Morgunblaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta fer allt í gegnum heimasíð-
una 6pmyourlocaltime.com. Þar má
finna viðburði í galleríum og list-
húsum sem allir eiga sér stað klukk-
an 18 að staðartíma,“ segir saxófón-
leikarinn Óskar Guðjónsson en
hann mun koma fram í Mengi í dag
klukkan 18 ásamt Skúla Sverrissyni
undir yfirskriftinni After Silence.
Tvímenningarnir hafa unnið saman
í meira en áratug og saman hafa
þeir gefið út tvær plötur, The Box
Tree og After Silence og hafa þær
báðar hlotið lof gagnrýnenda og
meðal annars unnið til Íslensku tón-
listarverðlaunanna. Þriðja plata
þeirra er nú í bígerð.
Flytja lög af báðum plötum
Tónleikarnir eru hluti af „6 PM
YOUR LOCAL TIME“, nettengdu
verkefni sem reiðir sig á tækni og
stöðug viðbröð áheyrenda. Margir
viðburðir á vegum „6PMYLT“ eiga
sér stað á sama tíma, sömu kvöld-
stund í galleríum og fleiri stöðum
tengdum nútímalist víðsvegar um
heiminn. Tengipunkturinn er ver-
aldarvefurinn þar sem myllumerkið
#6pmeu verður notað og tengir
verkefnin saman á Instagram,
Twitter og heimasíðu verkefnisins.
Myndunum verður einnig streymt
stöðugt á sýningu Castle of Brescia
í Brescia á Ítalíu. Mengi kemur
einnig til með að streyma tónleik-
unum í beinni útsendingu af You-
Tube-rás sinni.
„Gestir geta átt von á tónlistinni
okkar Skúla á þessum tónleikum.
Músíkin er sérstök á sinn hátt, hún
er mjög persónuleg fyrir okkur.
Annars er ef til vill best að segja
sem minnst um þá hlið tónlistar-
innar og leyfa fólki að finna það
sjálft hvað músíkin gerir fyrir það.
Við komum til með að flytja tónlist
af báðum plötunum okkar á tónleik-
unum,“ segir hann.
Samstarfið verið einkar ljúft
Eins og áður segir hafa Óskar og
Skúli unnið saman nokkuð lengi og
kveður Óskar samstarfið hafa verið
einkar ljúft.
„Það sem er svo skemmtilegt við
músíkina er að hún er stöðugt að
koma manni á óvart. Ég held að því
meira sem þú vinnur með ein-
hverjum því áhugaverðari verður
ákveðin samvinna og allt samspil
dýpra og nánara. Það myndast ein-
hver tenging á milli manna sem
maður finnur mjög vel fyrir. Stund-
um er það einnig eins og ákveðnir
telepatískir hlutir styrkist og stund-
um kemur það á óvart hversu sam-
stiga maður verður í hugmynda-
sköpun. Það á líka sérstaklega við
um spunakaflana. Það er ein-
staklega gaman að fá að þróa með
sér einhvers konar tungumál sem
verður alltaf nánara og skemmti-
legra að nálgast í hvert skipti,“ seg-
ir hann.
„Það má segja að þetta dúó okkar
Skúla hafi tekið sín fyrstu skref
þegar ég var að gera mína fyrstu
plötu árið 1997 en Skúli sá þá um
upptökustjórnun. Eitt lagið á þeirri
plötu var einmitt dúó á milli okkar
og eftir þá plötu ræddum við hvort
okkur langaði að halda áfram að
þróa þessa hlið. Við gerðum það og
fyrsta platan okkar kom út árið
2002. Síðan bjuggum við í sitt hvoru
landinu og það var ekki fyrr en 2012
sem við héldum áfram með sam-
starfið, þá kom síðari platan út.
Núna erum við á leiðinni til Ítalíu
þar sem við erum að fara að spila á
frekar stórri hátíð 31. júlí við
Gardavatn. Tónleikarnir í Mengi
eru því ákveðinn liður í því að und-
irbúa okkur fyrir þá tónleika,“ segir
Óskar.
Ný plata væntanleg
Óskar segir það vissulega ákveðið
púsluspil að ná að hittast og spila
saman en það sé vel þess virði.
„Þetta snýst ekki alltaf bara um
það að spila saman. Stundum er
betra að hittast til þess að tala sam-
an um hvað sé efst á baugi hjá okk-
ur. Mér finnst það oft ekki síður
mikilvægt þegar kemur að tónlist-
arsköpun, það er að segja að þekkja
innri hugarheima samstarfsmanna
sinna og vita svolítið hvað fær hjart-
að til að slá. Það er oft einhver sam-
eiginlegur grunnur þar sem býr til
hliðstæður í músíkinni,“ segir hann.
Skúli hefur mikið unnið með Ólöfu
Arnalds að undanförnu auk þess
sem Óskar hefur verið að túra með
AdHd. Óskar segir nýja plötu þó
væntanlega.
