Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Íþróttir
Verðlaunagripir -
gjafavara -áletranir
Bikarar, verðlaunapeningar, barm-
merki, póstkassaplötur, plötur á leiði,
gæludýramerki - starfsgreinastyttur
Fannar
Smiðjuvegi 6, Rauð gata
Kópavogi, sími 5516488
Til sölu
Scat Hovercarft svifnökkvi
tveggja manna - til sölu
Lítið notaður. Þarfnast lagfæringar á
botni.
Uppl. í s. 5444333 og 8201070
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Bílar
Suzuki Grand Vitara Premium
2013 Til sölu Suzuki Grand Vitara
Premium árg. 2013. Ekinn 61.000 km.
Beinskiptur. Einn eigandi frá upphafi.
Litur dökk brúnn. Verð kr. 3.900.000.
Upplýsingar í símum 5616521 og
8921938
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Ríf ryð af þökum,
ryðbletta, hreinsa
þakrennur og tek að
mér ýmis smærri
verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Helgafellshverfi
2 tillögur að breytingum á deiliskipulagi
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.
123/2010 eftirtaldar tvær tillögur að breytingum á deiliskipulagi í
2. og 3. áfanga Helgafellshverfis:
Ástu-Sólliljugata 30-32, í 2. áfanga
Tillagan er um að breyta lóðinni úr parhúsalóð í þrjár raðhúsalóðir,
með þremur íbúðum. Byggingarreitur stækki um 1 m til vesturs.
Önnur ákvæði um form hússins verði óbreytt.
Uglugata 2-22, í 3. áfanga
Tillagan er um að í stað „klasa“ með 11 íbúðum komi samstæða
með 8 tveggja hæða raðhúsum og einu tveggja hæða fjölbýlishúsi
með 6-7 íbúðum. Íbúðum fjölgar þannig um allt að 4. Aðkomuleið
innan samstæðunnar og leik- og útivistarsvæði verði á sameigin-
legri lóð í sameign allra, en fjölbýlishúsið og einstök raðhús verði
á sérlóðum.
Ofangreindar tillögur verða til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar,
Þverholti 2, frá 22. júlí 2015 til og með 2. september 2015, svo að
þeir sem þess óska geti kynnt sér þær og gert við þær athugasemdir.
Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Mosfellsbæjar á slóðinni:
mosfellsbaer.is/skipulagsauglysingar
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulags-
nefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eigi síðar en
2. september 2015.
16. júlí 2015,
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin smíðastofa, útskurður kl. 9-16. Opið hús m.a. spil-
að vist og brids kl. 13-16. Ljósbrotið prjónaklúbbur með Guðnýju kl.
13-16.
Garðabær Jónshús, félagsmiðstöð Strikinu 6, er opin alla virka daga
frá 9.30-16. Heitt á könnunni, hádegismatur kl. 12, panta með dags
fyrirvara í s. 6171503, meðlæti með síðdegiskaffi selt kl. 14-16, opnar
saumavinnustofur, Bónusrúta frá Jónshúsi kl. 14.45 á þriðjudögum,
brids á miðvikudögum kl. 13, handavinnuhorn á fimmtudögum kl. 13.
Gerðuberg Opnar vinnustofur kl. 9-15.30. Félagsvist kl. 13. Heitt á
könnunni.
Gjábakki Handavinnustofan opin, hádegisverður kl. 11.40, félagsvist
kl. 13.
Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, kvennabrids kl. 13 og handa-
vinnustofan opin.
Hvassaleiti 56-58 Opið kl. 8-16. Boðið upp á kaffi kl. 8.30-10.30.
Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Blöðin, taflið og púslin liggja frammi. Opið
inn í handavinnustofu. Þrektækin og púttið á sínum stað. Minnum á
netið og spjaldtölvuna. Hádegisverður seldur kl. 11.30-12.30. Kaffi og
meðlæti selt kl. 14.30-15.30.
Norðurbrún 1 Bónusbíllinn leggur af stað 14.40. Félagsvist 14-16. Á
morgun, fimmtudag er engin dagskrá. Föstudagur: engin dagskrá.
Seltjarnarnes Tölvunámskeið í Mýrarhúsaskóla kl. 10. Skemmti-
ganga frá Skólabraut kl. 13.30. Vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness
kl. 18.30. Kaffikrókur á Skólabraut kl. 10.30. Á fimmtudaginn er komið
að hinu árlega Nikkuballi Ungmennaráðs Seltjarnarness. Nikkuballið
veður haldið fimmtudaginn 23. júlí, frá kl. 13.30 til 16, á planinu hjá
húsi Björgunarsveitarinnar Ársæls á Seltjarnarnesi. Veitingar verða í
boði og mun harmonikkuleikarinn Reynir Jónasson leika undir dansi
ásamt Súkkuliðinu, listahópi Seltjarnarness auk þess sem boðið
verður upp á hópsöng.
