Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 3

Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 3
Grímur Jónsson: Við teljum .. .jóhann skrifar ,,ORO í EYRA“ og kemur víöa viö og segir margt skemmtilegt og athyglisvert. ,,Viö búum í fíflaþjóðfélagi" segir ....jó- hann og hefur heilmikiö fyrir sér í því. Fáránleikinn blasir svo oft viö okkur á ýmsum sviðum aö engan skal undra þótt ....jóhann geti ekki orða bundist. í síöasta tölublaöi VF hundskammar ....jóhann bæjarbúa fyrir óþrifnaö og illa umgengni, skammar bæjarbúa löggæzlumenn og yfirvöld, en krækir af mikilli lagni framhjá höfuöorsökum meinsins og drepur ekki einu oröi á þá óvéfengan- legu staðreynd aö á meöan 40 til 50 hross og nokkur hundruð sorpétandi húsa- porta ráfandi kvikinda ráfa um bæinn, gjöreyöileggja allt, sem heitir gróður. Hvort sem um er aö ræöa, gras, tré eöa skrautjurtir, verður ísa- fjaröarbær aldrei annaö en dæmigert sóöapláss, sem sennilega á sér engan líka hér á landi. Þaö er móögun við Is- lensku sauökindina aö nefna sorpætur þessar sauðfé, þær eiga lítiö sem ekkert skylt viö sauökindina, en hafa í kynslóðaraðir lifaö á skít og sorpi.trjáplöntum og skrautjurtum, sem engin venjuleg sauðkind mundi leggja sér til munns. Kák bæjaryfirvalda viö girðingar er aðeins til þess aðhlæjaaö og leysir engan vanda þar sem engar venjulegar sauð- fjárgirðingar fá haldið kvik- indum þessum. Það útaf fyrir sig að giröing sú er fyrir var hefur nú verið rifin niöur og enn ókomin önnur í hennar staó sýnir svo ekki verður umdeilt að bæjaryfirvöld taka málió alls ekki alvarlega og gera sér Ijóst aö giróingarvesenið er sýndarmenska ein sem kemur aö litlu eðaengu gagni, enda sorpæturnar þegar búnar aó eyðileggja allt sem hægt er aö eyði- leggja í bænum og verður ekki úr bætt á þessu ári. Engar venjulegar girðingar halda kvikindum þessum og hafa sumir bæjarbúar tekiö til þess ráös að „víggiróa" lóöir sínar meö portum og stórgripagiröingum, sem eru síst til þess fallnar að bæta heildarsvip bæjarins. Hvort þaö er helst til ráöa aó virkja lögreglulið bæjarins til rollureksturs og hrossa- smölunar tel ég hæpiö, enda hugsanlegt aö þeir hafi stundum öörum hnöppum að hneppa, t.d. yfir helgar þegar annar fénaöur gengur lausum hala, rænandi og eyðileggjandi eins og dæmin sanna. Það er ekki óalgeng sjón aö morgni dags aö sjá sorpi og óþverra dreift um götur bæjarins eftir hrossastóðið, sérstaklega er þetta áber- andi á sunnudagsmorgnum, þegar umferö byrjar seint og kyrrö hefur hvílt yfir bænum fram undir hádegi. Hvaöa augum skyldu aökomnir feröamenn líta þessi ósköp? Þaó er ómaklegt aó skamma bæjarbúa, þeir eru einfaldlega búnir aö gef- ast upp. Þaö bendir allt til þess að viö komum til með að búa við sama ástand á komandi árum sem undan- farna áratugi. Að telja stjörnurnar. Þegar ég heyrði sagt frá unga manninum sem hér hefur veriö á vegum ein- hverrar æruveröugrar vís- indastofnunar og ekur um á Trabant bifreið og telur sel- ina við ísafjarðardjúp datt mér í hug sagan af geitahriö- inum og ráðherrunum, en hún var eitthvað á þá leiö aó kóngur krafðist þess af ráð- gjöfum sínum aö þeir segöu sér nákvæmlega hversu margar stjörnur væru á himinhvolfinu. Ráógjafarnir gáfust upp einn eftir annan og kváöust ekki treysta sér til þess að leysa verkefnið. Geitahiröir kóngs haföi frétt af þessu og fékk viðtal við kóngsa og bauóst til þess aö segja honum nákvæmlega hversu margar stjörnurnar væru á