„Skúli var upptökustjóri á plöt-
unni hennar Ólafar Arnalds og er
búinn að túra mikið með henni og
ég er búinn að vera að túra með
AdHd. Til þess að láta hlutina ger-
ast, þegar maður er í nokkrum
verkefnum, verður maður bara ein-
faldlega að taka frá tíma fyrir hvert
verkefni fyrir sig. Við Skúli höfum
hist til æfinga og til þess að und-
irbúa næstu plötu, gerðum það
slatta á síðasta ári. Sú plata er
væntanleg en ég á þó ekki von á því
að hún komi út fyrr en á næsta ári,“
segir Óskar að lokum.
Alnetið sem tengipunktur nútímalistar
Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson koma fram á tónleikum í listhúsinu Mengi í dag klukkan 18
Tvímenningarnir koma fram á stórri hátíð á Ítalíu í lok mánaðarins auk þess sem plata er í bígerð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samvinna Skúli og Óskar hafa gefið út tvær plötur saman, After Silence og The Box Tree. Tvímenningarnir munu flytja efni af báðum plötum í dag.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Mér finnst ofboðslega gaman að
stíga út fyrir þægindarammann og
inn í óhefðbundna tónleikasali og
syngja fyrir áhorfendur,“ segir
Anna Jónsdóttir sópran en hún hef-
ur lagt land undir fót og haldið tón-
leika víðs vegar um landið á bæði
hefðbundnum og einnig óhefð-
bundnum stöðum. Tónleikaferðin
nefnist Uppi og niðri og þar í miðju.
Í kvöld verður Anna með tónleika
í Reykjahlíðarkirkju í Mývatnssveit
og á morgun, fimmtudag, kemur hún
fram á Hallarflöt í Dimmuborgum.
Hún syngur íslensk þjóðlög án und-
irleiks og segir viðtökurnar hingað
til hafa verið góðar.
„Ég byrjaði á þessu árið 2010 og
fyrir tveimur árum gaf ég út diskinn
VAR en hann hefur að geyma ís-
lensk þjóðlög, hljóðrituð í Akranes-
vita og í lýsistanki í Djúpavík en það
er alveg einstakur staður fyrir tón-
leika og upptöku á tónlist. Lögin á
hljómdisknum VAR eru sungin án
meðleiks að undanskildum tveimur
lögum þar sem Svavar Knútur
Kristinsson leikur með á harmoníum
en annars er þetta bara ég í einstöku
rými sem gefur söngnum skemmti-
legan blæ.“
Áhorfendur syngja með
Meðal staða sem Anna hefur
sungið á og mun syngja á má nefna
Klettshelli í Vestmannaeyjum sem
er einungis hægt að komast að frá
sjó, Kirkjuna í Dimmuborgum, verk-
smiðjuna á Hjalteyri, Stefánshelli í
Borgarfirði, Grímsey, Vatnshelli á
Snæfellsnesi, Akranesvita, Garð-
skagavita, Djúpavík, snjóflóðagarð-
inn á Siglufirði og fleiri staði.
„Við þessar aðstæður, þar sem
fólk þarf oft að standa, og með því að
syngja án meðleiks, skapast sérstakt
andrúmsloft og náin tengsl við
áheyrendur. Það getur líka orðið dá-
lítið kalt á sumum stöðum og þá fæ
ég áhorfendur til að syngja með,“
segir Anna og fullvissar blaðamann-
inn um að íslenskir áhorfendur séu
alls ekki feimnir að ljá henni lið og
taka undir.
„Það taka allir vel undir og þá fær
fólk smá hita í skrokkinn en lögin
ættu flestir að þekkja eins og
Krummi svaf í klettagjá og önnur sí-
gild íslensk þjóðlög.“
Syngur á óhefðbundnum stöðum
Tónleikar Anna hélt tónleika í lýsistanki í Djúpavík og hlaut góða dóma.
Tónleikaferðin
hálfnuð en nóg
eftir hjá Önnu
Bátur Í Vestmannaeyjum þurfti að fara á bát á tónleika Önnu.
22. júlí Reykjahlíðarkirkja kl 20:30
23. júlí Kirkjan-Dimmuborgir kl. 20:30
24. júlí Smiðjuhátíð Seyðisfirði kl. 14:00
25. júlí Smiðjuhátíð Seyðisfirði kl. 14:00
26. júlí Sundhöllin Seyðisfirði kl. 14:00
28. júlí Garðskagaviti kl. 20:00
1. ágúst Lýsistankurinn Djúpavík, 30 ára afmæli, kl. 21:30
2. ágúst Hótel Djúpavík, 30 ára afmæli, kl. 14:00
Dagskrá tónleika Önnu
UPPI OG NIÐRI OG ÞAR Í MIÐJU