Morgunblaðið - 22.07.2015, Page 17

Morgunblaðið - 22.07.2015, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 Þessi vara er laus við: Mjólk Glúten Soja Rotvarn- arefni 10 0% NÁ TTÚRULEGT •100% NÁTTÚRUL EG T • Fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is P R E N T U N . I S UPPLIFÐUMUNINN! Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt öðrum öflugum góðgerlum Oft spurt? Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð- gerlarnir svona vel og fljótt á marga meltinga- erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang, uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl. Svar Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana. Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum, vinnusamur og stöðugur. Notkun 2 hylki á morgnana á fastandi maga geta gert kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari. - Prófaðu og upplifðu muninn Kristján Jónsson kjon@mbl.is Rúmtak hafíss á norðurheimskautssvæðinu jókst um þriðjung eftir óvenju kalt sumar árið 2013, segir í upp- færðri skýrslu vísindamanna í Nature Geoscience. Þeir studdust nú við nýjustu gögn, 88 milljón mælingar frá Cryosat-gervihnettinum evrópska sem notaður er til að mæla hafísþykkt. Í frétt BBC segir ennfremur að vöxt- urinn hafi haldið áfram í fyrra og hafi náð að bæta að fullu upp ísinn sem hvarf árin þrjú á undan. Fram kemur að rúmtakið minnkaði um 14% á árunum 2010 til 2012. Vísindamennirnir segja að nýju tölurnar bendi til þess að ísinn sé viðkvæmari fyrir hitasveiflum en áður hafi verið talið. En sumarið 2013 hafi verið und- antekning, loftslagsbreytingar muni valda því að ísinn muni minnka á næstu áratugum. Aðalhöfundur skýrslunnar, Rachel Tilling hjá Lund- únaháskóla, segir að hugað hafi verið að margvíslegum breytum sem stýra loftslagi við gerð skýrslunnar. Hún nefnir magn ofankomu, vindafar og bráðnunartíma að sumarlagi. Í ljós hafi komið að mestu skipti fyrir rúmtak íssins hve langur bráðnunartíminn að sumrinu var. Sum- arið 2013 hafi verið það kaldasta á fimm ára tímabilinu sem rannsakað var. „Langtímaþróun rúmtaks íssins sýnir niðursveiflu og til langs tíma hækkar hitinn á norðurhjara og þessi nið- urstaða gefur okkur ekki tilefni til að halda annað – okk- ur sýnist að aðeins hafi verið um að ræða eitt ár með frá- viki,“ segir Tilling. Vaxandi ís við norðurskautið  Rúmtak hefur aukist um þriðjung frá 2013 og orðið jafn mikið og fyrir árið 2010 Minni útbreiðsla » Kuldinn sumarið 2013 olli því að meira varð eftir af margra ára ís við Norðvestur- Grænland en ella, bráðn- unardögum fækkaði. » Gervihnattamyndir hafa sýnt að útbreiðsla hafíss á svæðinu hefur minnkað um 40% frá árinu 1980. Kona syrgir ástvin í tyrknesku borginni Gaziantep í gær en þá var 31 fórnarlamb sjálfsmorðsárásar á sunnudag í Suruc, rétt við sýrlensku landamærin, borið til grafar. Tyrknesk stjórnvöld saka liðsmenn Ríkis ísl- ams, IS, um að hafa skipulagt hryðjuverkið og hafa nú hert mjög eftirlit við landamærin að Sýrlandi. AFP Fórnarlömb hryðjuverks borin til grafar í Gaziantep Tyrkir herða landamæragæslu Gríska ríkið reynir nú að selja um 3.000 óbyggðar smá- eyjar til að afla fjár í tóman rík- iskassann. Marga dreymir auðvitað um að eiga lítinn, sólbakaðan einka-sælureit, umgirtan bláu Miðjarðarhafinu. En verðið er hátt. Bandaríski auðkýfingurinn Warren Buffett, einn af ríkustu mönnum