himinhvolfinu. Skrif- aöi hann síðan á blaö 20 eöa 30 stafa tölu og fékk kóngi Þegar kóngur spuröi hvernig hann gæti verið viss um aö þessi tala væri rétt svaraði geitahriðirinn. ,,Ég taldi þær, yðar hátign, ef þér eruð í minnsta vafa um aö talan sé rétt, skuluð þér bara telja sjálfur og sjá til." Þaó fylgdi sögunni aö kóngur rak ráð- gjafana alla meó tölu og réöi geitahriðirinn í þeirra staó Hvernig skyldu selir vera taldir úr Trabant? Er hugsan- legt að til sé einhver patent- aöferö sem erfitt er aö koma auga á, eöa er þetta bara lygasaga? - Þaö þykir mér sennilegast. Að telja sorpætur, hross og mink. Til þess að komast aö hávísindalegri niðurstöðu um mál eða málefni er mjög nauðsynlegt aö telja allt milli himins og jaröar af mikilli nákvæmni. Einu sinni var ég við hafrannsóknir í tvö sum- ur og haföi þá tækifæri til þess aö fylgjast meö störfum vísindamanna Allt var taliö, sem hægt var að telja. Átan var talin og flokkuð, sigldar mílur og klukkustundir, tald- ar og skráóar af mikilli ná- kvæmni og meira aö segja síldin, sem aldrei veiddist var talin og áætluó á svipaðan hátt og rækjan í ísafjaróar- djúpi, sem samkvæmt vís- indalegum niöurstöðum ætti aö vera uppurin fyrir löngu. Það er tillaga mín aö viö sýnum nú og sönnum að viö erum ekki síöur vísindalega sinnuö hér en annarstaóar og beitum okkur fyrir alls- herjartalningu á víótæku sviói. Það mætti t.d. byrja á því aó telja sorpæturnar og hrossin og minkinn, sem kvaö vera á víð og dreif um allan bæinn og svo mætti lögskipa nefnd, sem sæi um aö telja miljónirnar, sem viö nú eyöum í innréttingu efstu hæóar kaupfélagsbygging- arinnar og veróur eftir því sem mér skilst afhent K.í. til eignar og umráóa kvitt og frítt að loknu verki. Ég nefni hér aðeins fátt, en vafalaust má finna ef vel er leitað fleiri verðug verk- efni á þessu sviði. Algeng sjón, stóðlð ð belt á sjúkrahússtúninu. .3 Til sölu FIAT127 árgerð 1973 ekinn 58 þús. km. Upplýsingar gefur GÍSLI GUNNLAUGSSON í síma 3205 Til sölu HILLMAN, árgerð 1974 HERMANN BJÖRNSSON Engjavegi 32 Til sölu Volkswagen 1200 árgerð 1970 Upplýsingar í síma 4040 eftir kl. 18,oo | Fasteignir TIL SÖLU ÍSAFJÖRÐUR. ->£ Hrannargata 10, tvær 3ja I -yí herbergja íbúöir, lausar 1. I júlí nk. -Í2 Aðalstræti 26a, rúmgóö 4- 5 herbergja íbúö á 2. og 3 -5 hæð. Fjarðarstræti 38, Lítil 4ra herb. íbúö á efstu hæð. Laus. Silfurgata 11,2. og 3. hæö >j suöurenda ásamt kjallara og bílskúr. HNlFSDALUR. Bakkavegur 3, steinsteypt >j parhús á tveim hæðum, á X neðri hæö er eldhús, bað X tvær samliggjandi stofur, X svefnherbergi, þvottahús' X og búr, í risi tvö svefnher- X bergi. Bílskúr. Stór, vel hirt X leigulóð. X Stekkjargata, 100 fm. jarö- X hæö í steinhúsi, hentugt X fyrir smáiðnaö og lager. X BOLUNGARVlK Traðarstígur 1, Nýlegt ein- býlishús. FLATEYRI. Ránargata 7, tvílyft ein- býlishús. Hagstætt verö og • greiðslukjör ef samió verö- Áf ur fljótt. Ránargata 10, Lítiö ein-íí* býlishús, selst ódýrt. Arnar G. Hin- riksson hdl. Aðalstræti 13, sími 3214 Hún er komin aftur OSTER hrærivélin Meðal hinna morgu kosta hennar er ennþá hið lága verð. mu straumur Silfurgötu 5 sími 3321 f Auglýst er eftir starfsmanni Umsækjendur veiti upplýsingar um menntun og fyrri störf. Launakjör samkv. samningum Verslunar- mannafél. ísafjarðar. Umsóknir berist skrifstofu sjóðsins, Alþýðu- húsinu, ísafirði, eigi síðar en 15. júlí n.k. LÍFEYRISSJÓÐUR VESTFIRÐINGA

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.