Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Qupperneq 5
5
Orðið er laust
Lesendadálkur
Húrra húrra lengi lifi
„Mætti
Sérfræðingum bæjarstjórnar
í gróðurmálum, væntanlega
þeim, er telja það skerðingu á
persónufrelsi að búfénaður fái
ekki að ganga laus í bænum
mun nú Ijóst að Sjúkrahústúnið
og aðrir gróður blettir eru að
verða ofbeittir. Því hefir verið
rokið til og dreift úr moldar-
haugum sunnan nýju sjúkra-
húss byggingarinnar, Náttúru-
verndarsamtök eða land-
græöslan mun hafa lofað fræi
og jafnvel áburði. Nú þarf því
að græða þarna upp og bæta
úr beitilandi í bænum. Segi \/QKQ
bæjarbúar svo að bæjarstjórn w
okkar sé ekki framtakssöm og
hugmyndarík. Eitthvað verður
að gera, ekki léttir á ágangi
búfjár, það má jafnvel telja í
hundruðum á götum bæjarins
og húsalóðum á hverjum
morgni. Það er ekki ónýtt að
eiga góðra tengdir og framtaks-
sama menn. Svo eru til menn
sem bregða bæjarfulltrúum um
kjarkleysi, þvílík ósvinna!!!
Þorpari.
Fá sig ekki fullsadda
af forarvilpu
Á vorin, þegar snjóa leysir,
eru malarvegir oft sem forar-
vilpa. Sömuleiðis í rigningar-
tíð, sumar og haust. í
þurrkatíð eru þeir þó yfirleitt
geðslegri umferðar.Þá eru
þeir hvað lengst án þess að
vera óþolandi holóttir, og þá
er venjulega hægt að aka þá
án þess að aurslettur dynji á
fótgangandi og á ökutækj-
um.
Undanfarnar vikur hefur
staðið hér þurrkatíð.og
malarvegir og götur hér í
bænum og í nágrenni hans,
hafa yfirleitt verið sæmileg
yfirferöar. Þó eru þar á
undantekningar, sem kenna
má sóðaskap og tillitsleysi
fólks, sem býr við sumar
þessar götur.
Seljalandsvegur er venju-
lega, þrátt fyrir þurrkatíð
þessa dagana, eins og
versta forarvilpa yfirferðar.
Veldur því sá undarlegi siður
sumra þeirra ervið hann
búa, að láta sírenna úr
vatnsslöngum á götuna
framundan húsumsínum..
Sömuleiðis er Urðarvegur
undirlagður þennan ósið.
Rennur venjulega vatn dag-
langt í lækjum niður Urðar-
veg og Bæjarbrekku.
Láta þeir einstaklingar,
sem að þessu merkilega
framtaki standa, sér greini-
lega í léttu rúmi liggja, þótt
þeir valdi umtalsverðum
skemmdum ágötunum með
athæfi sínu, auk þess hvim-
leiða sóðaskapar, er af
þessu stafar.
Maður hefur oft heyrt tal-
að um, að ákveðinni dýra-
tegund líði best í forarvilpu,
en fyrir hinn almenna vegfar-
anda á Isafirði, tel ég best að
vera laus við allt „svínarí" af
mannavöldum. Nóg er forar-
leðjan samt í votviðratíð
Vegfarandi.
Leðurhandboltar — Leðurfótboltar.
Allskonar aðrir boltar, stórir og smáir.
SANDLEIKFÖNG — ÚTILEIKFÖNG.
Þríhjól — Reiðhjól m/hjálparhjólum.
Munið að reiðhjól og allir varahlutir
fást jafnan hjá okkur.
RONSON KVEIKJARAR OG GAS.
Neisti hf. ísafirði, sími 3416
snyrtilegra”
Það vakti athygli bæjarbúa
17. júní s.l. að nokkur grasvöxt-
ur var innan girðingar umhverf-
is sjúkrahúsiö, er notið hafði
vaxtar í vernd góðrar girðingar.
Ekki hafði verið hirt um að slá
svæðið fyrir hátíðarhöldin svo
það mætti vera snyrtilegra. Það
mun ekki að undra. Mikið mun
að gera hjá forystufólki sjúkra-
hússmála, sjúkrahúsið ,,dag-
lega yfirfullt af sjúklingum",
form. stjórnar stofnunarinnar
hefir ekki tíma dögum saman til
að taka á móti gjöf til stofnunar-
innar. Er þá nokkuð tiltökumál
aö slíkir smámunir eins og að
snyrta svo lítið umhverfis húsið
sé látið afskiptalaust.
Einn þeirra er ann starfi S.í.
„Ekki hægt að láta
rollur éta plöntur”
Vegna hugleiðinga ,,Borg-
ara“, um hvers vegna Garð-
yrkjufélagið var ekki með á
umræddum lista þ.e. um
hreinsun og snyrtingu
bæjarins, vil ég að komi
fram, að ekkert samband
var haft við stjórn félagsins,
aö því er ég bezt veit, og
hafði ég ekki hugmynd um
að þetta stæði til. En ég er
sammála „Borgara" að félag
okkar hefði átt að vera þarna
með. Þetta táknar alls ekki
uppgjöf félagsmanna, síður
en svo. Við höfum t.d. átt
margar viðræður við bæjar-
stjóra og aðra bæjarráðs-
menn út af búfénaði í bæn-
um, einnig sent áskoranir,
sem sjá má síðasta tölublaði
Vestfirska íréttablaðsins.
En ef við sjáum fram á aö
það dugir ekki að tala, þá
neyðumst við til að grípa til
sterkari aðgerða, það er
nefnilega ekki hægt að
láta rollur éta hér plöntur á
hverju ári fyrir fleiri hundruð
þúsundir króna, ja, dýrt er á
þeim kjötið. En viö skulum
vona allra vegna, að girð-
ingu fari að Ijúka, og að hún
haldi rollum og hestum réttu
megin, þ.e. fyrir utan bæjar-
landið
Með þökk fyrir birtinguna.
Ásthildur Þórðardóttir, form.
Garðyrkjufélagsísafjarðar.
Eru gang-
stéttir
fyrir gáma?
Bæjarbúi einn kom að
máli við blaðið og spurði þá
m.a. hvort gangstéttir í bæn-
um væru fremur ætlaðar
„Gámurn" en gangandi
fólki, en „Gárnur" hefði al-
gjörlega lokað gangstéttinni
í sjálfu Aðalstræti, framan
við gamla barnaskólann, nú í
nokkrar vikur. Hann talaði
ennfremur um að unglingar
á vélknúnum reiðhjólum virt-
ust telja sig hafa allan rétt á
gangstéttum til aksturs, svo
ekki væri nú talað umreiö-
hjólin sem ekki eru vélknúin.
Fyrirspurn bæjarbúa er
hér með komið á framfæri
við lögreglu- og bæjaryfir-
völd á ísafirði.