heims, hefur nú keypt eina, Agios Thomas, sem er skammt frá Aþenu. Verðið var 15 milljónir evra, um 2,2 milljarðar ÍSK, að sögn þýskra fjölmiðla. Eyjan er gróðurlítil, um hálfur ann- ar ferkílómetri að stærð (heldur minni en Viðey), þar er ekki raf- magn og engin vatnsveita. kjon@mbl.is Buffett kaupir óbyggða smáeyju nálægt Aþenu Warren Buffett GRIKKLAND Samtök atvinnu- knattspyrnu- manna, FIFPro, hafa látið í ljós áhyggjur af því að unglingar frá Líberíu hafi ver- ið sendir til Laos til að spila fót- bolta en í reynd séu þeir með- höndlaðir eins og þrælar. Samtökin hvetja Alþjóðaknatt- spyrnusambandið, FIFA, til að tryggja að öll félög fari að reglum, einnig félög í Asíu. Kesselly Kam- ara, 14 ára strákur, sagði BBC að honum hefði verið smyglað til Laos. Hann hefði verið þvingaður til að undirrita sex ára samning en aldrei fengið kaup og verið látinn sofa á gólfinu á leikvangi félagsins, Champasak United. Margir fátækir foreldrar hafa borgað farið fyrir syni sína til Laos. kjon@mbl.is Fótboltaunglingar sendir í þrældóm? Kesselly Kamara AFRÍKA Kristján Jónsson kjon@mbl.is Atlantshafsbandalagið, NATO, stendur nú fyrir umfangsmiklum heræfingum í vesturhluta Úkraínu, skammt frá landamærunum að Pól- landi. Alls taka um 1.800 hermenn þátt í æfingunum og eru þeir frá 18 ríkjum, einkum NATO-ríkjum eða samstarfsríkjum bandalagsins, að sögn Dagens Nyheter. Rússar hafa fordæmt æfingarnar. Í yfirlýsingu rússneska utanríkis- ráðuneytisins um helgina var sagt að æfingunum væri greinilega ætlað að sýna með skýrum hætti að NATO „styddi skilyrðislaust stefnu stjórn- valda í Kænugarði í Austur-Úkra- ínu“. Bætt var við að afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar. Æfingarnar eru nefndar Rapid Trident 2015 og standa í tvær vikur, langt er síðan byrjað var að skipu- leggja þær. Eftir að Rússar innlim- uðu Krímskaga í fyrra hafa bæði Bandaríkin og NATO aukið með ýmsum hætti viðbúnað sinn í aust- anverðri álfunni. Þannig hafa Bandaríkjamenn sent nokkuð af her- flugvélum og þungavopnum til Eystrasaltsríkjanna auk nokkur hundruð hermanna. Bandaríkin hafa hins vegar ekki viljað senda vopn til Úkraínu sem er utan NATO. Í Eystrasaltsríkjunum og Póllandi ríkir ótti við að stjórn Vladímírs Pút- íns Rússlandsforseta ætli að leggja Austur-Úkraínu undir sig. Pútín muni síðan reyna að endurheimta fleiri svæði sem eitt sinn heyrðu und- ir Sovétríkin gömlu eða áhrifasvæði þeirra. Sýna flaggið í Vestur-Úkraínu  Rússar for- dæma heræfingar á vegum NATO AFP Forvitnir Bandarískir hermenn í úkraínskum brynvagni á sunnudag. Hisao Tanaka, stjórnarformaður og forstjóri japanska tæknirisans Tos- hiba, sagði af sér í gær eftir að ljóst var að honum hafði verið kunnugt um bók- haldsfalsanir sem ýktu hagnað fyr- irtækisins í nokkur ár um sem svarar lið- lega 1,2 millj- örðum dollara. Óháð nefnd rannsakaði mál- ið. „Ég álít að þetta sé mesta áfall sem fyrirtækið hefur orðið fyrir í 140 ára sögu sinni,“ sagði Tanaka eftir að hafa hneigt sig djúpt til að sýna iðrun. Varastjórnarformaður Toshiba og fyrirrennari Tanaka, Norio Sasaki, sagði einnig af sér. Fyrir fjórum árum komst upp að stórfyrirtækið Olympus hafði á 13 árum falið 1,7 milljarða dollara tap með bókhalds- brellum. kjon@mbl.is Toshiba falsaði bókhaldið  Forstjórinn sagði af sér í gær Hisao Tanaka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.