Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 203. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Lýst eftir Lilju Jóhönnu … 2. Fimm Íslendingar ranglega … 3. Ferðamenn gista á bílastæði HR 4. Glowie var hunsuð og henni strítt »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónleikarnir A Journey through the History of Icelandic traditional and classical Music verða haldnir í tón- leikasalnum í Hannesarholti í kvöld og á föstudag en það eru þær Gerður Bolladóttir sópran og Júlíana Rún Indriðadóttir píanóleikari sem standa fyrir tónleikunum. Íslensk tónlistarsaga í tali og tónum  Raftónlistin verður allsráð- andi á Prikinu í kvöld þegar Dj Gunni Ewok kem- ur fram en hann þekkja flestir af vikulegum út- varpsþáttum hans á X-inu en þeir eru nú komnir á XFM. Tón- leikar Dj Gunna Ewok nefnast Vinyl Wednesday og hefjast klukkan 20.00. Dj Gunni Ewok á Prikinu í kvöld  Rappdúettinn Úlfur Úlfur fagnar útgáfu plötunnar Tvær plánetur í Gamla bíói á morgun, fimmtudaginn 23. júlí, og hefjast tón- leikarnir klukkan 22. Platan verður spiluð í heild sinni, hugsanlega í síðasta sinn. Tvær plánetur er önnur breiðskífa dúetts- ins, en árið 2011 gaf sveitin út plötuna Föstudaginn langa. Úlfur Úlfur fagnar útgáfu nýrrar plötu Á fimmtudag Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Bjartviðri um landið sunnan- og vestanvert og líkur á síðdegisskúrum en skýjað og rigning með köflum annars staðar. Hiti 5 til 15 stig, svalast A-til. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 m/s. Rigning með köflum um landið sunnan- og austanvert, súld með norðurströndinni en víða bjartviðri um landið vestanvert. Hiti víða 5 til 14 stig. VEÐUR „Það verður sjokk fyrir þá að sjá þennan völl miðað við þann sem þeir hafa, það er himinn og haf þar á milli,“ sagði Rúnar Páll Sigmunds- son, þjálfari Stjörnunnar, fyrir síðari leik liðsins gegn skoska meistaraliðinu Celtic í Garðabæ í kvöld. Stjarnan er 2:0 undir í einvíginu en Rúnar telur að vall- araðstæður í kvöld gætu komið þeim skosku á óvart. »1 Völlurinn er leyni- vopn Stjörnunnar Karlalandsliðið í körfuknattleik hóf á mánudag lokaundirbúninginn fyrir úrslitakeppni Evrópumótsins en þar leikur Ísland í fyrsta sinn í haust. Jak- ob Örn Sigurðarson og Martin Her- mannsson segjast báðir stefna að því að njóta þess að vera á stóra svið- inu og spila við marga af bestu körfubolta- mönnum Evrópu. »4 Ætla að njóta þess að vera á stóra sviðinu Miðvörðurinn Ásgeir Eyþórsson úr Fylki er leikmaður 12. umferðar Pepsi-deildar karla í knattspyrnu hjá Morgunblaðinu. Ásgeir segir að Fylk- isliðið hafi breytt aðeins um taktík eftir að Hermann Hreiðarsson tók við þjálfuninni, en aðallega hafi baráttan og trúin í liðinu aukist eftir komu hans, enda hefur Fylkir fengið fjögur stig gegn FH og Breiðabliki. » 2-3 Meiri barátta og trú með Hermanni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Áhugamál fólks eru af ýmsum toga. Margir safna frímerkjum og serví- ettum, sumir vilja sækja heim sem flesta knattspyrnuvelli, svo dæmi séu tekin. Morgunblaðið rakst á þrjá slíka frá Þýskalandi. „Ég hafði í mörg ár farið á alla leiki 1. FC Köln, míns liðs í Þýska- landi, en fyrir sjö eða átta árum hóf ég þetta flakk til útlanda,“ sagði höfuðpaurinn, Christian Quiel, við Morgunblaðið í Kaplakrika. „Síðan hef ég ferðast til margra landa og reynt að sjá eins marga fótboltaleiki og nokkur kostur er. Ég er að „safna“ fótboltavöllum.