Morgunblaðið - 21.07.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.07.2015, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015 AF LUNGA Matthías Tryggvi Haraldsson mth@mbl.is LungA-vikan, eins og heimamenn kalla þessa nokkra daga í júlí sem Listahátíð unga fólksins á Austur- landi á sér stað, er orðin fastur liður hjá Seyðfirðingum á hverju ári. Í síðustu viku gekk hátíðin í garð í fimmtánda sinn með pompi og prakt, áhangendur listagyðjunnar þyrptust saman frá hverju horni landsins og fjörðurinn iðaði allur af lífi. Náðu herlegheitin sem endranær hámarki um helgina, en þá bætist hressilega í hóp hátíðargesta og afrakstur viku- langrar listsköpunar hafður til sýn- ingar, svo ekki sé minnst á tón- leikana sem gera góða hátíð mjög góða. Gleði á dagskrá sem utan Auk þess sem hin hefðbundna dagskrá gekk sinn vanagang, þ.e. vika af fjölbreyttum listasmiðjum og námskeiðum sem endar með upp- skeru og áðurnefndum tónleikum, voru „aukalegir“ viðburðir áberandi í ár. Dansinn var í hávegum hafður á sýningunni Predator, sem var einnig sýnd á Reykjavík Dance Festival síðasta sumar, leikfélagið Improv Ís- land var með spunasýningu, en það var einmitt á LungA fyrir nokkrum árum sem svokallaður langspuni var fyrst kynntur fyrir landsmönnum, og Hugleikur Dagsson flutti uppi- stand. Þá stóð hljómsveitin Grísa- lappalísa fyrir óvæntu karókíkvöldi í miðri viku, þar sem rokksveitin sjálf sá um undirspilið, og átti sér stað eitt allsherjar Retro Stefson „DJ set“ utan dagskrár á Kaffi Láru, þar sem tónlistarmaðurinn Auður þeytti skífum ásamt meðlimum sveit- arinnar. Kannski var það í tilefni af fimmtán ára afmæli hátíðarinnar sem litrófið fékk að vera svona margþætt, en undirritaður vonast til þess að flóra hátíðarinnar haldi áfram að verða fjölbreyttari með ár- unum. Listasmiðjurnar voru líka sem áð- ur eins fjölbreyttar og þær voru skapandi, allt frá dansi og gríni til listarinnar að skrifa bréf og semja raftónlist. Hægt var að gera sér góð- an dag við það eitt að skoða hvað há- tíðargestir höfðu verið að bralla alla vikuna, og það án endurgjalds. Danssmiðjan og raftónlistarsmiðjan voru sérlega eftirtektarverðar af því sem undirritaður náði að sjá, og greinilegt var að mikið hafði verið í lagt. Það var líka vel þess virði fyrir þá sem ekki eru húmorslausir að virða fyrir sér afrakstur smiðjunnar „Hvað er svona fyndið?“ Það var Æla í vörubílnum Þegar undirritaður mætti á sína fyrstu tónleika á laugardagskvöldi, búinn að rölta í faðmi hinna seyð- firsku fjallshlíða framhjá höfninni, fiskvinnslunni og bræðslunni, ófáum lækjum og kátum gestum, var það engin önnur en pönkhljómsveitin Æla sem blasti við. Reyndar hafði ég harmað það mjög að missa af DJ flugvél og geimskip og Gangly, og leist ekki vel á blikuna þegar ég kom að nánast auðu sviði. Áhorfendur virtust ekki láta það á sig fá og biðu fullir eftirvæntingar eftir því sem kynnt hafði verið sem „leynisvið“ kvöldsins, grunlausir um að í hvíta vörubílnum, sem stóð í sakleysi sínu við hlið þeirra, væri í raun pönk- hljómsveitin sem biði þess að