Vitatorg Handavinna. Ferð í Bónus kl. 12.20. Farin verður dagsferð til
Vestmannaeyja 10. ágúst, allir velkomnir. Uppl. í síma 411-9450 og
822-3028.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58–60
Samkoma í kvöld kl. 20
í Kristniboðssalnum.
Ræðumaður er Ragnar
Gunnarsson. Allir velkomnir.
Þjónustuauglýsingar
Þarft þú að koma fyrirtækinu
þínu á framfæri
Hafðu samband í síma
569 1100 eða á
augl@mbl.is
og fáðu tilboð
þér á strik aftur. En það gerðist
ekki.
Þessir tímar núna eru svo erf-
iðir, þrúgandi sorg og söknuður
einkenna dagana og tómarúmið í
lífinu er stórt. En ég veit að með
tímanum mun þetta tómarúm
fyllast af góðum minningum um
þig og af þeim er nóg. Þú varst
einstök manneskja og litaðir líf
allra sem kynntust þér björtum
litum. Þú varst alltaf svo glöð og
bjartsýn. En fyrst og fremst
varstu góð. Þú settir alltaf alla
aðra í forgang og lýsandi dæmi
um það var að þér var miklu
meira umhugað um hvernig við
fjölskyldan þín hefðum það held-
ur en að þú værir að kveinka þér
í veikindunum eða að hafa
áhyggjur af sjálfri þér. Heimili
ykkar pabba á Gullteigi hefur
verið fastur punktur í tilverunni
og við eigum öll eftir að sakna
þess mikið að geta ekki sest nið-
ur með þér yfir kaffibolla, enska
boltanum eða spjallað um daginn
og veginn.
Þú varst alltaf svo ung í anda
og áttir auðvelt með að tengjast
ungu fólki og ég er þakklátur fyr-
ir það góða samband sem þú áttir
við börnin mín. Ég á ótal góðar
minningar um þig sem munu ylja
mér og mínum um ókomin ár.
Takk fyrir allt, mamma mín.
Þú ert og verður mín fyrirmynd í
lífinu og hvatning til að verða
betri maður. Minning þín mun
lifa með okkur.
Þorsteinn Gísli Hilmarsson.
Það var þegar Steini fór fyrst
með mig á Gullteig að ég vissi að
ég væri í öruggri höfn. Maður,
sem var alinn upp á svo ástríku
heimili af foreldrum sem sýndu
hvort öðru svo mikla hlýju og
samstöðu, gat ekki verið annað
en góður í gegn. Á Gullteig var
alltaf gott að koma og þar áttum
við góðar stundir. Anna reyndist
dætrum mínum amma og mynd-
uðu þær Sigurrós Arey einstök
tengsl.
Gullteigur var límið sem hélt
öllum saman, þungamiðjan þar
sem hjartað sló. Anna var ynd-
isleg kona, falleg og hlý. Hún
hugsaði alltaf fyrst og fremst um
fólkið í kringum sig. Meira að
segja í veikindunum var for-
gangsröðunin skýr, það var fólk-
ið hennar sem henni var umhug-
að um. Ég er óendanlega þakklát
fyrir að hafa tilheyrt þeim hópi.
Lára Hlín spyr mikið. Amma á
Gullteigi er hjá Guði. Missirinn
er mikill en lítið barn finnur
huggun í að hjá Guði sé gott að
vera. Ég vildi að tíminn hefði
verið lengri, heimsóknirnar fleiri
og samtalið meira. Það er með
miklum trega sem ég kveð ein-
staka konu.
Árný Björk Birgisdóttir.
Í dag kveðjum við systur okk-
ar og mágkonu, Önnu Jónmunds-
dóttur, sem lést 12. þessa mán-
aðar á líknardeild Landspítalans.
Anna fæddist að Kirkjuteigi 15
og ólst þar upp. Hún gekk í Laug-
arnesskóla eins og önnur börn í
hverfinu. Æskuárin í foreldra-
húsum liðu ljúf og björt við ást-
ríki foreldranna. Hverfið var þá
að byggjast upp, börn í hverju
húsi og mikið um útileiki eins og
tíðkuðust þá. Í minningunni var
alltaf gott veður og glatt á hjalla.
Á sumrin var mjög algengt að
börn færu til sumardvalar í sveit
og Anna dvaldi mörg sumur að
Innri-Skeljabrekku í Borgarfirði
þar sem hún undi sér vel. Þar
kveikti traktorsakstur snemma
áhuga hennar á ökutækjum og
strax 17 ára keypti hún sér bíl,
flottan blæjubíl, og leyfði okkur
systkinum sínum að sporta okkur
með sér á góðviðrisdögum með
blæjuna niðri – það þótti mikið
ævintýri!
