Feykir - 17.04.1985, Síða 2
2 FEYKIR 8/1985
Ragnar Eiríksson:
t umræður
Uppgræðsla á heiðum
vegna Blönduvirkjunar
Nokkrar athugasemdir um jramkvæmd
Um fátt var meira deilt á s.l. ári
en um uppgræðslu og upprekst-
ur á Eyvindarstaða- og
Auðkúluheiði. Eru skoðanir
manna verulega skiptar á flestu
sem þar hefur verið gert og
áætlað er að gera. Skoðanir
bænda og vísindamanna stang-
ast á um mikilvæg mál.
Þarna er áætlað að græða upp
nærri 3000 hektara lands í stað
þess sem tapast vegna Blöndu-
virkjunar. Byrjað var á þessu
verki 1981 og hefur verið unnið
að því síðan. A s.l. sumri var
dreift um 7000 pokum af áburði
auk fræs og var verkið
framkvæmt með flugvél Land-
græðslunnar, Páli Sveinssyni.
Einnig var einhverju magni
dreift með jarðbundnari tækj-
um. Samhliða áburðardreifing-
unni hafa verið gerðar margvís-
legar rannsóknir af starfsfólki
Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins (RALA). Gróðurmæl-
ingar ýmiskonar, athuganir á
áhrifum beitar og friðunar og
athuganir á rafgirðingum er
nokkuð af því sem rannsakað
hefur verið. Niðurstöður þessara
rannsókna hafa birst í skýrslum
frá stofnuninni (Fjölrit RAI..A
nr. 94, 105 o.fl.).
Það sem mest hefur verið deilt
um er heildarbeitarþol heiðanna
og það hvort hross skuli vera eða
fara af heiðinni.
Eg hef ekki heyrt eða séð
gagnrýni á þær framkvæmdir
sem þarna er verið að gera eða
eru áformaðar, nema hvað
margir telja þetta brambolteina
endemis hringavitleysu og í
samræmi við framkvæmd raf-
orkumála á Islandi.
Mig langar til að benda á
nokkur atriði í sambandi við
þessar framkvæmdir, sem mér
finnst ástæða til að hugleiða
nánar og fá skýringar á.
Val á landi til
uppgræðslu
Það land sem hingað til hefur
verið valið til uppgræðslu er að
meginhluta til algerlega ógróið.
uppblásnar melöldur og ásar.
Eg hef heyrt að það sé skilyrði af
hálfu bænda að grætt sé upp
örfoka land. Þessar melöldur
snúa norður-suður og eru alger
berangur, hvergi skjól að hafa.
Hæð landsins yfir sjó er yfir 500
m og veðurfar þarna er ekki
blítt. Þykir mér líklegt að þarna
blási stríðir vindar og vafalítið
tekur suðvestanáttin vel í. Þaðer
ekki ólíklegt að það sé frekar
veðurfarið og landslagið sem
valdið hafa uppblæstrinum
þarna en ofbeit. Reyndar efast
ég stórlega um að stór hluti
þessa lands hafi verið gróinn
síðustu aldir! Það verður alla
vega ekki auðvelt að halda lífi í
gróðrinum á þessum melhryggj-
um.
Mér þykja það léleg skipti að
fá þessa mela uppgrædda
(græna) í staðinn fyrir láglendi
heiðanna.
Eðlilegra sýnist mér að leggja
meiri áherslu á að velja
jaðarsvæði sem sýnilega hafa
verið algróin en eru núna að
blása upp. Þá eru nær byggð
víða þursaskeggsmóar þar sem
rof eru í hverri þúfu, þó landið sé
ekki beinlínis að blása upp.
Þetta er lélegt land til
sauðfjárbeitar, en með áburðar-
gjöf mætti gera það virkilega
gott. Þannig væri um leið létt
álagi af öðru og viðkvæmara
landi heiðanna.
Friðun uppgræðslunnar
Samkvæmt síðustu fréttum sem
ég hef heyrt, er ætlunin að friða
uppgræðsluna aðeins fyrir
hrossum. Athuganir á gróður-
þekju friðaðs og bitins lands
sýna að hún er 5-25% meiri á
friðaða landinu (Fjölrit RALA
nr. 105). Þetta er e.t.v. ekki
mikill munur, en þess ber líka að
geta að gróðurþekja segir aðeins
hálfa söguna. Það hefur aldrei
þótt gæfulegt að beita nýræktir
þannig að aldrei komi á þær þeli,
niðri á láglendi. Það hlýtur enn
frekar að vera í gildi uppi á
heiðum. Eg held að það sé talið
að 90% af þurrefni plantnanna
rrtyndist fyrir tilverknað blað-
grænu ogsólarljóss,en hitt komi
frá jarðveginum. Ef grænu
blöðin fá aldrei að vaxa upp úr
moldinni nær plantan aldrei að
vaxa og safna forðanæringu.
Hún verður því bara aumingi
sem visnar þegar að henni
kreppir. Alþekkt er að sauð-
kindin er sælkeri, þannig að víst
má telja að kindur verði á
uppgræðslunni eins og mý á
mykjuskán og grípa hverja nál
sem upp kemur.
Mér finnst full ástæða til að
líta á hver verðmæti þarna eru í
húfi þegar svona ákvarðanir eru
teknar. Eins og fram kemur hér
á eftir, kostaði hver áburðarpoki
sem dreift var, um 750 krónur
vorið 1984. Heildarkostnaður á
s.l. ári hefur því verið um 6
milljónir króna. Þegar búið
verður að dreifa á 3000 ha þeim
24000 áburðarpokum sem til
þarf, er kostnaðurinn — á
niðurgreiddu verði ársins 1984
— 18 milljónir kr.
