Morgunblaðið - 21.07.2015, Page 14

Morgunblaðið - 21.07.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015 SMÁRALIND • 2 HÆÐ SÍMI 571 3210 Útsala 30-70% afsláttu r af útsöluv örum Útsöluverð 18.896 verð áður 26.995 Útsöluverð 10.496 verð áður 14.995 Útsöluverð 18.896 verð áður 26.995 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Fyrir þremur árum byggðum við glæsilegan veitingasal, en það hús sem við höfum nú tekið í notkun er með 22 herbergjum,“ segir Gunnar Andrés Jóhannsson, formaður veiði- félags Ytri-Rangár, og vísar í máli sínu til Flúðasels, hótels í eigu veiði- félagsins, en það var tekið í notkun hinn 26. júní síðastliðinn. Að sögn hans geta veiðimenn nýtt húsnæðið á sumrin og almennir ferðalangar á veturna, en húsið seg- ir hann allt hið glæsilegasta. „Þetta er byggt í yfirstærð því vanalega eru 16 stangir í ánni og menn hafa yfirleitt verið með eitt herbergi á stöng. Nú bjóðum við hins vegar upp á 22 herbergi því það eru alltaf einhverjir sem vilja sofa einir í herbergi,“ segir Gunnar Andrés. Að sögn hans stendur húsið á mjög glæsilegum stað með stór- brotið útsýni yfir laxveiðiána. Má á hótelinu meðal annars finna, auk gistirýma og veitingaaðstöðu, heitan pott á verönd hússins og geta því veiðimenn og aðrir hótelgestir notið umhverfisins þar. Að auki segir Gunnar Andrés áformað að setja upp gufubað á næstunni og verður það staðsett við hliðina á pottinum. Ytri-Rangá komin á fulla ferð Aðspurður segir hann þá aðstöðu sem fyrir var á svæðinu ekki henta lengur. „Fyrri leigutaki byggði á sínum tíma þrjá skála með 18 her- bergjum. En að okkar mati var sú aðstaða ekki boðleg lengur,“ segir hann, en með nýju húsnæði eykst þjónusta við veiðimenn til muna þar sem öll aðstaða er nú á sama stað í stað þess að vera dreift á milli þriggja skála líkt og áður var. Spurður út í veiðina segir Gunnar Andrés ána vera komna á fullt og veiðast nú yfir 80 laxar á dag. „Sem stendur erum við í fimmta sæti, en förum fljótlega á toppinn því áin er hreinlega pökkuð af fiski,“ segir hann og bætir við að mikið sé um stórlax þetta árið. „Það er nú sennilega skýringin á því hversu mikið hefur veiðst að und- anförnu því stórlaxinn kemur yf- irleitt fyrr,“ en er þar átt við fisk sem er tveggja til þriggja ára gam- all og vega þeir gjarnan um 12 til 16 pund. „Af þeim 700 sem komnir eru á land [miðað við stöðuna í gær] eru yfir 500 stórlaxar,“ segir Gunnar Andrés. Aðbúnaður Þeir sem sækja Ytri-Rangá heim geta keypt sér gistingu í hótelinu og meðal annars slakað á í setustofu hótelsins eða hvílt lúin bein í heitum potti með útsýni yfir ánna eftir langan dag. Laxar og glæsileiki við Ytri-Rangá Ljósmynd/Veiðifélag Ytri-Rangár Flúðasel Veiðifélag Ytri-Rangár hefur tekið í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði með 22 herbergjum, sem stendur veiðimönnum og ferðalöngum til boða.  Yfir 80 laxar veiðast nú dag hvern í ánni Veiðimaðurinn Sigurjón Svavars- son var einn þeirra sem renndi fyrir lax í Ytri-Rangá í gær og fékk fyrir vikið glæsilegan og vænan maríulax. Eins og hefðin krefst beit Sigurjón veiðiuggann af sín- um fyrsta laxi og virðist það hafa skilað sér, því á einni klukkustund veiddi hann, ásamt félaga sínum, alls fjóra laxa og eru þeir allir sagðir vel vænir. Yfir 80 laxar veið- ast nú í ánni á degi hverjum. Landaði glæsilegum maríulaxi VEIÐIUGGINN BITINN AF VIÐ YTRI-RANGÁ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.