Eftir barnaskóla fór Anna í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
þaðan sem hún útskrifaðist sem
gagnfræðingur. Eftir skólagöngu
vann hún skrifstofustörf og var
lengi ritari í Sakadómi Reykja-
víkur eða þar til hún gifti sig og
stofnaði heimili.
Árið 1967 giftist Anna eftirlif-
andi eiginmanni sínum, Hilmari
Reyni Ólafssyni. Þau eignuðust
fjögur börn í ástríku hjónabandi.
Þau eru í aldursröð: Þorsteinn
Gísli, Halldóra, Hilmar Örn og
Laufey Katrín.
Hilmar stundaði sjóinn á þess-
um árum sem stýrimaður og
skipstjóri og Anna var heima-
vinnandi húsmóðir meðan börnin
voru lítil. Þegar þau komust á
legg fór Anna aftur út á vinnu-
markaðinn og starfaði þá sem
læknaritari hjá Barna- og ung-
lingageðdeild Landspítalans þar
til hún hætti störfum vegna ald-
urs.
Anna hafði yndislega nærveru.
Hún hafði ríka og hlýja kímni-
gáfu, sagði skemmtilega frá og
var fundvís á hið jákvæða í fari
fólks. Hún var mikill vinur vina
sinna – traust og vitur kona sem
gott var að eiga að. Hún var klett-
urinn sem margir reiddu sig á.
Við eigum mjög ljúfar minn-
ingar um Önnu. Hún var okkar
besti vinur. Það eru ófáar sam-
verustundirnar og ferðirnar sem
við nutum saman og ógleyman-
legar eru bróður og mágkonu all-
ar veiðiferðirnar í Vatnsdalinn
sem farið var saman í á hverju
vori mörg ár í röð – og alltaf var
það jafn gaman. Anna hafði mikla
ánægju af að ferðast um landið
okkar og var Snæfellsnesið í
miklu uppáhaldi.
Heimili Önnu og Hilmars var
oft eins og miðpunktur tilverunn-
ar enda oft komið þar við til að fá
kaffisopa og spjalla. Það var
mjög gott að leita til Önnu og fá
góð ráð sem hún var alltaf tilbúin
að veita og hún var öllum stoð og
stytta. Anna var vel gefin, víðles-
in og átti gott bókasafn. Hún var
frábær penni og það var gaman
að fá bréf frá henni. Þau voru
gjarnan geymd vel og lesin oft.
Nú þegar kemur að kveðju-
stund viljum við þakka fyrir sam-
fylgdina sem einkenndist af kær-
leika, vináttu og virðingu og
einnig þökkum við fyrir allar þær
fjölmörgu, skemmtilegu stundir
sem við áttum saman.
Við vottum fjölskyldunni okk-
ar dýpstu samúð á þessum erfiða
tíma.
Pálína Jónmundsdóttir,
Gísli Jónmundsson
og makar.
Móðursystir mín, Anna Jón-
mundsdóttir, lést 12. þessa mán-
aðar á líknardeild Landspítalans
og verður jarðsett í dag. Mig lang-
ar því að kveðja þessa hlýju og um-
hyggjusömu náfrænku mína með
nokkrum orðum.
Anna kom mér ávallt fyrir sjón-
ir sem heilsteypt og umhyggjusöm
eiginkona, móðir og frænka. Allt
frá því að ég man fyrst eftir mér
hjá ömmu og afa á Kirkjuteigi og á
heimili Önnu að Hofteigi, finnst
mér sem hún hafi ávallt fylgst vel
með lífsgöngu minni og tekið virk-
an þátt í henni, ýmist með árnað-
aróskum á góðum stundum eða
með hvatningu og stuðningi þegar
á móti hefur blásið. Fyrir það vil
ég þakka nú þegar komið er að
kveðjustund.
Anna hafði bæði góða nærveru
og jákvætt hugarfar sem gerðu
allar stundir í návist hennar góðar
og uppbyggilegar. Hún var af
þeirri kynslóð Íslendinga sem
varðveitti og nærði okkar mikil-
vægstu gildi – hógværð, nægju-
semi og umhyggju fyrir sínum
nánustu. Að því leyti var hún okk-
ur yngri meðlimum fjölskyldunnar
einkar góð og heilbrigð fyrirmynd.
Ég vil að síðustu þakka minni
góðu frænku samfylgdina og færa
eiginmanni Önnu, börnum og
barnabörnum dýpstu samúðarósk-
ir.
Guð blessi minningu hennar.
Jónmundur Guðmarsson.
Fleiri minningargreinar
um Önnu Jónmundsdóttur
bíða birtingar og munu birt-
ast á næstu dögum