Feykir - 17.04.1985, Side 4
4 FEYKIR 8/1985
Kjörmannafimdur Búnaðarsambands Skagafiarðar:
Utflutmngsbótaréttiiriiin verði ekki skertur
Stéttarsamband bænda hefur
boðað til aukafundar í Reykja-
vík í dag, 17. apríl, vegna
væntanlegrar endurskoðunar á
lögum um Framleiðsluráð
landbúnaðarins. Kjörmannafund-
ur Búnaðarsambandsins í Skaga-
fjarðarsýslu vegna þessa auka-
fundar var haldinn á Sauðár-
króki s.l. fimmtudag, en
fundinn sátu þrír fulltrúar frá
hverju búnaðarfélagi í héraðinu.
Kjörmannafundurinn skoraði
á aukafund Stéttarsambands-
ins, sem settur verður í dag, að
gera eftirfarandi kröfur vegna
væntanlegrar endurskoðunar
laga um Framleiðsluráð, verð-
skráningu, verðmiðlun og sölu á
landbúnaðarafurðum o.fl. Áskor-
un kjörmannafundarins er
svohljóðandi:
Mótmæla okurvöxtum
Á kjörmannafundi Búnaðar-
sambands Skagafjarðar vegna
aukafundar Stéttarsambands
bænda var samþykkt ályktun
þess efnis að mótmælt er
harðlega því fjármagnsokri sem
nú er ástundað og lögfest hér á
landi, þannig að framleiðslu-
atvinnuvegir og flestir aðilar
sem á lánsfé þurfa að halda fá
alls enga fyrirgreiðslu. í
ályktuninni er skorað á Alþingi
og ríkisstjórn að lækka vexti án
tafar og að verðtrygging lána
taki mið af launum og
greiðslugetu undirstöðuatvinnu-
greina þjóðarinnar.
Ennfremur segir í ályktun-
inni: „Verði fjármagnskostnað-
ur ekki stórlækkaður er augljóst
að hvers konar skuldbreytingar
eru gagnslítið kák og verða ekki
að því gagni sem til var ætlast.”
Fundurinn beinir því til
fundar Stéttarsambands bænda
sem haldinn er í dag, 17. apríl,
að taka þetta mál fyrir og fylgja
því fram eins og frekast er unnt.
Bændur neiti að greiða
hærra verð fyrir áburðinn
en er í nágrannalöndunum
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á kjörmannafundi Bún-
aðarsambands Skagafjarðar 11.
april s.l.:
„Fundurinn beinir því til
stjórnar Stéttarsambands bænda
að hún afli upplýsinga um
áburðarverð í nágrannalöndum
okkar og hvaða verð yrði á
innfluttum áburði. Stéttar-
sambandið hafi síðan forgöngu
um að bændur neiti að greiða
hærra verð fyrir áburð frá
Áburðarverksmiðju ríkisins en
innfluttur áburður myndi kosta.
Þá beinir fundurinn því til
stjórnar Stéttarsambandsins að
krefjast þess að fram fari ítarleg
úttekt á því hvers vegna verð á
tilbúnum áburði og raforku er
jafn hátt og raun ber vitni.”
Ályktunin var samþykkt
samhljóða.
Tökum að okkur
allar húsbyggingar
og aðra
mannvirkjagerð
Hvers konar innréttingar.
Inni- og útihurðir.
Eldhúsinnréttingar eftir þínum óskum.
TRÉSMIÐJAN
BOB©
BORGARMÝRI 1 - SAUÐÁRKRÓKI
5170
ríkisvaldið um verðábyrgð á 9. Skilgreint verði hvemig
ákveðnu framleiðslumagni verði staðgreiðsla, þ.e. full greiðsla til
gerður samningur til a.m.k. 5 framleiðenda innan mánaðarfrá
ára. afhendingu vörunnar, verkar
8. Veiting sláturleyfa verði gagnvart verðlagningu og end-
með sama hætti og nú er. anlegu verði til framleiðenda.
Múiningarskákmót á Blönduósi
1. Útflutningsbótaréttur og
útílutningsuppbætur verði ekki
skertar nema jafnhliða verði
mætt þeim samdrætti sem þegar
er orðinn í framleiðslu búvara
með nýrri atvinnuuppbyggingu,
svo og frekari samdrætti, ef til
kemur. ^
2. Útflutningsbótarétturinn
miðist áfram við heildarverð-
mæti landbúnaðarframleiðsl-
unnar eins og hún hefur verið
skilgreind við verðmætaútreikn-
ing að undanförnu.
