Morgunblaðið - 21.07.2015, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015
Í kvöld býður Grasagarðurinn öll-
um áhugasömum rósaunnendum í
fræðslugöngu í samstarfi við
Rósaklúbb Garðyrkjufélags Ís-
lands og Yndisgróður.
„Gangan er hluti af hefð-
bundnum fræðlsugöngum Grasa-
garðsins og að sjálfsögðu eru allir
velkomnir, hvort sem um rósa-
unnendur er að ræða eða þá sem
vilja kynna sér viðfangsefnið,“
segir Hjörtur Þorbjörnsson hjá
Grasagarðinum.
Grasagarðurinn er eitt af fal-
legri svæðum borgarinnar og er
þar margt forvitnilegt að sjá en
ganga í kvöld hefst klukkan 20:00
og að sjálfsögðu er ókeypis að
sögn Hjartar, sem verður annar
leiðsögumanna í fræðslugöng-
unni.
„Vilhjálmur Lúðvíksson, for-
maður Rósaklúbbsins, verður
einnig með leiðsögn í göngunni en
við munum skoða rósirnar í
Grasagarðinum og ganga síðan
yfir í rósasafn Rósaklúbbsins og
Yndisgróðurs í Laugardalnum.“
Rósasafn Rósaklúbbsins er við
hliðina á Grasagarðinum en sá
hluti svæðisins er vel falið leynd-
armál sem ekki margir vita um
eða átta sig á að sé hluti þess
svæðis sem opið er almenningi.
Ganga Fræðslugöngur eru að sjálfsögðu ókeypis en á myndinni má sjá ígul-
rós eða Henry Hudson, sem finna má í garðinum og þykir mjög falleg.
Leiðsögn um rósir
Grasagarðsins
Fræðsla um rósasafn Rósaklúbbsins
Jeremy Clarkson fór síðasta hringinn
sinn á kappaksturbraut Top Gear ný-
lega en Clarkson var rekinn frá BBC í
vetur eftir að hafa sveiflað hnefanum
í einn af framleiðendum Top Gear-
þáttarins.
„Ég var hrærður þegar ég ók í
gegnum Top Gear-hliðið í síðasta
sinn,“ sagði Clarkson en hann ók
Ferrari 488 á Top Gear-brautinni og
segir hringinn hafa verið mjög góðan.
„Ég gerði allt til að gera síðasta
hringinn eftirminnilegan og glæsi-
legan. Þetta var hringur sem Stig
hefði verið stoltur af,“ sagði Clarkson
klökkur.
Fór síðasta Top Gear-hringinn
AFP
Bílar Jeremy Clarkson fór síðasta hring-
inn sinn á Top Gear-brautinni nýlega.
Sir Ian McKel-
len hefur snúist
til varnar fyrir
breska ríkis-
útvarpið BBC í
kjölfar birtingar
Grænu skýrsl-
unnar í liðinni
viku. McKellen
segir stjórnvöld
alltaf vera
taugaóstyrk þegar kemur að BBC
vegna þess að ríkisstöðin sé alltaf
góður vettvangur fyrir sannleik-
ann.
Í Grænu skýrslunni um BBC er
m.a. rætt um fjármögnun stofn-
unarinnar, tilgang hennar og
regluverk um stofnunina.
„Við höfum engan kosningarétt
þegar kemur að BBC en ef ég
mætti kjósa myndi ég kjósa að
halda í stofnunina, ekki eins og
hún er í dag heldur eins og hún
ætti að vera,“ segir McKellen og
bendir á að hluti af hans framtíð-
arsýn fyrir BBC sé m.a. að
tryggja fjármögnun stofnunar-
innar.
Sir Ian McKellen hóf sjálfur
störf fyrir BBC árið 1963 í The
Indian Tales of Rudyard Kipling.
Ian McKellen snýst til varnar fyrir BBC
Sir Ian McKellen
Leikarinn Alex Rocco er látinn, 79
ára að aldri, eftir erfiða baráttu við
krabbamein. Rocco er eflaust best
þekktur fyrir hlutverk sitt í Guðföð-
urnum en þar lék hann á móti stór-
leikurum á borð við Marlon Brando,
Al Pacino, James Caan, Robert Du-
vall o.fl.
Ferill Rocco spannar meira en
hálfa öld en á þeim tíma fékk hann
m.a. Emmy-verðlaun fyrir hlutverk
sitt í gamanþættinum The Famous
Teddy Z.
Nýlega kom hann fram í gaman-
þættinum Episodes, þar sem hann
lék föður Matts LeBlanc sem gerði
garðinn frægan í Friends-þáttunum.
Alex Rocco látinn, 79 ára að aldri
Kom víða við Alex Rocco lék í kvik-
myndum og þáttum í meira en hálfa öld.
Magic Mike XXL 12
Þrjú ár eru liðin síðan Mike
hætti í nektardansinum á
hátindi ferilsins. Hann og fé-
lagar hans í Kings of Tampa
halda nú í ferðalag til Myrtle
Beach til að setja á svið eina
flotta sýningu í viðbót.
