Vestfirska fréttablaðið - 20.12.1978, Page 7
I vestfirska I
rRETTAELADID
— Fréttaannáll ársins 1978 —
I grein þessari verður
reynt að gera grein fyrir
helstu fréttum ársins 1978,
sem birtust á síðum Vest-
firska fréttablaðsins.
Afhenda
nýtt skip
í fyrsta tölublaði ársins,
sem kom út 11. janúar er
sagt frá því að M. Bern-
harðsson h.f. skipasmíðastöð
á ísafirði hafi afhent nýtt
skip, Heiðrún Í.S. 4 og í
greininni kemur m.a. fram:
Hálfur kílómetri
á ári, of lítið
Þegar VF. kom út 25. jan-
úai mátti lesa á forsíðu fyrir-
sögn, sem hljóðaði þannig:
„Nú er unnið við veginn inn
í fjörð“ og virðist sem svo að
blaðið hafi ekki verið ánægt
með framkvæmdahraða því
að málinu er fylgt eftir í
leiðara sem ber nafnið: Hálf-
ur kílómetri á ári algerlega
ófullnægjandi framkvæmda-
hraði. Síðar á árinu var mik-
ið rætt um þennan vegar-
kafla á síðum VF og segja
má að á tímabili hafi sendi-
bréf gengið á milli manna og
komum við að þeim þætti
síðar.
Sl. laugardag var Heiðrún
Í.S.-4 afhent kaupendum
sínum, Útgerðarfélaginu
Völusteini hf., Bolungarvík
frá M. Bernharðsson, skipa-
smíðastöð hf., á ísafirði.
Heiðrún er nú, að sögn Guð-
mundar Marsellíussonar,
framkvæmdastjóra, full-
komnasta fiskiskip íslend-
ínga. Skipið er búið öllum
nýjustu fiskileitar- og sigling-
artækjum af fullkomnustu
gerð. Þá er Heiðrún þannig
úr garði gerð, að beita má
henni tii veiða með margs-
konar veiðarfæri án breyt-
inga, og jafnvel fleiri en einu
í senn.
Ungur ísfirðing
ur þrettándi
á heims
meistaramóti
í blaðinu, sem kom út í
byrjun febrúar er án efa
stærsta fréttin sú að á
Heimsmeistaramótinu í
Garmisch Partenkirchen
hafi ungur ísfirðingur Sig-
urður Jónsson orðið þrett-
ándi í svigi og í greininni
segir m.a.
í svigkeppni heimsmeist-
aramóstsins í alpagreinum
sl. sunnudag varð Sigurður
H. Jónsson frá ísafirði í
þrettánda sæti. Ingimar
Stenmark sigraði, en Piero
Gros var annar. Teljum við
skíðaunnendur að íþrótta-
fréttaritarar fjölmiðlanna
(boltaleikjaspekúlantarnir)
ættu að veita afrekum þessa
unga manns verðskuldaða
umfjöllun, og gleyma ekki að
meta þau að verðleikum,
þegar kemur að því að velja
íþróttamann ársins 1978.
Fullkomin
tímatökutæki
smíðuð á
ísafirði
í sama tölublaði er sagt
frá því að fullkomin tíma-
tökutæki hafi verið smíðuð
af tveim starfsmönnum Póls-
ins á ísafirði og VF spurði
Örn Ingólfsson að því hvers
vegna þeim hafi verið falið
að smíða þetta tæki, frekar
en að fá þau erlendis frá og
svaraði Örn á þessa leið:
„Ég reikna með að ástæð-
an sé sú að þetta er ekki
fjöldaframleitt og því óheyri-
lega dýrt hingað komið. Eftir
því sem ég best veit, þá eru
þetta einu tímatökutækin af
þessari gerð hér á landi.“
í fimmta tölublaði, sem
kom út 15. mars er greint frá
því að vandræðaástand sé
hér á ísafirði hvað varðar
viðhald og viðgerðir á bát-
um bæjarbúa vegna þess að
dráttarbraut sem var á Torf-
nesi yrði að víkja fyrir bygg-
ingu Menntaskóla.
í sama tölublaði er greint
frá því að miiljónatjón hafi
orðið daginn áður þegar
Smjörlíkisgerð ísafjarðar
skemmdist mikið af eldi.
Áttu öll met í
drekaflugi
Sjötta tölublað VF kom út
í lok marsmánaðar og þar er
greint frá því að nokkru áður
hafi verið stofnaður Svif-
drekaklúbbur hér á ísafirði. í
fréttinni kemur fram að
klúbburinn, sem hlaut nafn-
ið Svifdrekaklúbbur ísafjarð-
ar, sé fyrsti sinnar tegundar
hér á landi. Tilgangur
klúbbsins er fyrst og fremst
sá að stuðla að skynsamlegri
og hættulausri þróun þessar-
ar nýju íþróttar. í mynda-
texta með fréttinni kemur
Mikið byggt
í sjöunda tölublaði, sem
kom út rétt fyrir miðjan apr-
ílmánuð kemur fram að
Vestfirðingar séu drjúgir við
framkvæmdir. Það kemur
fram að á þeim tíma hafi
ísfirðingar átt öll met í
drekaflugi.
meðal annars að á Suðureyri
eigi að byggja dagvistunar-
heimili fyrir sextíu börn og
að Bolvíkingar ætli sér að
byggja íþróttahús, sex íbúðir
fyrir aldraða, fjórar leiguí-
búðir og endurbyggja vatns-
veituna.
Magalenti á ísafjarðarflugvelli
Næst kom Vestfirska frétta-
blaðið út 26. apríl og var það
áttunda tölublað. Meðal
frétta er það að 15. apríl hafi
sex sæta flugvél frá Flugfé-
lagi Norðurlands magalent á
ísafjarðarflugvelli. Engin
slys urðu á mönnum og vélin
talin lítið skemmd.
í þessu tölublaði var einn-
ig greint frá því að þrír ne-
mendur í Hochschule fiir
Fernsehen und Film í
Múnchen áformuðu að taka
60 mínútna langa sjónvarps-
kvikmynd á ísafirði, við
Djúp og á Hornströndum.
Einn ísfirðingur er í þessum
hópi og í fréttinni sagði eftir-
farandi:
Sigurður Grímsson er eini
íslendingurinn sem stundar
nám í kvikmyndagerð við
þýskan háskóla. Hann tjáði
blaðinu að gerð kvikmyndar-
innar væri kostuð af skólan-
um og Bayerische Rund-
funk, sjónvarpsstöð í Mun-
chen. Lýsir kvikmyndin
nokkrum dögum í lífi ungs
Vestfirðings og vandamálum
hans og samtíðarinnar.
Munu þeir félagar koma
hingað í júnímánuði til kvik-
myndatökunnar.
Handritið er að mestu til-
búið og ætlun þeirra er að fá
fólk til aðstoðar við gerð
myndarinnar. Enn er ó-
ráðið hver fer með hlutverk
unga mannsins í henni, en
það er eina hlutverkið, sem
er leikið í kvikmyndinni.