Feykir - 17.04.1985, Qupperneq 5
Skagaströnd:
8/1985 FEYKIR 5
dráttarbraut tekin í notkun
Dráttarbraut var tekin í notkun
á Skagaströnd á laugardag fyrir
páska. Þar er unnt að taka upp
báta, sem eru allt að 150
brúttólestir, en síðar er ráðgert
að lengja brautina þannig að þar
megi taka upp báta sem eru 180
lestir. Dráttarbrautin er hönnuð
af Einari Þorbjörnssyni verk-
fræðingi hjá Hönnun hf. Hún er
byggð sem bogabraut til þess að
hún nái fyrr meira dýpi í sjó
fram, en sé flatari efst en
venjuleg skábraut myndi vera.
Lengd brautarinnar lárétt mælt
er 110,5 m frá spilhúsi að
brautarenda. Efstu 84 metrarnir
eru steyptir, en fremst eru
trésvellur úr 8x4 tommu
harðviði, sem raðað er mismun-
andi þétt eftir álagi.
Höfðahreppur greiðir 60% af
byggingarkostnaði brautarinn-
ar, en ríkissjóður 40%. A árinu
1982 hófust framkvæmdir. Þá
voru greiddar 2.127 þúsund
krónur í kostnað vegna
dýpkunar, hönnunar og annars
undirbúnings. Á árinu 1983 var
framkvæmdakostnaður 5.850
þúsund kr. og á síðasta ári var
hann 6,5 millj. kr. Á þessu ári er
talið að þurfi 1,8 millj. kr. til þess
að ljúka verkinu, en eftir er að
steypa fjóra hliðargarða til
viðbótar við þá þrjá sem þegar
eru komnir vestan við dráttar-
brautina. Einnig þarf að klæða
þá að ofan með eikarbitum og
koma fyrir hliðarfærslubúnaði.
Ef þörf er á síðar er einnig unnt
að byggja hliðargarða austan við
dráttarbrautina og koma þann-
ig fyrir fleiri bátum.
Höfðahreppur hefur ákveðið
að gera samning við Skipa-
smíðastöð Guðmundar Lárus-
sonar hf. um leigu á
Áviniisluherfl
Vinnubreidd 3,05 m
Verð kr. 9.240.-
Fjaðraherfi
Diskaherfi
i
Hnífaherfi
Plógar
A
1 skera brotplógur
Verð kr. 19.800.-
Bændur!
Athugið hið fjölbreytta úrval búvéla sem
við eigum á lager - eða pöntum með
stuttum fyrirvara.
Hafíð samband við sölumenn okkar, eða
kaupfélögin um land allt.
Vinnubreidd 3,4 m
Verð kr. 33.500,-
Vinnubreidd 2,4 m
Verð kr. 40.600.-
Hankmo 66
Vinnubreidd 2,1 m
Verð kr. 48.000.-
Rúmtak 210 I - 1000 I
Y’erð frá kr. 9.350.-
Flagjafnarar
Vinnubreidd 2,2 m
Verð kr. 16.980.-
VOR - 1985
Ýmsar búvélar á mjög góðu verði:
Fyrsti báturinn dreginn upp nýju dráttarbrautina.
mannvirkinu. Mun dráttar-
brautin styrkja mjög erfíða
stöðu Skipasmíðastöðvarinnar
og veita nokkrum mönnum
atvinnu árið um kring. Auk þess
mun hún auka umsvif hjá
öðrum fyrirtækjum á Skaga-
strönd, sem eru í sérhæfðri
viðgerðaþjónustu fyrir báta og
skip.
Ádolf Berndsen oddviti á
Skagaströnd hélt ræðu þegar
dráttarbrautin var formlega
tekin í notkun. Hann lýsti
mannvirkinu og sagði frá þeirri
baráttu sem Skagstrendingar
hafa háð til að koma þvi upp.
„Þegar heimamenn standa
saman og fá stuðning góðra
þingmanna næst árangur, sem
allir geta verið ánægðir með,”
sagði Adolf. Hann þakkaði
öllum sem lagt hafa þessu mikla
hagsmunamáli Skagstrendinga
lið og lét í ljós þá von að
iðnaðarmenn á Skagaströnd
myndu standa sig vel í þeirri
hörðu samkeppni sem ríkir í
þessari iðngrein.
Að lokinni ræðu Adolfs talaði
Sigfús Jónsson sveitarstjóri.
Hann lýsti framkvæmdum við
dráttarbrautina og sagði frá því
hvað þær hefðu kostað og
hvernig ætti að reka dráttar-
brautina. Síðan töluðu þing-
mennirnir Pálmi Jónsson og
Páll Pétursson. Að lokum lýsti
oddvitinn, Adolf Berndsen, því
yfir að Dráttarbraut Skaga-
strandar væri formlega tekin í
notkun. Að því loknu var spilið,
sem er með 15 tonna átakskrafti,
sett í gang og dró það fyrsta
bátinn upp dráttarbrautina.
Loks bauð hreppsnefndin til
kaffidrykkju í félagsheimilinu
Fellsborg.
HC )TE ;l m j [ÆLIFEI
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900