Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Blaðsíða 8
8
Ó£.,fÍfly\
tJletfaMcukó
Hinn 12. og 13. júní 1976 gekkst Fjórðungssamband Vestfirðinga fyrir
ráðstefnu um málefni aldraðra í Hótel Flókalundi. Niðurstaðan af þeirri
ráðstefnu var rædd á stjórnarfundi í Fjórðungssambandinu. í framhaldi af
þeirri umræðu var hinn 13. október 1976 skrifað bréf til sveitarstjórna, þar
sem spurzt var fyrir um áhuga þeirra fyrir að haldinn yrði fundur, þar sem
reynt væri að kanna, hvort samstarf geti tekizt um undirbúning, skipulag
og hönnun dvalar-, dagvistunar- og þjónustustofnana fyrir aldraða. Að
fengnum jákvæðum svörum allmargra sveitarstjórna, var hinn 1. júní sl.
haldinn
Fundur um dvalar-
aðstöðu fyrir aldraða
Ólafur Þóröarson, for-
maður stjórnar Fjórðungs-
sambandsins, setti fundinn
og stjórnaöi honum. Fundar-
ritari var Jóhann T. Bjarna-
son.
Ásgeir Erling Gunnars-
son.viðskiptafræðingur,
starfsmaður Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga, flutti
framsöguerindi um málefni
aldraðra. I' upphafi máls síns
vitnaði hann í erindi er Jó-
hannes Ingibjartsson flutti
fyrir ári síðan á ráðstefnu í
Flókalundi. Þar sagði Jó-
hannes um markmið þjón-
ustu við aldraða:
„Markmið þjónustunnar
við aldraða hlýtur í megin
dráttum að mótast af eftirfar-
andi:
a) að búa þannig að þeim,
að sem minnst röskun
verði á högum þeirra.
b) að viðhalda eftir því sem
hægt er, möguleikum
þeirra til sjálfstæðs og
óháðs lífernis.
c) að veita þeim nauðsyn-
lega aðstoð til vinnu og
endurþjálfunar, svo þeir
geti nýtt orku sína svo
lengi, sem kraftar leyfa,
þeim sjálfum og sam-
félaginu til heilla.
d) að tryggja að þeir, sem
þurfa aðstoðar við eða
þrotnir eru að kröftum,
njóti .viðunandi aðstoðar
og aðhlynningar.
Með þessi sjónarmið að
markmiði er augljóst, að
þjónusta við aldraða þarf að
vera fjölþætt, og að ná jafnt
til búsetu utan þjónustu-
stofnunarinnar sem á slíkri
stofnun, ella getur hún ekki
mætt mismunandi þörfum
einstaklinganna. Hver ein-
stakur þáttur fullnægir
aðeins þörfum takmarkaðs
hóps. Því er nauðsynlegt,
þegar í upphafi, að reyna að
móta það meginkerfi, sem
stefnt skal að, þó í áföngum
sé."
Þá sagði Ásgeir Erling:
,,Ég tel að með þessum
orðum sínum, hafi Jóhannes
sett fram á mjög skilmerki-
legan hátt, að hverju skuli
stefnt þessum málum.
Framundan er uppbygg-
ing alhliða þjónustukerfis,
sem ætlað er að mæta sem
allra flestum sérþörfum
hinna öldruðu. Íþvísam--
bandi er afar þýðingarmikið,
að sveitarfélögin á Vestfjörð-
um hafi með sér samráð eða
samvinnu um þessi mái og á
það ekki sízt við um undir-
búning fyrstu ákvarðanatöku
eða frumhönnun þjónustu-
kerfisins.
Með þeim hætti ætti að
takast að byggja upp sam-
hæft þjónustukerfi, sem
tryggði góða nýtingu fjár-
magns, rekstrarhagkvæmni
og fullnægjandi þjónustu.
Ég er þeirrar skoðunar að
slíku kerfi verði með skjót-
ustum hætti komið á, ef
sveitarfélögin á Vestfjörðum
sameinast um að láta gera
heildarúttekt á þessum mál-
um, sem leiddi til áætlunar
um uppbyggingu þessarar
þjónustu.
Á vegum Fjórðungssam-
sambandsins er nú verið að
gera könnun á högum aldr-
aðra Bolvíkinga, sem mun
væntanlega verða bæjar-
stjórn Bolungarvíkur til hlið-
sjónar um ákvarðanatöku.
Önnur sveitarfélög hafa
hins vegar ekki lagt drög að
neinni áætlunargerð í þessu
sambandi, svo mér sé kunn-
ugt um.
Það hlýtur þó að teljast
grundvallaratriði, að unnið
sé að uppbyggingu eins
margbrotins þjónustukerfis
og hér er um að ræða,
á skipulegan hátt, og er hér
með skorað á þá fulltrúa
sveitarfélaganna, sem hér
eru saman komnir, að gefa
þessum orðum mínum
gaum, jafnframt sem ég býð
þeim alla þá aðstoð, sem
mér er unnt að veita í þessu
sambandi."
Ásgeir ræddi síðan um
rekstrargrundvöll þjónust-
unnar og kostnaðarliði, s.s.
endurþjálfun, heilsugæslu,
tómstundastarf og félags-
starf. Taldi hann mesta ó-
vissu ríkja um hvernig
standa mætti undir kostnaði
við heimilisþjónustu og
endurþjálfun, en þessa tvo
þætti jafnframt vera þá, sem
einna brýnast væri að koma
á, til þess að draga úr þörf
fyrir vistun og gera bið eftir
fullnægjandi aðstöðu þolan-
legri.jafnframt því, sem
stuðla yrði að því, að hinir
öldruðu geti sem lengst not-
ið sjálfstæðis og óháös líf-
ernis.
■ ' -
Gefið hurðinni
nýtt útlit...
Með SATÚRN nýju klæöningunni okkar
formum við og klæðum allskonar munstur:
Á inni- og útihurðir, gamlar og nýjar,
skápahurðir, eldhúsinnréttingar, húsgögn
og plötur til klæðningar á veggi.
Þér getið valið úr ýmsum tegundum
antikmunstra og „fulninga".
Kynnið yður möguleikana.
SATÚRN er klæðning í mismunandi
viðaráferð og lit — níðsterk.
Seljum nýjar SATÚRN klæddar hurðir
til afgreiðslu með stuttum fyrirvara.
u runas
EGILSTÖÐIJM
Þér getið valið
úr yfir 50 tegundum af rammalistum.
Stuttur afgreiðslufrestur á hverskonar innrömmun.
VÖNDUÐ VINNA — SÝNISHORN Á STAÐNUM.
Iramma- 1
/gerð/ i arðar/
I ísafj
Rammagerð ísafjarðar
Sími 3213 — ísafirði
- >
Bíll til sölu.
Tilboð óskast í bifreiðina í-1717,
sem er Volkswagen sendibíll árg. 1973.
Ekinn 46 þúsund km.
HUSGAGNAVERZLUN ÍSAFJARÐAR
Sími3328.
“t-------------------------------------
Bestu kveðjur og þakkir sendum við
öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug vegna fráfalls og jarðarfarar sonar
okkar og bróóur,
Gunnars Hermannssonar, skipstjóra.
Salóme R. Gunnarsdóttir
Hermann Hermannsson
og systkinin
>
TILSÖLU
FORD BRONCO sport, árgerð 1974
8 cyl., ekinn 36 þús. km. og
FIAT SPECIAL 125, árgerð 1972.
Upplýsingar hjá
EINARI ÞORSTEINSSYNI,
síma 7210, Bolungarvík