Vestfirska fréttablaðið - 13.04.1978, Blaðsíða 1
Afgreiðslan á ísafjarðarflugvelli, Sími 3400
Afgreiðslan Aðalstræti 24, sími 3410
FLUCFÉLAC
/SLAMDS
LOFTLEIDIfí
Verslunin
□ Rifflaðar flauelsbuxur
□ Denirn buxur
□ Bolir - Blússur
□ Vesti - Bindi
□ Léttir stuttjakkar
□ Canvas buxur
Isafirði sími 3507
Um síðustu helgi sendi Bæjarstjórn Bol-
ungarvíkur frá sér eftirfarandi
Ályktun um
samgöngumál
Samgöngur á sjó.
Ljóst er, samgöngur við
núverandi aðstæður að
vetrarlagi eru á þann veg
að einvörðungu verður að
treysta á vöruflutninga á
sjó yfir háveturinn til
hafna á Vestfjörðum.
Bæjarstjórn Bolungar-
víkur fagnar því þeirri við-
leitni forstjóra Skipaút-
gerðar Ríkisins að endur-
skoða og endurskipuleggja
ferðir Skipaútgerðarinnar
með það í huga að auka
tíðni ferða og fá fram hag-
kvæmni í rekstri fyrirtækis-
ins. Þess verði þó gætt við
enn frekari endurskoðun
að þjónustan við hinn
smærri byggðarlög skerðist
ekki frá þvi sem áður var.
Samgöngur á landi
Norður-svæði Vest-
fjarða, þar sem býr um
helmingur Vestfirðinga er
ekki í tengslum við aðal-
vegakerfi landsins um 4-6
mánaða skeið. Undanfarn-
ir 2-3 vetur hafa verið
fremur snjóléttir. Ljóst er
að með frekari uppbygg-
ingu vega og aukinni
tæknivæðingu og stórvirk-
ari snjómoksturstækjum en
áður þekktust, er hægt að
lengja aksturstíma sam-
gangna á landi verulega
frá því sem nú er.
Nú er til dæmis akfært
um allt Isafjarðardjúp.
Eini farartálminn á akst-
ursleið Norðursvæðisins
við Reykjavík er Þorska-
fjarðarheiði sem er um 20
km. á milli brúna.
Það er álit Bæjarstjórnar
Bolungarvíkur að ekki
verði lengur við unað né
hjá komist að ákveða vega-
stæði og tengingu Djúp-
vegar við aðalvegakerfi
Framhald á 14. síðu
Vestfirskir
línusjómenn
mótmæla
verðákvörðun
,,Viö undirritaöir sjó-
menn á Vestfjörðum
mótmælum harölega
síöustu verðákvörðun
Verölagsráös sjávarút-
vegsins á steinbít. Þar
sem við teljum aö for-
sendur fyrir veröá-
kvöröun þessari séu
ekki réttar, skorum viö
á ríkisvald og verö-
lagsráð aö hlutast til
um, aö nýtingarkönn-
un á steinbít í vinnslu
fari fram hér á Vest-
fjöröum, á vegum
Rannsóknarstofnunar
Fiskiönaöarins og
Þjóöhagsstofnunar á
þessari vertíð.
Við viljum benda á,
aö í 2 - 2Vi mánuö á
hverri vetrarvertíð línu-
báta á Vestfjöröum
fiskast nær eingöngu
steinbítur.
Framhald á 14. SÍðu
Þau sóttu Andrésar Andar-leikana. Hluti ísfirsku og bolvíksku
þátttakendanna. S|á bls. 13.
Miklar hafnarbætur
í Bolungarvík í sumar
Nú er hafin vinna við hafn-
arbætur í Bolungarvík, sem
miða að því að bæta aðstöðu
til loðnuiöndunar og útskip-
unar afurða frá Síldarverk-
smiðjunni í Bolungarvík.
Dæluskipið Hákur vinnur nú
við dýpkun f höfninni við svo-
nefndan Grundagarð og í
innri höfninni. Grettir, dýpk-
unarskipið, mun svo koma
síðar og Ijúka verkinu. Ætlun-
in er að ramma niður fimmtíu
metra langt stálþil við
Grundagarð i sumar. Verður
það löndunar og viðlegupláss
fyrir loðnuskip.
Framhald á 3. síðu