Morgunblaðið - 21.07.2015, Page 36

Morgunblaðið - 21.07.2015, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 202. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Borga sektirnar brosandi 2. Var ekki myrt á staðnum 3. Kranavatnið rennur út 4. Mikill viðbúnaður vegna … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Söngkonurnar Silja Rós Ragn- arsdóttir og Auður Finnbogadóttir ætla að efna til tónleika á Café Ros- enberg í kvöld klukkan 21. Hljóm- sveitin Four Leaves Left mun styðja söngkonurnar og þeir Jón Birgir Ei- ríksson og Grétar Örn Axelsson sjá um bakraddir og dansatriði kvöldins. Tónleikar Silju og Auðar á Rosenberg  Brúðubílinn mætir í Árbæj- arsafnið í dag klukkan 14.00. Ýmsir góðir gestir koma í heimsókn, m.a. Úlli úlfur, Dúskur ætlar að syngja lag eða tvö og segja börn- unum söguna af honum Stúfi litla sem vildi ekki borða hafragrautinn sinn. Að sjálfsögðu er frítt inn á með- an sýningin stendur. Brúðubíllinn kemur í Árbæjarsafn í dag  Prikið býður gestum sínum upp á tónleika með Berndsen í kvöld klukk- an 21.00 og má gera ráð fyrir hörkuskemmtun þar sem gestir geta bú- ist við því að dansa frá sér allt vit í trylltum 80’s-stíl og stemn- ingu. Þeir sem upplifðu árin milli 1980 og 1990 ættu ekki að láta sig vanta. Berndsen heldur uppi stemningu á Prikinu Á miðvikudag og fimmtudag Norðaustlæg átt, 5-13 m/s. Skýjað og vætusamt NA- og A-lands en þurrt á Vestfjörðum og bjartviðri sunnan jökla. Hiti 4 til 15 stig, hlýjast SV-til. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðaustan 8-15 m/s, en 5-10 m/s um landið norðaustanvert. Víða rigning með köflum eða skúr- ir en úrkomulítið V-lands. Hiti víða 5 til 16 stig, hlýjast S-lands. VEÐUR Valsmenn halda siglingu sinni áfram í Pepsi-deild karla í knattspyrnu en eftir sigur á Leiknismönnum í efra Breið- holti í gær, 1:0, eru þeir komnir upp að hlið FH í 2.-3. sæti deildarinnar. Fylkis- menn gerðu góða ferð í Kópavoginn en strákarnir hans Hermanns Hreiðars- sonar fögnuðu sætum sigri gegn Breiðabliki. Albert Brynjar Ingason skoraði eina markið. »2-3 Valur og Fylkir fögnuðu góðum útisigrum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Flugvélarflakið á sandinum er mikið aðdráttarafl. Á hverjum einasta degi yfir sumarið sjáum við tugi bíla aka þarna fram eftir og fólkið virðist áhugasamt. Allt sem tengist flugi er í eðli sínu spennandi, ekki síst þegar það er sveipað einhverri dulúð eins og hér er raunin,“ segir Benedikt Braga- son á Ytri-Sólheimum í Mýrdal. Umhverfið hrátt en heillandi Eitt af vinsælli myndefnum á Ís- landi er sennilega flak Douglas- flugvélar þeirrar sem er á Sólheima- sandi í Mýrdal. Ófáar auglýs- ingamyndir fyrir erlend fyrirtæki hafa verið teknar á þessum stað, enda er bakgrunnurinn óvenjulegur. Um- hverfið hrátt en heillandi. Fyrir nokkrum misserum voru myndir af flugvélinni settar inn á vefsetur Kötlu-jarðvangsins og segir Benedikt þær hafa vakið mikla athygli meðal útlendinga. Með þeim hafi staðurinn, sem er á hans landareign, komist í al- faraleið. Það var 21. nóvember 1973 sem varnarliðsflugvélin, sem var Douglas Dakota-vél af gerðinni C-117, nauð- lenti á Sólheimasandi. Hún var þá að koma austan frá Hornafirði þangað sem verið var að flytja varning til rat- sjárstöðvarinnar við Stokksnes. Yfir Mýrdalssandi á leiðinni til baka lenti vélin í mikilli ísingu og því urðu flug- mennirnir að nauðlenda henni og komu niður í fjöruborðinu á Sól- heimasandi. Engan sakaði en vélin skemmdist mikið. Hún var seinna, eftir að flest heillegt hafði verið tekið brott, dregin upp á sandöldurnar nokkuð ofan við flæðarmálið hvar hún hefur staðið síðan. „Suður á sandi er oft hvasst, mikil úrkoma og eftir eldgosið í Eyja- fjallajökli árið 2010 liggur fínkorna sandur yfir öllu sem lemur á flugvél- arflakinu. Það hefur því mikið látið á sjá nú allra síðustu árin. Álplötur sem voru hnoðaðar við grindina hafa losn- að, eitthvað hefur brotnað og svo framvegis svo allt getur gerst,“ segir Benedikt. Minnismerki úr köldu stríði „Þegar kemur að Íslandsferð setja sumir flugvélina ofarlega á blað um þá áfangastaði sem þeir vilja alls ekki sleppa. Gjarnan er þetta svo fólk sem kemur til okkar og fer í vélsleða- ferðir, jökulgöngur eða í eitthvað annað sem við bjóðum,“ segir Bene- dikt, sem með Andrínu Guðrúnu Er- lingsdóttur rekur ferðaþjónustufyr- irtækið Arcanum. Hefur vegur þess fyrirtækis vaxið mjög á síðustu árum og þar er stórbrotin náttúran í aðal- hlutverki og svo flugvélin á sand- inum, minnismerki úr kalda stríðinu. Flugvélin er dulúð sveipuð  Dakota á Sólheimasandi dregur marga að Morgunblaðið/Sigurður Bogi Áhöfnin Andrína Guðrún og Benedikt í einum af gluggum flugvélarinnar sem fyrrum var í flota varnarliðsins. Flak Oft er sandfok, úrkoma og hvasst á sandinum svo í tímans rás hefur vélin veðrast talsvert og látið á sjá eins og þessi mynd sýnir mjög vel. Það þurfti fimm daga og 76 holur til þess að skera úr um úrslit á opna breska mótinu í golfi en mótið fór fram á Gamla vellinum í St. Andrews í Skotlandi í 29. skipti. Bandaríkja- maðurinn Zach Johnson, Ástralinn Marc Leishman og Suður-Afríkumað- urinn Louis Ousthuizen enduðu allir á fimmtán höggum undir pari eftir 72 holur og fóru í fjögurra holu umspil sem endaði með sigri Johnsons sem fékk tvo fugla, einn skolla og eitt par í umspilinu. »1 Johnson meistari eftir fjórar holur í umspili Brasilíska landsliðskonan Francielle er gengin til liðs við Stjörnuna til þess að hjálpa liðinu í baráttu um sæti í aðalkeppni Meistara- deildarinnar í haust. Hún skoraði þrennu á móti Fylki í sínum fyrsta leik í gær. Francielle vonast til að endurheimta sæti sitt í brasilíska landsliðinu eftir að hún varð fyrir von- brigðum yfir að vera ekki valin á HM í Kanada. »4 Liðsstyrkur úr landsliði Brasilíu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.