Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 Sigurður Ægisson Siglufjörður Ferðamenn í hvalaskoðun á Níels Jónssyni EA 106, sem gerður er út frá Hauganesi við Eyjafjörð, fengu heldur betur óvæntan glaðning á dögunum þegar fjórar andarnefjur allt í einu blöstu við augum þeirra mitt á milli Grenivíkur og Hauga- ness. Um er að ræða afar sjaldgæfan viðburð enda eru þetta hvalir sem alla jafna er ekki að finna á grunn- slóð. Fyrir nokkrum árum létu nokkrar andarnefjur þó sjá sig á Pollinum við Akureyri og héldu þar til í einhvern tíma. Ekki er vit- að um ástæðu þess en jafnvel talið að þær hafi verið á flótta undan há- hyrningum eða verið sjálfar á eftir einhverju tilteknu æti og endað þar inn frá. Andarnefjan getur orðið rúm- lega 9 metra löng en fullorðnir tarfar við Ísland eru að meðaltali 8,4 metra langir og kýr 7,2 metra. Oftast er hún grásvört eða dökk- brún að ofanverðu en nokkuð bjartari undir. Með aldrinum verða sum dýranna mjög ljós um allan skrokkinn og allt að því hvít á enni og trýni. Andarnefjan lifir nær eingöngu á smokkfiski. Í Noregshafi tekur hún aðallega dílasmokk en hér við land einnig beitusmokk. Þó mun eitt- hvað vera étið af síld líka, rækju og krossfiski. Andarnefjan kann best við sig á djúpslóð, og heldur sig oftast úti á opnu hafi utan landgrunnsmarka, þar sem dýpið er 1.000 m eða meira. Hún er afar félagslynd og nálgast mjög gjarnan skip og báta. Þá er hún einnig þekkt fyrir ein- stakt trygglyndi og ræktarsemi við eigin kynstofn, er m.a. felst í því, að hún yfirgefur ekki særðan fé- laga, fyrr en hann er dauður. Not- færðu veiðimenn sér óspart það eðli hennar forðum. Raunar á þetta atferli, aðstoð í neyð, við margar aðrar hvalategundir líka. Andarnefjan er að mestu far- hvalur eins og aðrir tannhvalir flestir. Heimkynnin eru Norður- Atlantshafið og Íshafið, hérna megin. Þó er hún fremur sjaldgæf í Norðvestur-Atlantshafi. Hún finnst allt umhverfis land hér á sumrin en mun þó vera algengust í hafinu á milli Íslands og Jan Mayen og fara allt að ísröndinni og jafnvel nokkra kílómetra undir hana. Talið er að fullorðin karldýr leiti alla jafna norðar en aðrir einstaklingar teg- undarinnar. Var friðuð árið 1977 Þegar tekur að hausta fer and- arnefjan hins vegar suður á bóg- inn. Vetrarstöðvarnar eru mestan partinn á hafsvæðinu milli New York og Miðjarðarhafs en and- arnefjur fara þó allt suður til Grænhöfðaeyja, hjá vesturströnd Afríku. Þó má vera að ákveðinn hluti, eða einangraðir stofnar, fari aldrei eins langt suður á bóginn og aðrir heldur dvelji í hafinu milli Ís- lands, Noregs og Færeyja. Árið 1977 var andarnefjan friðuð og er svo enn. Andarnefjur heimsækja Eyjafjörð  Um er að ræða afar sjaldgæfan viðburð enda eru þetta hvalir sem alla jafna er ekki að finna á grunnslóð  Andarnefjan er afar félagslyndur hvalur  Heldur suður á bóginn þegar hausta tekur Ljósmynd/Bernódus Óli Kristinsson Heimsókn Mynd af andarnefjum fram undan Grenivík 17. júlí síðastliðinn. Ferðamenn í hvalaskoðun á Níels Jónssyni EA 106, sem gerður er út frá Hauganesi, fengu þarna óvæntan glaðning. Ljósmynd/Sigurður Ægisson Fögur dýr Kajakræðari með tveimur af andarnefjunum sem voru á Akureyrarpolli 30. ágúst 2008. Hann gerði sér far um að elta þær og róa með þeim, eftir því sem hann gat. Ekki var annað að sjá en þær létu það sér vel líka. Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Spánarsnigillinn er líklegur til að gera vart við sig þegar líða tekur á sumarið, að sögn Erlings Ólafssonar, skordýrafræðings hjá Náttúrufræði- stofnun Íslands. Ekkert hefur frést af ferðum hans í sumar, enn sem komið er. Aðspurður hvort þess megi vænta að spánarsnigill verði að verulegri vá fyrir íslenskan gróður segir hann það ólíklegt. „Hann var með gott skot síð- asta sumar og ég átti því von á að þetta yrði hressilegt núna í sumar. En kalda vorið hefur haft einhver áhrif og kýlt hann til baka,“ segir Erling. Uppgangur snigilsins hefur verið hægur hér á landi eftir að hann gerði sig fyrst heimakominn árið 2003. „Hann er ekki að fóta sig neitt mjög vel hérna miðað við það sem við sjáum í Færeyjum,“ segir Erling og segir að spánarsnigill sé ekki norræn tegund og þrífist betur í jafnara veð- urfari eins og í Færeyjum. Snigillinn er að minnka Snigillinn hefur aðlagast íslensku umhverfi sínu með því að skreppa saman í stærð. „Afkomendur hans eru að minnka, enda styttra vaxtar- sumar en í Suður-Evrópu.“ Hefð- bundin lengd snigilsins er allt að 15 cm. Spánarsnigillinn ræðst á laufblöð plantna og étur þær á endanum upp til agna. Hann gerir engan greinar- mun á plöntum þó honum þyki bragð- miklar og lyktsterkar plöntur bestar, til dæmis kryddplöntur. Spánarsnigillinn væntanlegur á ný  Ekki frést af honum enn  Líklegur seinna í sumar  Kalda vorið hafði áhrif Snigill Óvætturinn spánarsnigill hefur ekki gert vart við sig enn. Hann er þó væntanlegur þegar líða fer á sumarið og gæðir sér þá á gróðrinum. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson Í þessari viku spáir Veðurstofan hægri breytilegri átt um allt land og 6 til 14 gráða hita, hlýjast á Suð- urlandi. Norðanlands verði hitinn milli 5 og 10 stig. Spáð er skúrum með þurrkum á milli um land allt. Veðurfræðingur á Veðurstofu Ís- lands sagði spána ekki afgerandi fyrir næstu viku, „en það eru vís- bendingar um að það sé aðeins að snúast þetta veðurlag sem hefur verið ríkjandi undanfarnar vikur“. Kalt loft norðan af landinu hefur streymt yfir okkur undanfarið en nú er spáð sunnanátt með mikilli rigningu sunnanlands næsta mið- vikudag. „Það er kalt loft yfir landinu og við erum svolítið föst í því. Þetta verða síðdegisskúrir um allt land en hlýjast sunnanlands, þess vegna ágætt útivistarveður. Það þarf bara að vera við öllu búinn, taka með sér regnfötin og sólarvörn- ina.“ „Regnföt og sólar- vörn“ í vikunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.