spila. Dyr á hlið bílsins voru opnaðar og í sama vetfangi byrjuðu trommu- og bassaleikarar Ælu að spila af fullum krafti. Söngvarinn var fljótur að slást með í för og jafn skyndilega og dyrnar höfðu verið opnaðar mynd- aðist feikileg pönkstemning við bíl- inn. Hljómsveitin skilaði sínu vel og náði góðri tengingu við áhorfendur, sem urðu sumir hverjir ansi kátir, ef ekki trylltir, við að heyra það sem fram fór í hvíta vörubílnum. Stemning fram á nótt Eftir dágóðan skammt af Ælu var sjónum beint að stóra sviðinu á ný, og nú voru það rappararnir og ljón- ynjurnar úr borginni, Reykjavík- urdætur, sem stigu á svið. Stemn- ingin var af öðrum toga en við pönkið þótt hún hafi ekki verið minni, og greinilegt var að margir höfðu beðið eftir rappsveitinni þar sem nú varð verulega fjölmennt við stóra sviðið. Sérlega var vel tekið í lagið „Ógeðsleg“ og áhorfendur urðu ekki rólegri fyrr en sveitin hafði tekið aukalag. Grísalappalísa stóð að mati undir- ritaðs fyrir hámarki kvöldsins, og þótt það segi vissulega mikið um persónulegan smekk blaðamanns virtust ófáir á sama máli. Gunnar og Baldur, söngvarar sveitarinnar, mynda ákveðið jafnvægi innan um flakkið milli tónlistarstefna og frjálslegar rokkbylgjurnar sem sveitin siglir svo haglega í gegnum. Fullkomlega rökrétt í sinni sjálf- sköpuðu óreiðu. Raftónlistarteymið Sykur tók síð- ast við kyndlinum og var stemn- ingin ekki síðri langt fram á nótt. Þrátt fyrir smá kulda undir lok kvöldsins var hátíðin vel heppnuð í alla staði. Ég var feginn að hafa mætt með trefil og vettlinga á tón- leikana, en miklu fegnari að hafa látið af því verða að fara austur á land til að missa ekki af LungA. Þótt listahátíðin sé jafnan eft- irminnileg var hún í ár, á fimmtán ára afmæli sínu, eins og sannkall- aður regnbogi, litskrúðug sem aldr- ei fyrr. Ljósmynd/Edda Lárusdóttir Leyndó Hvíti vörubíllinn við hlið stóra sviðsins var í raun leynisvið pönkhljómsveitarinnar Ælu. Ljósmynd/Edda Lárusdóttir Stokkið Gítarleikari sveitarinnar Grísalappalísu tekur hér væna dýfu og spilar ótrauður áfram. Litskrúðug listahátíð sem aldrei fyrr Hress LungA vikan er orðin fastur liður í ári Seyðfirðinga, en fjörðurinn iðar af lífi þessa nokkru daga í júlí. Lista- smiðjurnar voru eins skapandi og þær voru fjölbreyttar og dagskráin margþætt. Ljósmynd/Edda Lárusdóttir Rokk Hátíðin nær ákveðnu hámarki með tónleikum laugardagsins. Ljósmynd/Magnús Elvar Jónsson Ferja Þessi heimagerða ferja varð til í einni listasmiðjunni. Ljósmynd/Magnús Elvar Jónsson Í firði Laugardagskvöldið undirbúið í faðmi seyðfirskra fjallshlíða. Mikið er í stemninguna lagt enda verður hún ansi mögnuð. Ljósmynd/Magnús Elvar Jónsson Dansað Eins og sjá má á þessari mynd þótti mörgum mikið fjör á hátíðinni, en eitthvað var um að vera alla sjö dagana í dagskránni eða utan hennar. »Kannski var það ítilefni af fimmtán ára afmæli hátíðarinnar sem litrófið fékk að vera svona margþætt, en þótt hún sé jafnan eftir- minnileg og fjölbreytt var hún sem sannkall- aður regnbogi í ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.