Vestfirska fréttablaðið - 30.06.1977, Side 6
Hvers vegna ferðast
íslendingar til útlanda?
Rætt við Friðjón Sæmundsson hjá Ferðamiðstöðinni
Þótt ekki séu tölur við hendina, þá er það eigi að síður
staðreynd að tugþúsundir íslendinga ferðast á hverju ári til
sólarlanda. Sumar fjöldskyldur fara fleiri en eina ferð til
útlanda á hverju ári. Eru það þó ekki tómir efnamenn sem
ferðast, ferðirnar eru almenningseign.
Nú stendur yfir mesti annatíminn hjá ferðaskrifstofunum,
en það eru einmitt þær, sem gert hafa ferðalögin til útlanda
svo ódýr, að svo að segja hver einasti vinnufær maður getur
ferðast til útlanda. Við hittum að máli Friðjón Sæmundsson,
hjá ferðamiðstöðinni Reykjavík og spurðum hann um ferða-
mál. Hann hafði þetta að segja:
Hótel Selomar.
Um þessar mundir er aðal
annatíminn hjá ferðaskrif-
stofunum. Nær daglega fara
flugvélar með ferðafólk til
sólarlanda, og annað,
sem áhuga vekur, og ferða-
menn streyma til Islands frá
öðrum löndum.
Að vísu má segja sem svo,
að ferðalög á vetrum séu
einnig að aukast mikið, en
þá er hægt að dvelja í sól og
sumaryl, þótt skammdegi sé
á íslandi.
Hversvegna ferðast
íslendingar svona mikið?
- Ég er alls ekki viss um að
íslendingar ferðist neitt
meira en aðrar þjóðir gera,
t.d. Norðurlandaþjóðirnar,
og er þá átt við sólarlanda-
ferðir.Mjög mikið er um
ferðalög frá Norðurlöndum,
Bretlandi, Frakklandi og
Þýskalandi til sólarlanda.
Við hér á landi höfum þó
líklega verið ofurlítið seinni
til en þessar þjóðir og veldur
þar fjarlægðin að sjálfsögðu
mestu.
Samt hefur tekist að gera
utanlandsferðir mjög ódýrar,
miðað við aðstæður, og það
hefur tekist með góðu skipu-
lagi og stórum ferðahópum,
sem fylla flugvélarnar.
- Hvað varðar íslendinga
sérstaklega, hvers vegna
þeir ferðast? Það er örðug
spurning. Mér kemur helst í
hug það sem ástralski skóla-
pilturinn sagði um saltslétt-
urnar og eyðimörkina í
Ástralíu, að lífsskilyrðin væru
svo örðug, að íbúarnir yrðu
að búa annarsstaðar.
Við búum í köldu landi og
þótt það hafi marga kosti, þá
er veðursældinni ekki fyrir
að fara, a.m.k. ekki á Suður-
landi, þar sem rignt getur allt
sumarið.
Menn hafa því gott af því
að koma til landa, þar sem
veðursæld ríkir, sól og blíða
dag eftir dag, og ekki síður
að koma í nýtt umhverfi og
nema þar nýjan tón. Menn
koma yfirleitt endurnærðir til
baka.
- Er ferðamiðstöðin ekki í
hópi yngri fyrirtækja í þess-
ari starfsgrein?
- Ef rætt er um hópferðir til
útlanda og fyrirtæki, sem
skipuleggja þær og gangast
fyrir þeim, er þetta tiltölulega
ung starfsgrein. Þeir sem
stóðu að stofnun Ferðamið-
stöðvarinnar hf. voru menn
með mikla reynslu í feröa-
Benidorm, aðalgatan og hluti af
lögum, sólarlandsferðum
sem öðrum, og var því byggt
á reynslu, þegar fyrirtækið
var stofnað.
Það sem gerði gæfumun-
inn í starfi Ferðamiðstöðvar-
innar var þessi
reynsla.ásamt því að nú var
boðið upp á nýja staði,
Costa Blanca, eða öllu
heldur Benidorm, sem virðist
eiga sérlega vel við íslend-
VIÐLEGUBÚNAÐUR
TJÖLD með og án himins, verð frá 16.750 tii
60.800, tjaldhimnar á 3ja og Smanna tjöld. —
SVEFNPOKAR með ullar og diolen stoppi verð frá
6.550 til 9.140, — VINDSÆNGUR OG TJALD-
DÝNUR verð frá 3.410 til 4.700 — PRIMUS GAS-
VÖRUR fyrir eldun, Ijós og hita.
KÆLIKASSAR stórir og litiir verð frá 1.900 til 4.225
— „PICNIC“ FÖTUR OG TÖSKUR 4ra og 6 manna
verð frá 5.540 til 8.060 — BAKPOKAR 6 gerðir verð
frá 1.930 til 17.480 6 garð- OG SÓLSTÓLAR í mjög
fjölbreyttu úrvali — Hinar heimsfrægu A B U veíði-
vörur í miklu úrvali.
BÓKAVERSLUN JÓNASAR TÓMASSONAR
sportvörudeild sími 3123 ísafirði.