Vestfirska fréttablaðið - 24.09.1992, Side 2
VESTFIRSKA
Fimmtudagur 24. september 1992
J FRÉTTABLAPIÐ |-:
V ESTI 7IRS
| FRÉTTABLAÐIÐ |
Vestfirska fréttablaðið
er vikuWað, óháð stjórnmálaflokkum, og kemur út síðdegis á
fimmtudögum. Blaðið fæst bæði í lausasölu og áskrift.
Útgefandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hlynur Þór Magnússon.
Verð í lausasölu kr. 150.
Verð í áskrift kr. 135 ef notaðar eru Visa eða Eurocard skuld-
færslur (það er ekkert mál og ekkert flókið, bara hringja í
okkur oggefa okkur upp númerið á kortinu); annars kr. 150.
Ritstjórn og auglýsingar:
Aðalstræti 35, Isafirði, sími (94)-4011, fax (94)-4423.
Blaðamenn:
Hlynur Þór Magnússon, Túngötu 17, ísafirði, heimasími (94)-
4446, og Gísli Hjartarson, Fjarðarstræti 2, ísafirði, heimasími
(94)-3948.
Prentvinnsla:
ísprent hf., Aðalstræti 35, ísafirði, sími (94)-3223.
Vísukorn
í tilefni veðurspádóms í Vestfirska
Bráöum kemur vondur vetur,
víst má þessa kenning sanna.
Aldrei hafa ómaö betur
iörastrengir sveitunganna.
Indriði Aðalsteinsson,
Skjaldfönn.
Hvítasunnukirkjan
SALEM
Ungt fólk frá Reykjavík talar og syngur á
samkomunni hjá okkur kl. 17.00 nk. sunnu-
dag. Komið og hlustið á lifandi boðskap í tali
og tónum. Barnapössun og boðið upp á kaffi
eftir samkomu. Allri hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnu kirkjan.
ísafjarðarsöfnuður
Sunnudaginn 21. september
verður messa kl. 14 í ísafjarðarkapellu.
Kaffisala á eftir.
Aðalsafnaðarfundur kl. 16.
ísafjarðarkapella
- Tilkynningar
Útför Óskars Þórarinssonar
verður gerð laugardaginn 26. sept. kl. 10.30.
Útför Annasar Kristmundssonar
verður gerð laugardaginn 26. sept. kl. 14.00.
Guðsþjónusta
verður sunnudaginn 27. sept. kl. 14.00.
Matur og „músikksjó“
í Félagsheimilinu
í Hnífsdal
LL/TINDAR
I undirbúningi er „músikk-
sjó“ með söngvum og
skemmtidagskrá, sem flutt
verður í Félagsheimilinu í
Hnífsdal í nóvembermánuði.
Þetta er samstarfsverkefni
Litla leikklúbbsins á ísafirði
og Björgunarsveitarinnar
Tinda í Hnífsdal, sem rekur
félagsheimilið. I „sjóinu"
leikur stórsveit undir stjórn
Jóns Engilbcrtssonar, en hátt
í tuttugu lcikarar munu koma
fram. Þarna verða í bland
frumsamin gamanatriði úr
bæjarlífinu í hverri viku, en
annað efni verður staðlað.
Abyrgst er að gestum muni
ekki leiðast.
Dagskráin verður um
klukkustundar löng að lokn-
um málsverði, sem Hótel fsa-
fjörður mun sjá um. Miða-
verðinu verður stillt í hóf.
Sýningarnar verða fáar.
Þeir sem vilja panta borö
tímanlega geta haft samband
við fólkið sem getið er um í
auglýsingunni á bls. 7 hér í
blaðinu.
