Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015
Styrmir Gunnarsson segirtvennt ljóst í samskiptum Ís-
lands og ESB:
1 Tilraun íslenzkra stjórnvaldatil að draga aðildarumsókn-
ina að ESB til
baka með bréfi,
sem ESB hafði
samþykkt fyrir-
fram en var óljóst
orðað svo að ekki
sé meira sagt mis-
tókst. Ferð for-
sætisráðherra til
Brussel sýnir að
ríkisstjórnin hefur gefizt upp
við að framkalla viðunandi við-
brögð við því bréfi.
2 Evrópusambandið ræður þvíað sjálfsögðu sjálft hvort það
svarar bréfum og á hvaða veg
það svarar – ef það svarar.
Ríkisstjórnin á því bara einnkost til að bjarga eigin
skinni.
Hún verður að senda nýttbréf til ESB, þar sem aðild-
arumsókn Íslands er afturkölluð
með formlegum hætti á þann
veg að ekki verði misskilið.
Með því móti er ljóst að lög-lega kjörin stjórnvöld hér
hafa afturkallað aðildarumsókn
Íslands á þann veg að hugsanleg
ný aðildarsinnuð ríkisstjórn
gæti ekki með nokkrum hætti
tekið þráðinn upp á ný eins og
ekkert hafi í skorizt, jafnvel
þótt Brussel væri tilbúin í þann
leik.
Eftir að ríkisstjórnin hefur áannað borð tekið þá
ákvörðun að fara ekki með mál-
ið aftur inn í þingið er þetta
eina leiðin til þess að ljúka mál-
inu.“
Styrmir
Gunnarsson
Til að halda andliti
STAKSTEINAR
Sokkaverksmiðjan Trico á Akranesi
hefur verið úrskurðuð gjaldþrota, en
úrskurður héraðsdóms Vesturlands,
þar að lútandi, var kveðinn upp hinn
30. júní sl.
Fyrirtækið var stofnað árið 1952
og framleiddi sokka upp frá því en
einnig annan fatnað. Núverandi að-
aleigandi fyrirtækisins hóf störf þar
árið 1992. Fjögur stöðugildi voru hjá
fyrirtækinu þegar það fór í þrot.
Í Trico voru einkum framleidd
hitaþolin föt fyrir stóriðjur en þau
voru einnig seld erlendis. Slökkvilið
og stóriðjur á Íslandi voru stórir við-
skiptavinir Trico en einnig fékkst
fyrirtækið við smærri verkefni í
samstarfi við utanaðkomandi hönn-
uði, en íþróttafélög voru einnig við-
skiptavinir verksmiðjunnar.
Styrkur fyrirtækisins gegnum ár-
in var í hinum sértækari vörum, en
fyrirtækið gat verr sótt inn í stór-
markaði, þar sem innfluttar vörur
eru allsráðandi.
Ingi Tryggvason hrl., skiptastjóri
skiptabús Trico, segir búið einungis
samanstanda af fasteign og vélum til
sokkagerðarinnar, en hann segist
ekki vita til þess að rekstur fyrir-
tækisins haldi áfram.
Talsmenn Trico vildu ekki tjá sig
við Morgunblaðið um ástæður gjald-
þrotsins og framhaldið. jbe@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Akranes Sokkaverksmiðjan Trico
var staðsett á Akranesi í 63 ár.
Trico ehf.
úrskurðað
gjaldþrota
Rótgróið fyrir-
tæki á Akranesi
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir al la , al l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18
RAFMAGNSVERKFÆRI
Ljós eik
1.655 kr. m2
Rafhlöðuborvél 12V
2 gíra Liion rafhlaða kr.
11.990
Rafhlöðuborvél 14,4V
2 hraða NI-CD kr.
12.990
Rafhlöðuborvél 18V
2 gíra LiIon rafhl kr.
13.990
Bor / brotvél með
höggi SDS Plus 800W
með meitlum og borum kr.
13.990
950W 125mm slípirokkur kr.
6.990
255mm Gráðukúttsög 1880W kr.
23.900
Borðsög með
254mm blaði 1500W kr.
37.990
Bor / Brotvél 1200W SDS
MAX 0-500 mín kr.
23.990
Mikið úrval frá Maxpro
Veður víða um heim 21.7., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 7 súld
Akureyri 8 skýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 10 skúrir
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 22 léttskýjað
Stokkhólmur 15 skúrir
Helsinki 18 skýjað
Lúxemborg 30 heiðskírt
Brussel 23 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 15 skýjað
London 25 heiðskírt
París 30 léttskýjað
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 22 léttskýjað
Berlín 27 léttskýjað
Vín 34 léttskýjað
Moskva 16 þrumuveður
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 37 léttskýjað
Barcelona 30 heiðskírt
Mallorca 32 heiðskírt
Róm 32 léttskýjað
Aþena 32 heiðskírt
Winnipeg 21 léttskýjað
Montreal 18 þrumuveður
New York 28 heiðskírt
Chicago 26 léttskýjað
Orlando 32 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:03 23:07
ÍSAFJÖRÐUR 3:37 23:42
SIGLUFJÖRÐUR 3:19 23:26
DJÚPIVOGUR 3:25 22:43
Umferð um Hvalfjarðargöng í júní
sl. sló nýtt met. Alls fóru 225.695
ökutæki um göngin og hafa þau
aldrei verið fleiri í júní frá því að
göngin voru opnuð, samkvæmt
frétt frá Speli ehf.
Umferðin jókst um 4,5% í júní nú
samanborið við júní í fyrra. Það er
nokkurn veginn sama hlutfalls-
aukning og í umferð á hringveg-
inum. Spölur ehf. bendir á að Vega-
gerðin hafi upplýst að umferð á
hringveginum í júní hafi aldrei
mælst meiri en í ár og að hún hafi
aukist um 4,6% frá því í júní í fyrra.
Umferðin jókst mest á Austurlandi
en minnst á Suðurlandi. Þá er vakin
á því athygli á vef Vegagerðarinnar
að Gullni hringurinn svonefndi
komi við sögu umferðartalningar á
hringveginum á Suðurlandi. Þrátt
fyrir tal um fjölgun ferðamanna
birtist það ekki í umferðartölum í
þeim landshluta. gudni@mbl.is
Nýtt met var slegið í umferð um Hvalfjarðargöng í júní s.l.