Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú færist nær og nær markmiði þínu eftir því sem líður á árið. Leyfðu hlutunum að hafa sinn gang. Samningar virðast lofa góðu. 20. apríl - 20. maí  Naut Í dag er gott að stunda viðskipti og gera fjármálasamninga. Þitt framlag skiptir miklu máli, ekki einu sinni reyna að efast um það. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Safnaðu að þér vinum sem auðga líf þitt með skemmtilegum minningum og já- kvæðum straumum. Sýndu ástvini í æðis- kasti umburðarlyndi og gæsku. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Dagurinn í dag tengist málefnum fjöl- skyldunnar og einhverju heimilislegu. Vertu þú sjálf/ur því annars fer allt úr böndunum hjá þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Reyndu að nálgast verkefni þín í vinnunni með skipulögðum hætti. Farðu í gegnum geymsluna og hentu öllu því sem umfram er. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú reynir á þolinmæði þína því ósann- gjarnar afsakanir verða hafðar uppi í þinn garð. Spurðu sjálfa/n þig að því hvort þú sért að gera það sem þú viljir vera að gera í lífinu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Rifrildi út af einhverju sem þú deilir með öðrum gæti orðið illskeytt. Gættu þess bara að ofmetnast ekki og leyfðu samstarfs- mönnum þínum að njóta með þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þig langar til að eyða deginum í draumalandi en hagsýna hlutanum af þér finnst það tímaeyðsla. Ekki láta það eyði- leggja fyrir þér ef eitthvað smávegis bjátar á, allt er samt að ganga upp. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Sérðu pappírshrúguna á borðinu þínu? Þig vantar ekki einkaritara heldur klukkutíma í einrúmi og bunka af spjald- skrám og bréfamöppum. Raunverulegar sprengingar eru einnig hugsanlegar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Reyndu að skoða hugmyndir ann- arra með opnum hug og kannaðu vandlega hvort þú getir ekki eitthvað af þeim lært. Stattu vörð um heilsu þína og hamingju. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þetta er góður dagur til að leggja upp í langferð bæði í bókstaflegum og tákn- rænum skilningi. Skrifaðu lista yfir kostina sem þú vilt að elskhuginn hafi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú nýtur þess að vera með vinum þín- um í dag. Kannski vonaðist þú eftir kossi und- ir mistilteini. Sú von gæti enn ræst. Bragi V. Bergmann gaf út bók-ina „Limrur fyrir landann“ árið 2009 og vinnur nú að nýrri bók, „Limrur fyrir land og þjóð“. Hann skrifar sem áður inngang að sínum limrum og gaf mér leyfi til að birta tvær sem verða í bók- inni. Sú fyrri ber yfirskriftina „Tímans tönn“: „„Í birkilaut hvíldi ég bakkanum á. Þar bunaði smálækjar spræna.“ Þannig hefst kvæði Steingríms Thorsteinssonar (1831-1913), Draumur hjarðsveinsins. Það var skemmtilega kveðið á sínum tíma og erfitt að feta í þau fótspor, enda reyni ég það ekki. En tímans tönn lætur ekkert ósnortið, ekki einu sinni lækinn! Eða eins og segir í limrunni: Friðbjörg er félagsrækin, á Face-inu kemur spræk inn. Áköf með hinum addar þar vinum en líkar samt best við like-in.