3. Tekin verði upp fram-
leiðslustjórnun á allri kjötvöru
og eggjum.
4. Kveðið verði á um ótvíræða
heimild til þess að taka upp
svæðabúmark.
5. Heimilað verði áfram að
taka gjald af innfluttu kjarn-
fóðri sem tæki til framleiðslu-
stjórnunar.
6. Verðlagning búvöru verði
áfram í höndum verðlagsnefnd-
ar landbúnaðarins (sex manna
nefndar), bæði hvað varðar
verðákvörðun til framleiðslu-
ráðs og verðlagningu á heildsölu
og smásölu að svo miklu leyti
sem smásöluálagning verði ekki
frjáls.
7. Komi til samninga við
Um bænadagana var haldið
skákmót á Blönduósi til
minningar um Jónas Halldórs-
son og Ara Jónsson. Þátttak-
endur voru 28 og tefldu 16 í
fullorðinsílokki og 12 í
unglingaflokki og var teflt eftir
Monrad-kerfi.
I flokki fullorðinna sigraði
Jón Garðar Viðarsson frá
Akureyri með 6,5 vinningi af 7
mögulegum. í öðru sæti varð
Jakob Kristjánsson einnig frá
Akureyri með 6 vinninga og í
þriðja sæti varð Pálmi Sighvats-
son frá Sauðárkróki.
í unglingaflokki sigraði
Reynir Grétarsson á Blönduósi
með 9,5 vinningi af 11
mögulegum. í öðru sæti varð
Unnar Árnason á Blönduósi
með 9 vinninga og í þriðja sæti
varð Ingvar Björnsson, Hóla-
baki, með 8 vinninga.
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga stendur jafnan
fyrir þessu minningamóti, sem
að öðru jöfnu er haldið árlega.
Nú var keppt um veglegan
farandbikar, sem gefinn var af
sýslusjóði Austur-Húnavatns-
sýslu.
Misritun
Misritun varð í greinastúf sem
birtist í Feyki fyrir skömmu, þar
sem þakkaðar voru gjafir til
byggingar setustofu við sjúkra-
húsið á Hvammstanga. Guðjón
Jónsson, sem gaf 25 þúsund
krónur var sagður frá Búrfelli í
Miðfirði. Hið rétta er að Guðjón
er frá Huppahlíð í Miðfirði og er
hann hér með beðinn velvirð-
ingar á þessum mistökum.
A
KHD
GÆÐI ENDING ÖRYGGI
HAMAR HE (noi
Borgartúni 26. Sími 91-22123. 'C y
DEUTZ-INTRAC
VERÐLÆKKUN:
NÚ KR. 690.000.-
Við sendum ef
óskað er sænska
könnun um olíu-
eyðsiu Deutz
samanborið við
aðrar tegundir.
Deutz er byggður fyrir nútíma kröfur fyrir nútíma fólk:
Rúmgott og nýtískulegt hús með öllum þægindum. Afkasta-
mikil miðstöð, óvenju gott útsýni, allar rúður opnanlegar,
vélin sjálf er loftkæld og nær þannig fljótar eðlilegum
vinnsluhita. Þetta sparar olíu. Ekkert vandamál með kæli-
vatnskerfi, hosur o.fl. Auðveld aðkoma og viðhald á vél.
Gírkassi og drifbúnaður óhemju sterkbyggður. Vélin skilar
95% af orku í aflúrtak. Þrenn tvívirk stjórntæki, olfukerfi fyrir
iyfti- og drifbúnað aðskilin. Svona mætti lengi telja, en á
hinum harða v-þýska markaði varð Deutz dráttarvélin
söluhæst árið 1984. Það segir meira en mörg orð fá lýst.
Skoðið
TROMPIÐ
OKKAR!
Deutz dráttarvélarnar eru þekktar fyrir styrkleika og
lága bilanatíðni. Þær eru sparneytnar og hagkvæmar
í rekstri. Margir halda að Deutz dráttarvélarnar séu
dýrari en þær raunverulega eru. Þegar þú leggursaman
kostina kemstu að öðru. Hér má nefna áreiðanleika
þannig að þú getur treyst vélinni þegar mikið liggur við.
Olíusparnaður er umtalsverður, þegar litið er til lengri
tíma. Ending sparar viðgerða- og varahlutakostnað
og síðast en ekki sfst
hátt endursöluverð.
Láttu Deutz
vinna fyrir þig.