Metacritic 60/100
IMDB 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Skammerens
Datter 12
Dina hefur fengið yfirskilvit-
lega hæfileika móður sinnar
í vöggugjöf og þegar móðir
hennar lendir í fangelsi verð-
ur hún sjálf að koma erfingja
krúnunnar til bjargar.
IMDB 6,6/10
Háskólabíó 20.00, 22.10
Ted 2 12
Kjaftfori og hressi bangsinn
Ted er snúinn aftur.
Metacritic 48/100
IMDB 7,1/10
Laugarásbíó 22.35
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Smárabíó 17.15, 20.00,
22.30, 22.30
Háskólabíó 22.10
Borgarbíó Akureyri 22.00
Terminator:
Genisys 12
Árið er 2009 og John Con-
nor, leiðtogi uppreisnar-
manna, er enn í stríði við vél-
mennin. Hann óttast
framtíðina þar sem von er á
árásum bæði úr fortíð og
framtíð.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 39/100
IMDB 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 20.20,
22.50
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.35
Sambíóin Kringlunni 22.10
Sambíóin Akureyri 22.40
Sambíóin Keflavík 22.30
Albatross 10
Tómas er ungur maður sem
ákveður að elta ástina sína
vestur á firði.
Morgunblaðið bbbmn
Háskólabíó 17.30
Inside Out Ung stúlka flytur á nýtt
heimili og tilfinningar hennar
fara í óreiðu.
Metacritic 93/100
IMDB 8,8/10
Laugarásbíó 14.00
Sambíóin Álfabakka 13.00,
13.30, 15.10, 15.40, 17.50
Sambíóin Kringlunni 17.50,
20.00
Sambíóin Akureyri 17.40
Entourage 12
Metacritic 38/100
IMDB 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 22.10
Jurassic World 12
Á eyjunni Isla Nublar hefur
verið opnaður nýr garður,
Jurassic World. Viðskiptin
ganga vel þangað til að ný-
ræktuð risaeðlutegund ógn-
ar lífi fleiri hundruð manna.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 59/100
IMDB 7,6/10
Laugarásbíó 20.00
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.20
Smárabíó 22.30
Borgarbíó Akureyri 22.00
Spy 12
Susan Cooper, CIA, er hug-
myndasmiðurinn á bak við
hættulegustu verkefni stofn-
unarinnar.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 84/100
IMDB 7,4/10
Smárabíó 20.00, 22.10
San Andreas 12
Jarðskjálfti ríður yfir Kali-
forníuríki og þarf þyrlu-
flugmaðurinn Ray að leggja
á sig erfitt ferðalag til að
bjarga dóttur sinni.
Metacritic 43/100
IMDB 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 22.50
Hrútar 12
Bræðurnir Gummi og Kiddi
hafa ekki talast við áratug-
um saman.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 83/100
IMDB 8,2/10
Háskólabíó 17.30, 20.00,
22.10
Bíó Paradís 18.00, 20.00
Whiplash
Bíó Paradís 17.45
Fúsi
Bíó Paradís 18.00
Still Alice
Bíó Paradís 20.00
Hross í oss
Bíó Paradís 20.00
Vonarstræti
Bíó Paradís 22.00
Violette
Bíó Paradís 22.00
What We Do in the
Shadows
Bíó Paradís 22.15
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Scott Lang er vopnaður ofurgalla sem
getur minnkað þann sem klæðist honum
en aukið styrk hans um leið. Gallinn kem-
ur sér vel þegar hjálpa þarf læriföðurnum,
fremja rán og bjarga heiminum.
Metacritic 65/100
IMDB 8,0/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00, 22.30
Sambíóin Álfabakka 13.30, 14.30, 16.10, 17.20, 17.50,
20.00, 20.00, 22.40, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Keflavík 17.20, 20.00, 22.40
Ant-Man 12
Lífið er afar frjálslegt hjá framhaldsskólastelp-
unni Rósalind þar sem lífið snýst aðallega um
stráka, djamm og að hanga með bestu vin-
konu sinni Agú. En þegar Rósalind fer að
fækka fötum á Netinu breytist allt.
Morgunblaðið bbbnn
Smárabíó 17.30, 20.00, 20.00, 22.30
Háskólabíó 20.00, 22.30
Borgarbíó Akureyri 18.00, 20.00
Webcam 16
Skósveinarnir eru hér mættir í eigin bíó-
mynd. Í gegnum tíðina hafa þeir gegnt
mikilvægu hlutverki, að þjóna metn-
aðarfyllstu skúrkum allra tíma, en eru
nú orðnir þreyttir á nýja stjóra sínum.
Metacritic 63/100
IMDB 7,0/10
Laugarásbíó 14.00, 14.00, 16.00, 16.00, 18.00, 18.00, 20.00, 22.00
Sambíóin Álfabakka 13.30, 13.30, 15.40, 15.40, 17.50, 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Keflavík 17.50
Smárabíó 15.30, 15.30, 15.30, 17.45, 17.45, 17.45, 20.00
Háskólabíó 17.30, 17.30, 20.00
Borgarbíó Akureyri 18.00, 20.00
Minions