Feykir - 17.04.1985, Síða 7
8/1985 FEYKIR 7
Fjórðungssamband Norðlendinga
og Stiórmmarfélas jslands
Góð aðsókn að
námskeiðunum
Jóhanna Sveinsdóttir leiðbeinir á ritaranámskeiði á Sauðárkróki.
Undanfarnar vikur hefur Fjórð-
ungssamband Norðlendinga stað-
ið fyrir námskeiðum á Norður-
landi í samvinnu við Stjórnunar-
félag Islands. Námskeiðin eru af
ýmsum toga; stjórnunarnám-
skeið fyrir þá sem halda um
stjórnvölinn í fyrirtækjunum,
ritaranámskeið og verkstjórn-
arnámskeið. Námskeið þessi
hafa verið haldin á Akureyri og
Sauðárkróki og hefur aðsókn
verið slík að á Akureyri hefur
orðið að endurtaka sum þeirra
og önnur hafa verið fullbókuð.
Einar Eyþórsson, fulltrúi hjá
Fjórðungssambandinu, hefur
haft umsjón með þessu
námskeiðahaldi og Feykir greip
hann glóðvolgan þegar hann var
á Sauðárkróki fyrir páskana að
hrinda af stokkunum ritara-
námskeiði fyrir skrifstofufólk.
Við spurðum Einar fyrst hver
hefði verið aðdragandinn að
þessu námskeiðahaldi og hvern-
ig samstarfi Fjórðungssam-
bandsins og Stjórnunarfélagsins
væri háttað.
„Við töldum að það væri
ástæða til að reyna að fá þessi
námskeið Stjórnunarfélagsins
út á landsbyggðina eftir að hafa
séð hversu mikill áhugi var fyrir
þeim í Reykjavík. Með þessu
erum við að koma til móts við
fólk hér á Norðurlandi sem vildi
sækja þessi námskeið, en hafði
ekki möguleika á að sækja þau
til Reykjavíkur.
Við höfum reynt að halda
sama verði á námskeiðunum og
var í Reykjavík og samstarfi
okkar við Stjórnunarfélagið er
þannig háttað, að það leggur til
leiðbeinanda og námskeiðs-
gögnin, en Fjórðungssamband-
ið sér um að greiða kostnað við
auglýsingar, útvega húsnæði
fyrir námskeiðahaldið og greiða
annan kostnað sem af þessu
hlýst. Með þeirri miklu þátttöku
sem verið hefur þá hafa þeir
peningar skilað sér og nám-
skeiðin hafa staðið undir sér sjálf
að mestu leyti.
— Hverjir greiða þátttöku-
kostnað á námskeiðin?
„Það eru, með örfáum
undantekningum, fyrirtækin sjálf
þar sem viðkomandi þátttak-
andi vinnur. Fyrirtækin hafa
tekið þessu mjög vel og sent
starfsmenn sína á námskeiðin og
greitt þátttökugjaldið fyrir þá.
Ritaranámskeiðið sem nú er
haldið hér á Sauðárkróki
(helgina 29.-31. mars) er
ágætlega sótt. Þátttakendur eru
15 frá ýmsum fyrirtækjum hér á
Einar Eyþórsson.
Norðurlandi vestra. Flestir eru
héðan frá Sauðárkróki, en
einnig eru þátttakendur frá*
Hvammstanga, Blönduósi, Hofs-
ósi og Siglufirði.
Upphaflega var ætlunin að
halda þessi námskeið einungis á
Akureyri, en það kom fljótt í ljós
að góður grundvöllur var fyrir
sérstöku námskeiðshaldi á
Norðurlandi vestra. Stjórnun-
arnámskeiðið sem var haldið á
Sauðárkróki um daginn og
verður raunar framhaldið eftir
páskana var t.d. fullsetið með 20
þátttakendum, og verkstjórnar-
námskeiðið sem hefur verið
auglýst og verður haldið í lok
apríl er senn fullbókað.”
— Hver er tilgangurinn með
svona námskeiðahaldi?
„Hann er fyrst og fremst að
gera þátttakendur hæfari til að
sinna sínum störfum, en einnig
má segja að tilgangurinn með
sérstöku námskeiðahaldi hér á
Norðurlandi sé að gefa fólki hér
tækifæri til að standa jafnfætis
þeim sem búa á Suðvesturhorn-
inu og njóta þess sama sem
boðið er uppá i þessum efnum.
Eg vona að fleiri landshlutasam-
tök sjái sér fært að fá þessi
námskeið, því áhuginn er
ótvíræður.”
— Hvað er annars fram-
undan í vor og sumar á vegum
Fjórðungssambandsins?
„Við munum ljúka nám-
skeiðunum um mánaðamótin
apríl-maí og nú er í undirbún-
ingi að halda ráðstefnu í júní um
landbúnaðarmál. Hugmyndin
að ráðstefnunni er komin frá
Magnúsi Olafssyni á Sveins-
stöðum í Húnavatnssýslu og er
ætlunin að á þessari ráðstefnu
verði fjallað um stöðu land-
búnaðarins og hvað helst sé til
ráða á þeim vettvangi.
í haust er ætlunin að standa
fyrir kynnisferð fyrir sveitar-
stjórnarmenn til Skotlands.
Sigfús Jónsson, sveitarstjóri á
Skagaströnd, er aðalhvatamað-
ur þessarar hugmyndar. Þarna
geta sveitarstjórnarmenn kynnt
sér atvinnuþróun og áætlanir
sem Highlands and Islands
Developmeni Board (Þróunarráð
skosku Hálandanna og eyjanna)
hefur með höndum. Þetta er
stofnun sem fer með áætlana-
gerð varðandi atvinnuuppbygg-
ingu og byggðaþróun á þessu
svæði. Aðstæðum svipar þarna
til aðstæðna hér, bæir eru af
svipaðri stærð og margt er hægt
að læra aaf Skotum í
landbúnaðarmálum.”
Nú geta allir eignast
COMMODORE heimilistölvu
TILBOÐ I:
Commodore C64 tölva
og Commodore segulband
Verð aðeins kr. 12.800:-
TILBOÐ II:
COMMODORE C64 tölva
COMMODORE 1702 litaskjár
COMMODORE 1541 diskettustöð
Verð aðeins kr. 29.990:-
Ódýrt tískugarn
100 g á kr. 50:-
Kynning
Föstudaginn 19. apríl
kynnum við nýja perluhjúpkexið
frá Holta, ásamt koffeinlausa
Braga-kaffinu kl. 14-18.45.
Þú þarft ekki annað!
Sólin hækkar á lofti
Nýkomið mikið vöruúrval fyrir
alla fjölskylduna: Buxur, bolir,
jakkar, skyrtur, peysur o.m.fl.
—- SGHJBÍIÐ 17. apríl til 1. maí
Maruud skrúfur 25,00
Roma búðingur 9,30
Leni salernispappír .... 93,40
Leni eldhúspappír 4 rl . 87,30
River hrísgrjón 1 Ibs ... 28,10
River hrísgrjón 2 Ibs ... 55,00
Bulgaria jarðarber heild 72,00
Tilboðsverð
á sokkum frá Víkurprjóni.
Fyrsta flokks íslensk framleiðsla.
íþróttasokkar............79:-
Sokkar á karla ..........jií:- 95:-
Sokkar á börn............72:-
-