“ Yfirskrift seinni limrunnar er „Adam og Eva“: „Ég var í mesta sakleysi að skoða brauðuppskrift og rakst þá á yndislegt sagnorð sem ég bókstaflega varð að setja í limru. Allt í einu hvarf hugur minn úr eldhúsinu og alla leið aftur í sköpunarsögu mannsins. Samkvæmt bókmenntafræðinni hafa allar sögur, upphaf, fléttu og ris – og þarna hvarf ég sem sagt á augabragði úr eldhúsinu og alla leið í ris sköpunarsög- unnar. Við erum stödd í ald- ingarðinum Eden þar sem Adams er fyrst freistað. Þótt það hafi ekki farið hátt, kom sú freisting langt á undan eplinu fræga sem síðar reyndist brott- rekstrarsök. Limran er svona: Um Adam fór Eva að efast, svo æstur og lét ekki sefast er blaðlaus stóð Eva, hann byrjað́ að slefa. Og jafnaldrinn – hann fór að hef- ast!“ Helgi Seljan sendi mér þessar vísur: Hýsir margan hrokagikk hátimbrað er ESB. Ennþá gerir þjóðum grikk, Grikkjum klafann láta í té. Eykur gleði íþrótt forn, yrkingarnar gleðja menn. Víst ég þakka Vísnahorn, verði þannig lengi enn. Gylfi Þorkelsson hefur gaman af orðaleikjum: Dettinn ertu Dettifoss, dettur um máða steina. Það er margt sem þjakar oss, þú veist hvað ég meina. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af tímans tönn og Adam og Evu Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „NOTAÐU HEILANN! STUNDUM TEL ÉG AÐ FAÐIR ÞINN SÉ GÁFAÐRI EN ÞÚ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að verða villt saman. SLUUURP HVERNIG ER HEITA SÚKKULAÐIÐ ÞITT? FÍNT. OG ÞITT? HAFMEYJURNAR ERU EKKI EINS OG ÞÆR VORU Í GAMLA DAGA... KONUR KARLAR NIÐURHAL STREYMI Stefnuljósafælni íslenskra öku-manna hefur löngum verið Vík- verja ráðgáta. Hann á bágt með að skilja hvers vegna bílstjórum er í nöp við að gefa stefnuljós og hefur velt fyrir sér hvort þetta beri vitni ein- staklingshyggju. Íslenskir ökumenn líti svo á að það komi öðrum öku- mönnum ekki við hvert þeir séu að fara. Honum hefur einnig dottið í hug að þetta gæti snúist um friðhelgi einkalífsins. Íslendingum finnist sjálfsagt að opinbera sín innstu leyndarmál á félagsmiðlum á borð við Facebook, en það sé óþarfa hnýsni að fara fram á að þeir gefi upp fyrirfram hvort þeir hyggjast fara út úr hring- torgi eða hringsóla þar til eilífð- arnóns, beygja fyrir horn eða einfald- lega skipta um akrein. x x x Í Morgunblaðinu í gær er sagt fráþví að forvarnadeild VÍS hafi kannað notkun ökumanna á stefnu- ljósum í hringtorginu í Fjarð- arhrauni. Var niðurstaðan sú að 53% ökumanna gáfu ekki stefnuljós. Hlut- fallið var 66% í sambærilegri könnun fyrir tveimur árum þannig að eitt- hvað virðist andstaðan við stefnu- ljósin vera að minnka. Víkverji vill koma því á framfæri að það er mis- skilningur að stefnuljós séu innrás í friðhelgi einkalífsins. Honum gæti ekki staðið meira á sama um hvert för mannsins í næsta bíl er heitið. Hann er hins vegar á því að umferðin myndi stórbatna ef andstæðingar stefnuljósa fyndu sér annað baráttu- mál og færu að gefa stefnuljós. x x x Lesendur Víkverja þekkja senni-lega fæstir Rob Gronkowski. Hann leikur ruðningsbolta fyrir liðið New England Patriots, gengur undir gælunafninu Gronk og þykja fáir standa honum á sporði. Gronk er ekki bara íþróttamaður, hann skrifar líka bækur. Þær fjalla um hann sjálf- an. Fyrr í mánuðinum kom út bókin It’s Good to Be Gronk eða það er gott að vera Gronk. Í viðtali sagði Gron- kowski að í bókinni væri engu logið og því vildi hann vera heiðarlegur í svörum sínum: „Ég ætla ekki að ljúga, ég er aðeins búinn að lesa 80% af bókinni.“ Eins gott að hann hafði meðhöfund að bókinni til að skrifa kaflana, sem hann hefur ekki lesið. víkverji@mbl.is Víkverji Hallelúja. Lofa þú Drottin, sála mín. Sálmarnir 146:1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.