Vestfirska fréttablaðið - 13.04.1978, Page 12
Suðureyri
12
ÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIU
Byggja dagvistunarheimili
fyrir sextíu börn
Nýkomiö
Gerö fjárhagsáætl-
unar fyrir Suöureyrar-
hrepp er nú lokið.
Helstu verkefni, sem á-
ætlað er að vinna aö á
þessu ári er aö Ijúka
vinnu viö lagnir fyrir
hitaæituna, Ijúka
byggingu átta leiguí-
búöa, sem hafin var á
síðasta ári, steypa göt-
ur, byggja viö barna-
skólann og hefja bygg-
ingu dagvistunarheim-
ilis fyrir börn.
Kristján Pálsson, sveit-
arstjóri, sagði í viðtali við
blaðið, að lagningu dreifi-
kerfis fyrir hitaveitu í bæn-
um væri nú mestu lokið.
Aðeins á eftir að leggja í
götur efst í bænum, til að
ná til nokkurra húsa þar. í
sumar verður settur upp
300 tonna miðlunargeymir
fyrir heitt vatn, en hann
var keyptur frá Fiskimjöl
hf. á ísafirði sl. sumar.
Kristján sagði að fyrir-
hugað væri að steypa 430
lengdarmetra af götum í
sumar, eða um 3000 fer-
metra. Er það álíka mikið
og steypt var á síðasta ári.
Þetta er unnið algerlega
með tækjum hreppsins, en
ákveóinn aðili fenginn til
að vinna verkið.
Lítilsháttar var unnið
við grunn viðbyggingar
Barnaskóla Suðureyrar sl.
haust, en um síðustu mán-
aðamót var boðin út vinna
við að gera bygginguna
fokhelda, fullbúna að ut-
an, með frágenginni lóð.
Hér er um að ræða tvær
handavinnukennslustofur
og eina almenna kennslu-
stofu. Tilboð verða opnuð
um næstu mánaðamót.
Fyrirhugað er að hefja á
Suðureyri byggingu dag-
vistunarheimilis fyrir börn
á þessu ári. Það verður 240
ferm. timburhús, sem á að
geta vistað um sextíu börn.
Unnið verður við það fyrir
um 12 millj. króna og er
áætlað að það sé um þriðj-
ungur heildarkostnaðar við
byggingu dagvistunar-
heimilsisins. Ríkið greiðir
helming kostnaðar við
bygginguna, hreppurinn
einn fjórða, en ýmis félög
/ »
og félagasamtök einn
fjórða. Aætlað er að dag-
vistunarheimilið verði til-
búið til notkunar árið
1980.
Ný bílavog verður sett
upp við höfnina í sumar.
Undanfarna viku hefur
Björn Helgason dvalið á
Suðureyri og kennt skóla-
börnum á skíðum. í
kennslunni hjá Birni eru
sjötíu og fimm börn og eru
þau til skiptis tvær stundir
á dag. Komin er til lands-
Frá Suóureyri
FORD D-800
til sölu
8,5 TONNA VÖRUBÍLL
ÁRGERÐ 1966, PALLLAUS
Upplýsingar í síma 3867 og 3603
Rækjuverksmiðjan hf.
Húsgagnaverslun ísafjarðar
Sími 3328, ísafirði
Mikið úrval af svefnsófum, eins og tveggja manna.
Verð
mjög
hagstætt
Gott þurrt timbur
af ýmsum stæröum.
GEYMT í HÚSI
TIMBURVEBSLUNIN
ÍSAFIRÐI^ : BJÖRK
Lyfta af Stadeli gerð
ins skíðalyfta af Stádeli verða sett upp fyrir næsta
gerð, sem Súgfirðingar vetur í fjallinu ofan við
hafa keypt. Mún hún flugvöllinn. á.s.
Sá maður, sem segir að
konan hans kunni ekki Tár eru kvenleg vatns-
að taka gamni, gleymir orka, notuð til að yfir-
sjálfum sér. vinna mannlegan styrk.
ísafjarðarkanpstaður
ÚTBOÐ
ísafjarðarkaupstaður óskar eftir tilboð-
um í byggingu á rotþró fyrir Holtahverfi
á ísafirði.
Útboðsgögn verða afhent á Tækni-
deild ísafjarðarkaupstaðar, Austurvegi
2, gegn skilatryggingu að upphæð kr.
10.000.
Tilboð verða opnuð á Tæknideild
mánudaginn 22. maí 1978 kl. 14,00 í
viðurvist þeirra bjóðenda, sem þar
verða staddir.
TÆKNIDEILD ÍSAFJARÐARKAUPSTAÐAR