Morgunblaðið - 21.07.2015, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN
Snjallara heyrnartæki
Beltone First™
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Til þess að sanna ágæti hugmynda
þinna er þér nauðugur einn kostur að fram-
kvæma þær. Mundu bara að hóf er best á
hverjum hlut.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er ekki amalegt lífið þessa dagana
svo þú skalt njóta þess til hins ýtrasta. Já,
það er skrítið að vera fullorðinn og vera enn
að pæla í hvað maður vill verða þegar maður
verður stór.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gefðu þér tíma til að endurskoða
störf þín og kanna hvar hefur tekist vel og
hvað má betur fara. Ekki taka bara eftir hæfi-
leikum og kostum annarra, taktu líka eftir
þínum eigin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt fólk hafi það á orði hversu fjöl-
hæf/ur þú sért, skaltu varast að láta þau um-
mæli hafa of mikil áhrif á þig. Það er ekki
hundrað í hættunni þótt hlutirnir fari ekki ná-
kvæmlega eins og þú ætlaðir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ættir að dusta rykið af gömlum fjár-
öflunarhugmyndum. Taktu þátt í umræðun-
um ef þú telur að framlag þitt skipti einhverju
máli.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að hafa ekki allt of miklar
áhyggjur af öllu, þetta fer bara eins og þetta
fer. Njóttu þess bara því allt sem þú hefur
gert hingað til er til fyrirmyndar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gætir farið að vinna með trúarlegum
eða andlegum samtökum til aðstoðar þeim
sem eru fátækir eða minnimáttar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú kemst ekkert áfram á frekj-
unni heldur spillir hún bara fyrir þér. Hugsaðu
þig því vel um áður en þú framkvæmir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur unnið vel að undanförnu
og getur því um frjálst höfuð strokið. Ef allir
leggja sitt af mörkum mun þetta ganga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú munt eiga samræður við ein-
hvern sem varpa mun ljósi á málefni sem þú
hafðir ekki hugsað um áður.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert staddur/stödd mitt í ein-
hverri heljarinnar ringulreið og það er engu
líkara en að það sé enga leið að finna út úr
ógöngunum. Leggðu allt kapp á að finna far-
sæla lausn svo þú getir sofið róleg/ur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt margir eigi sér sama takmark þá
geta leiðirnar að því verið margvíslegar.
Mundu að einn góðan veðurdag kannt þú að
vera í hans sporum.
Þorgeir Sveinbjarnarson orti„Fögur er Hlíðin“:
Fögur er Hlíðin
með hlæjandi akra
og tún.
Hlíðin með slegið hárið,
sólgult hárið,
sem flæðir þar fram
um brún.
Fögur er Hlíðin
og væn,
en það var ekki hún
sem kallaði
og kvaddi mig aftur
til sín.
Það var Hallgerður mín.
Þetta ljóð rifjaðist upp fyrir mér
þegar ég sá orðaskipti á Boðn-
armiði sem byrjuðu með þessum
limrum Gylfa Þorkelssonar:
Efalaust oft hafið keyrt
áleiðis framhjá og heyrt
þessar hlálegu sögur
um að Hlíðin sé fögur.
Já, sölumenn engu fá eirt.
Um Gunnar er togað og teygt,
t.d. heyrist því fleygt
að tauma- í -skaki
hann skylli af baki
– og aumingja bóndinn sá bleikt!
Þetta kveikti í Benedikt Jóhanns-
syni:
Hógvær ég vil ei á Hlíðina halla
en hástemmdar lýsingar ber hún samt
varla.
Það er fegurst í Flóa
með fífur og móa
og fjallahringinn sem hrífur menn alla.
Magnús Halldórsson bætti við:
Ýmsar perlur upp ég tel,
af þeim hafði kynni.
Tel þó bæði móa og mel,
malla í hausnum inni.
Líkaði mér þó lengi vel,
landið allt í heildinni.
Og Benedikt Jóhannsson aftur:
Í Flóanum eru’ ei fjöllin há
á þúfum menn þar þurfa’ að stikla.