Það var upplýst í vetur að
húnvetnskir bændur fengju 2,2
millj. kr. fyrir að hafa hrossin
heima og að það svaraði
nokkurn veginn til þess hvað
kosta myndi að setja upp
(hrossa)girðingu um uppgræðslu-
landið. Þetta þykja mér
skrítnar tölur svo ekki sé meira
sagt. Eg get upplýst að tvær 30
km fjárheldar rafgirðingar, sem
myndu loka af 6000 hektara
lands hvor um sig ef girt væru
ferköntuð hólf, kosta 2,5 m.kr.
í vor. Hrossagirðing væri mun
ódýrari! Þá er full ástæða til að
geta þéss að hvort sem
uppgræðslan verður girt eða
ekki, þá cr ætlunin að girða á
milli Auðkúlu- og Grímstungu-
heiðar, og mér er sagt að einnig
muni verða krafist girðingar upp
með Blöndu milli Auðkúlu- og
Eyvindarstaðaheiðar.
Báðar þessar girðingar myndu
geta komið inn í uppgræðslu-
vörsluna að einhverju leyti ef
hugsað væri um að samræma
þær aðgerðir sem gera á þarna.
Eg tel það algerlega óverjandi
að beita uppgræðsluna eins og
ætlunin er að gera. Hins vegar
myndi friðun fyrripart sumars
gefa gróðrinum góða undirstöðu
til að þola beit í ágúst og
september. Girðing myndi
aðeins kosta örlítið brot af
áburðarkostnaði eins árs, en
myndi skila margföldu gildi
áburðarins í sterkari gróðri og
fljótari uppgræðslu (betri nýting
áburðarins).
r
Aburðardreifing
Aburður er dýr núna og verðlag
á honum fer hækkandi. Þannig
er spáð 40-60% hækkun á þessu
vori. Eins og nefnt var í upphafi
voru bornir á um 7500 pokar á
s.l. sumri. Notuð hefur verið
áburðartegundin ,,23-23”, en
hver poki af henni kostaði um
500 kr. á s.l. vori. Samkvæmt
upplýsingum Olafs Jenssonar
hjá Landsvirkjun var flutnings-
og dreifingarkostnaður um 250
kr. á poka. Þannig að hver poki
kostar um 750 kr. þegar allt er
talið. Heildarkostnaður er því
um 6 milljónir kr. árið 1984.
Eg held að alltaf hafi verið
miðað við að bcra 8 poka á hvern
hektara og ætti eftir því að hafa
verið borið á um 900 hektara á
liðnu sumri. Markmiðið er að
rækta upp um 3000 ha (2800
ha?) og á þá fara þá 24000
(22400) pokar sem kosta um 18
millj. kr á verðlagi 1984.
Ef þessu áburðarmagni væri
dreift á láglendi gæti uppskeran
auðveldlega numið 7.500.000
fóðureiningum, en sennilega
cnn meiru ef landið væri
skynsamlega notað.
Samkvæmt skýrslu til Lands-
virkjunar um „Rannsóknir á
ástandi og beitarþoli gróður-
lenda á Auðkúlu- og Eyvindar-
staðaheiði 1983” eftir Ingva
Þorsteinsson, Olaf Arnalds og
Ásu Aradóttur er heildarfjöldi
útreiknaðra fóðureininga sem á
þessum heiðurp er 5.552.000
fóðureiningar. Þá á eftir að taka
tillit til gróðurfars og uppblást-
urs. Þegar það hefur verið gert
eru aðeins 2.868.200 fóðurein-
ingar eftir,sem telstþábeitarþol
heiðanna. Láglendisuppskeran
eftir áburðinn er þannig 35%
hærri en heildaruppskera heið-
anna og 160% hærri en beitarþol
þeirra. Það hefur að vísu ekki
verið tekið tillit til hvað fyrir
áburðinn fæst uppi á heiðum og
þó öruggt sé að hann gefi
verulega aukauppskeru þar, þá
hlýtur það að vera verulega
mikið minna en fengist fyrir
hann niðri í byggð.
Það má því segja „að þeir
(bændur) sletti skyrinu sem eiga
það”.
En íleira má nefna en lélega
nýtingu áburðarins. Að því erég
veit best hafa eingöngu verið
notaðar tvígildar áburðarteg-
undir, 23-23 og 26-14, sem þá
innihalda eingöngu köfnunar-
efni og fosfór. Það er hins vegar
svo, að „fleira er matur en feitt
kjöt” og gildir það sjálfsagt um
plöntur eins og menn! Hér niðri
í lágsveitum er það talið sjálfsagt
að bera á a.m.k. köfnunarefni,
fosfór og kalí og auk þess eru
kalk og brennisteinn talin efni
Óháð fréttablað
fyrir Norðurland vestra
Feykir
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Guöbrandur Magnússon ■ ÚTGEFANDI: Feyklr
hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauöárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4, 550 Sauöárkrókur
■ SÍMI: 95:5757 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Hilmir Jóhannesson, Sr. Hjálmar Jónsson, Jón
Ásbergsson, Jón F. Hjartarson, Siguröur Ágústsson ■ BLAÐAMENN: Hávar Sigurjónsson og
Magnús Ólafsson ■ ÁSKRIFTARVERÐ: 28 krónur hvert tölublað; i lausasölu 30 kr.
■ GRUNNVERÐ AUGLÝSINGA: 120 krónur hver dálksentimetri ■ ÚTGÁFUTÍÐNI: Annan
hvern miðvikudag ■ PRENTUN: Dagsprent hf,, Akureyri ■ SETNING OG UMBROT:
Guðbrandur Magnússon, Sauðárkróki.