“ Fjögur lönd í Evrópu eftir Með Quiel í för nú voru vinir hans, Michael Grüning og Benjamin Fahmeyer en ferðafélagarnir eru ekki alltaf þeir sömu og oftast fleiri. „Þetta er alveg frábært tóm- stundagaman og Ísland er 57. landið sem ég hef heimsótt til þess að horfa á fótbolta!“ segir Quiel. „Ég á bara fjögur lönd eftir í Evrópu; Það eru Albanía, Kosovo, Makedonía og ...“ Hann mundi ekki það fjórða. Áður en flakkið úr landi hófst hafði Quiel horft á leik á völlum allra liða í þremur efstu deildum Þýskalands og flestum í fjórðu deild. „Auk þess að vera áhugamað- ur um að horfa á leiki er ég dómari svo víða fæ ég frítt inn á völlinn,“ segir hann eins og til að réttlæta heimsóknirnar. Svo skrifar hann gjarnan greinar um ferðalögin í staðarblaðið heima í Münster. Þá er spurt: Vinnurðu eitthvað með þessu? Hann svarar hlæjandi: „Já, reyndar, en ég á enga kærustu. Þess vegna hef ég svona mikinn tíma!“ Hann segir ferðalögin ekki eins dýr og halda mætti, þökk sé fjölda lággjaldaflugfélaga í heim- inum. Til Norður-Kóreu í haust! Lengstu ferðirnar voru á tvö síð- ustu heimsmeistaramót karla, 2010 í Suður-Afríku og Brasilíu í fyrra. Í haust ætlar hann ásamt fleirum til Ekvador og Kólumbíu en í október á hann aðra sannkallaða ævin- týraför fyrir höndum: „Þá fer ég til Norður-Kóreu að sjá landsleik við Jemen. Það verður örugglega mjög sérstakt. Við fljúgum í gegnum Kína og á heimleiðinni er ég búinn að skipuleggja ferð á leik í kín- versku 1. deildinni í Peking.“ Þetta kallar maður að hafa áhuga á fótbolta... Flakka á milli fótboltavalla  Þýskur áhuga- maður hefur sótt heim 57 lönd til að horfa á fótbolta Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fótboltaferðalangar Þjóðverjarnir á Kaplakrikavelli fyrir leik FH og KR á sunnudaginn. Frá vinstri: Michael Grün- ing, Christian Quiel og Benjamin Fahmeyer. Þremenningarnir voru býsna ánægðir með leikina sem þeir sáu hér. Þremenningarnir lögðu af stað frá Köln í Þýskalandi seint á fimmtudagskvöld og voru lentir í Keflavík um miðnætti að ís- lenskum tíma. Á föstudags- kvöldið fylgdust þeir með leik HK og Gróttu í 1. deildinni í Kórnum. Á laugardaginn voru þeir mættir á Stjörnuvöllinn í Garðabæ þar sem þeir sáu Ís- landsmeistarana í karlaflokki gera 1:1 jafntefli við nýliðana af Skaganum og á sunnudags- kvöldið voru þeir viðstaddir toppslag FH og KR í Kaplakrika, þar sem Reykjavíkurliðið hafði betur, 3:1 og héldu strax að hon- um út á flugvöll og heim. Þeir náðu þó fjórum leikjum á þrem- ur dögum því upp úr hádegi á sunnudag horfðu Þjóðverjarnir á leik FH og Þórs/KA/Hamranna frá Akureyri í 2. flokki kvenna í Kaplakrika! Fjórir leikir á þremur dögum MIKILL FÓTBOLTAÁHUGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.