Þar fjarlægðin gerir fjöllin blá
og mennina mikla.
Sagt er frá því, að Þorvaldur á
Sauðanesi í Vöðlusýslu hafi kveðið
rímur af Gunnari á Hlíðarenda –
„honum þótti sagan eigi vel útskýra
hans skapnað og yfirlitu, vitraðist
Gunnar honum milli svefns og
vöku.“ Þá kvað Þorvaldur þessa
vísu:
Andlitsfagur, augnablár,
ásján fegurðin vafði
réttnefjaður, með rauðgult hár,
rósir í kinnum hafði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fögur er Hlíðin og væn
Í klípu
„RÓM VAR FRÁBÆR - FYRIR UTAN ALLA
RÓMANTÍKINA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ VERÐUR AÐ BYRJA EINHVERNTÍMANN.
VILTU EKKI BARA BYRJA Á AÐ SKERA
UPP ÞENNAN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... í hjarta þér á
hverjum degi.
HELMINGURINN
AF DEGINUM ER
BÚINN!
OG SÖMU-
LEIÐIS LÚR-
INN MINN!
VINUR MINN HÉRNA VILL LEGGJA
FRAM KVÖRTUN Í SAMBANDI VIÐ
BRYNJUNA SEM ÞÚ SELDIR HONUM. GISKAÐU.
NÚ, HVERT ER
VANDAMÁLIÐ?
Víkverji brá sér úr bænum umhelgina upp í Borgarfjörð. Lang-
ar bílalestir liðuðust þangað á föstu-
deginum en ökumenn voru tiltölulega
slakir og kitluðu pinnann ekki svo
fast, enda raðirnar það langar að
framúrakstur hefði verið mikil
glæfraför.
Allt gekk þetta vel þar til Víkverji
ætlaði að renna framhjá gjaldskýlinu
við norðurenda Hvalfjarðarganga,
þeim megin sem lykilhafar aka, þ.e. á
hægri akrein. Víkverja hefur af
skepnuskap sínum stundum langað
til að hægja verulega á, á leið sinni í
gegn, og vinka þeim ökumönnum
sem bíða gjarnan í röðum eftir að
greiða veggjaldið eða skila inn
greiðslumiða. Mikið hagræði hefur
verið af því að kaupa 100 ferða lykil.
Bæði hefur það sparað pening og
tíma, því mun fljótar hefur verið að
aka í gegn.
x x x
En að þessu sinni gekk það ekki svogreitt. Litlu munaði að Víkverji
æki aftan á flutningabíl sem snar-
hemlaði fyrir framan á þessari hægri
akrein. Í ljós kom að slá var kominn
niður, sem fór ekki upp fyrr en
kviknað hafði á græna ljósinu í hlið-
inu, sem gefur merki um að veglykill-
inn er í lagi. Víkverji hefur aldrei séð
þessa slá fara niður áður og hefur
getað ekið þarna greiðlega í gegn. Að
þessu sinni skapaðist stórhætta og
Víkverja rámar ekki í að Spölur hafi
tilkynnt vegfarendum sérstaklega
um þessa breytingu á verklagi við
gjaldskýlið.
x x x
Einhvern tímann lenti Víkverji í þvíað veglykillinn hafði ekki verið
endurnýjaður og þá kom gult ljós
þegar ekið var í gegn. Víkverji hafði
þá samband við Spöl og fékk þau svör
að hafa engar áhyggjur, „gula“ ferðin
yrði bókfærð af lyklinum þegar búið
væri að endurnýja hann. Hver bíll
væri að auki myndaður og auðvelt
væri að finna út úr því hvenær við-
komandi bíll hefði verið á ferð.
Af þessum sökum skilur Víkverji
ekkert í því af hverju sláin er sett nið-
ur, og vonar að það sé ekki vegna
þess að nokkrir svartir sauðir, sem
ekki hafa keypt veglykil, séu að
svindla sér þarna í gegn.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Varpið allri áhyggju ykkar á hann því
að hann ber umhyggju fyrir ykkur.
Fyrra Pétursbréf 5:7