Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 4

Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 4
4 17. jum hatiðarhöldin Framhald af 1. síðu stjórnar Isafjarðar og lið skipað íþróttaforystumönn- um í bænum. Var þetta bráð- skemmtilegur leikur á að horfa. Var hann tvísýnn mjög í fyrri hálfleik, en þá tókst hvorugu iiðinu að skora mark. En þegar leið á seinni hálfleik, þá komu í Ijós yfir- burðir ijDróttaforystumanna, hvað snertir skipulagsgáfu og úthald. Hafði lið þeirra sigur í leiknum, skoraði’ tvö mörk gegn engu marki bæjarstjórnarmanna. Mörkin skoraði Þorvaldur Guð- mundsson. Þá var keppt í víðavangs- hlaupi fullorðinna. Var hlaupið frá íþróttavellinum, upp á Seljalandsveg, niður Hafnarstræti, út Pólgötu, upp Fjaróarstræti og Eyrar- götu, inn Hlíðarveg, upp Urðarveg, inn Engjaveg og þaðan niður á Torfnesvöll Hið harðsnúna lið bæjarstjórnar. THORNYCROFT BATAVELAR! í STÆRÐUNUM 13,5-164 BHP. Formaður þjóðhátíðarnefndar átti drjúgan þátt í sigri liðs fþróttaforystunnar. aftur. Sigurvegari í hlaupinu varð Þröstur Jóhannesson,. Um kvöldið var svo úti- dansleikur á leiksvæðinu við Barnaskólann. Var hann vel sóttur og fór prýðilega fram.sem og aðrir þættir há- tíðarhaldanna. Mikil framför er að því að á dagskrá þjóðhátíðardags- ins virðist nú niður lagt það miður smekklega atriði, sem tíðum var boðið upp á fyrir nokkrum árum. Þá var sam- komugestum gjarnan bent á að líta upp í loftið, er að skemmtiatriðum kom, og skyggnast eftir flugvél, sem venjulega kom löngu eftir áætlaðan tíma, með skemmtikrafta ,,að sunnan". Síðan íþróttahreyfingin í bænum tók að sér forsjá 17. júní hátíðarhaldanna, hefur verið lögð áhersla á að fá fólk úr bænum til þess að annast skemmtiatriði, og hefur það gefið góða raun. Júdó Getum afgreitt LEYLAND THORNYCROFT-BÁTAVÉLAR með stuttum fyrirvara — Með eða ón skrúfubúnaðar — Hagstœtt verð. Leggjum óherslu ú góða varahlutaþjónustu. Leitið upplýsinga.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.