Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. J Ú L Í 2 0 1 5 Stofnað 1913  170. tölublað  103. árgangur  DAGSKRÁIN ÞÉTT HJÁ ÓSKARI OG SKÚLA HILMA Á HVÍTA TJALDIÐ HREFNA LIND MEÐ MÖRG JÁRN Í ELDINUM HANDRIT 30 SPUNAMEISTARI 10TÓNLEIKAR OG PLATA 31 Rúturnar fleiri og yngri  Hópbifreiðum fjölgað um 500 á fimm árum  Fornbílar notaðir til fjalla þar sem nýir bílar komast ekki  Fjölgun hlutfallslega minni en aukning ferðamanna alaldur í umferð er 9,75 ár. Af þeim 1.879 hópferðabílum sem eru í um- ferð eru 94 bílar sem eru 25 ára eða eldri og eru því skilgreindir sem fornbílar samkvæmt skilgreiningu Fornbílaklúbbs Íslands. „Þetta eru svokallaðir grindarbílar. Þeir eru eftirsóttir til þess að fara til fjalla því þeir eru hærra smíðaðir og komast yfir árnar og vonda vegi. Bílar sem smíðaðir eru í dag eru svo lágir að þeir geta ekki verið til fjalla,“ segir Tyrfingur Guðmundsson, eigandi og framkvæmdastjóri hópbifreiðafyrir- tækisins Guðmundar Tyrfingssonar ehf. Hann segir að þó að hópferða- bílaflotinn hafi stækkað hafi fjölgun- in ekki haldist í hendur við hlutfalls- lega fjölgun ferðamanna. Það helgist af því hve margir ferðamenn velji að ferðast á eigin vegum og þess njóti bílaleigur frekar. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Skráðum hópbifreiðum, eða rútum, hefur fjölgað um rúmlega 500 frá árinu 2010 og eru nú 1.879 hópbif- reiðar í umferð. Samhliða því hefur flotinn yngst nokkuð frá því sem var fyrir fimm árum. Meðalaldur rút- anna hefur einnig lækkað en hann var um 14 ár árið 2010. Meðalaldur bifreiða á skrá nú er 12,51 ár og með- MHópbifreiðum fjölgað... »12 Morgunblaðið/Kristinn Rútur Um 500 rútur hafa bæst við. Þetta par lét hana ekki fá svo á sig, umræðuna um ferðamannastrauminn á landinu, að þau gætu ekki notið samvistanna við Seljalandsfoss. Ljós- myndari blaðsins fangaði þau saman á fallegri stund fyrr í vikunni en engar sögur fara af tilefni ferðar þeirra um landið og látum við lesendum eftir að geta sér til um það. Seljalandsfoss hefur orðið að skyldustoppi fyrir ferðamenn á Suður- landi og er fjölmenni þar daglega á sumrin. Morgunblaðið/RAX Samverustund undir dynjandi fossinum Ferðamenn njóta sín í íslenskri náttúru  Jarðhiti hefur aukist í Vestur- bunka á Surtsey frá síðustu mæl- ingum. Þetta kom í ljós í leiðangri vísindamanna í eyna í síðustu viku. Þá uppgötvuðust einnig nýjar teg- undir á staðnum: æðarfugl hefur verpt þar í fyrsta sinn, tvær nýjar tegundir háplantna hafa skotið rót- um og auk þess nýjar tegundir fiðr- ilda og fleiri smádýra. „Mestu tíðindin voru að finna æð- arkollu í varpinu,“ segir Borgþór Magnússon leiðangursstjóri í sam- tali við Morgunblaðið. Hann segir að nýr varpfugl hafi ekki sést í eynni frá 2009. »14 Merki um aukinn jarðhita í Surtsey Surtsey Ljónslappi fannst í eynni í sumar. Ferðamenn í hvalaskoðun á Níels Jónssyni EA 106, sem gerður er út frá Hauganesi við Eyjafjörð, fengu heldur betur óvæntan glaðning á dögunum þegar fjórar andarnefjur blöstu allt í einu við augum þeirra mitt á milli Grenivíkur og Hauga- ness. Um er að ræða afar sjaldgæfan viðburð enda eru þetta hvalir sem alla jafna er ekki að finna á grunn- slóð. Fyrir nokkrum árum létu nokkrar andarnefjur þó sjá sig á Pollinum við Akureyri og héldu þar til í einhvern tíma. Ekki er vitað um ástæðu þess en jafnvel talið að þær hafi verið á flótta undan háhyrn- ingum eða verið sjálfar á eftir ein- hverju tilteknu æti og endað þar inn frá. Andarnefjan getur orðið rúm- lega 9 metra löng en fullorðnir tarf- ar við Ísland eru að meðaltali 8,4 metra langir og kýr 7,2 metra lang- ar. Oftast er hún grásvört eða dökkbrún að ofanverðu en nokkuð bjartari undir. Hún er afar félagslynd og nálg- ast mjög gjarnan skip og báta. Þá er hún einnig þekkt fyrir einstakt trygglyndi og ræktarsemi við eigin kynstofn, er m.a. felst í því, að hún yfirgefur ekki særðan félaga, fyrr en hann er dauður. »6 Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Andarnefja Hún er tilkomumikil og afar fögur með mjótt trýni og hátt og kúpt enni. Trýnið minnir á andarnef og af því fær hún nafn sitt. Andarnefjur syntu um í Eyjafirði  Afar sjaldgæfur viðburður hér enda hvalir sem sjaldan eru á grunnslóð  Hinn 1. janúar 2016 verður embætti héraðs- saksóknara stofnað. Sam- tímis mun emb- ætti sérstaks saksóknara verða lagt niður og verkefni þess flutt inn í hið nýja embætti. Markmið hins nýja embættis hér- aðssaksóknara er að styrkja ákæru- valdið og leysa fyrirliggjandi vanda- mál við núverandi fyrirkomulag. Hægt verður skv. nýjum lögum að kæra ákvörðun um niðurfellingu máls eða hvarfs frá rannsókn hjá lögreglu eða héraðssaksóknara til ríkissaksóknara. »18 Nýtt saksóknara- embætti stofnað Breyting Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.  Áhrifin sem Íslendingar verða fyrir vegna efnahagserfiðleika Grikklands koma helst til vegna veikingar evrunnar í kjölfar að- gerða evrópska seðlabankans, að mati Ásgeirs Jónssonar hagfræð- ings. Hins vegar eru vöru- og þjón- ustuviðskipti á milli Íslands og Grikklands það lítil að þau hafa takmörkuð áhrif. Einhverjar van- efndir hafa verið á greiðslum grískra kaupenda til íslenskra fyr- irtækja undanfarið. »16 AFP Grikkland Víða liggja angar kreppunnar. Áhrifin óbein af erf- iðleikum Grikklands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.