1 Skrifstofan á ísafirði er að Hafnarstræti 2, 2. hæð. Hún er opin virka daga kl.16-18. Sími 4011. Heimasími 3100

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.