Haustæfingar
hjá Skíðafélagi
ísafjarðar
- Æf ingatafla -
Mánudagur
Kl. 16.00 13 ára
Kl. 17.00 13 ára
Kl. 17.45 16 ára
Kl. 18.30 16 ára
Kl. 20.00 14-15 ára
Kl. 20.45 14-15ára
Miðvikudagur
Kl. 17.00 11 ára
Kl. 17.45 11 ára
Kl. 18.30 14-15 ára
Kl. 19.15 14-15 ára
Föstudagur
Kl. 16.10 12 ára
Kl. 17.00 12 ára
Kl. 17.45 16 ára
Laugardagur
Kl. 11.00 16 ára
Kl. 11.45 16 ára
Kl. 12.30 9—10 ára
Kl. 13.15 9—10 ára
Kl. 14.00 7—8 ára
Kl. 14.45 7—8 ára
Kl. 15.30 13 ára
Kl. 16.15 13 ára
Æfingarnar fara fram ígamla íþróttahús- inu (Sundhöllinni við Austurveg). Allir
krakkar eru velkomnir að vera með þó að
þeir hafi ekki stundað skíði áður.
Skíðafélag ísafjarðar.
Innréttingar á góðu verði í allt húsið.
Gerum verðtilboð.
Hafiðsamband ísíma 91-683623 (símsvari).
Innréttinga-og parketþjónustan, Hraunbergi 17.
Neyðarblys
í Aðalvík
Klukkan rúmlega ellefu
á föstudagskvöldið til-
kynntu skipverjar á Gunn-
birni ÍS frá Bolungarvík að
þeir hefðu séð neyðarblys
upp af Aðalvík. Björgun-
arbáturinn Daníel Sig-
mundsson var sendur á
vettvang en ekkert fannst
sem benti til manna í nauð-
um. Engin önnur skýring
virðist því fyrir hendi
önnur en sú, að þarna hafi
verið um stjörnuhrap að
ræða.
-GHj.
Marta Hlín og Rúnar
Már eru hreint ekki
á leiðinni til Tromso
Sérkennileg meinloka
var í texta með einni af
brúðhjónamyndunum í
síðustu viku. Þar sagði að
Marta Hlín Magnadóttirog
Rúnar Már Jónatansson
væru til heimilis í Trömsö í
Noregi. Þetta stóð vissu-
lega í handritinu sem blað-
ið fékk, en gallinn er sá að
ungu hjónin hafa aldrei til
Tromsö komið og eru ekk-
ert á leiðinni þangað. Þau
eiga heima inni í Múlalandi
12 á gamla ísafirði.
Hitt er annað mál, að
ýmsir ísfirðingar hafa
stundað eða stunda nú nám
í Tromsó, en þar er mikið
miðstöð sjávarútvegs-
fræða. Meðal þeirra eru
Kristján Jóakimsson og
Aðalsteinn Óskarsson og
Einar Hreinsson, bróðir .
Baldurs sem gekk að eiga
Hörpu Magnadóttur systur
Mörtu Hlínar um leið og
Marta Hlín og Rúnar Már
voru gefin saman, en
myndin af þeim var við
hliðina og þau eiga heima í
næsta húsi inni í Múlalandi
(við skulum annars stoppa
áður en þetta verður of
flókið).
Fjórðungsþing Fiskideildanna
á Yestfjörðum á laugardag:
Opinn fundur með
Hrafnkeli Eiríks-
syni um skel
og krabbadýr
51. Fjórðungsþing Fiskideildanna á Vestfjörðum verður
haldiö á ísafirði á laugardaginn, 26. september, og hefst
kl. 10 árdegis í sal Vinnuveitendafélagsins við Árnagötu.
Auk venjulegra þingstarfa verður fjallað um nýjar sam-
þykktir Fiskifélags íslands og framtíð félagsstarfsins.
Málshefjendur verða fulltrúar Fiskifélagsins.
Hluti þingsins verður öllum opinn, en þar er um að ræða
fund á Hótel Isafirði þarsem Hrafnkell Eiríksson fiskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknastofnun flytur framsöguerindi um
skel og krabbadýr, stöðuna i dag og nýja Vnöguleika. Sá
fundur hefst á hótelinu kl. 13.30. Að öðru layti verða þing-
störfin við Árnagötuna.