Feykir - 17.04.1985, Page 11
Samstarf kirkjukóra
í Húnavatnssýslum
Skíðaskáfi á Skagaströnd
Mikið samstarf er með kirkju-
kórunum fjórum, sem nú eru
starfandi í Vestur-Húnavatns-
sýslu. í fyrra sungu þeir saman
þýska messu i öllum kirkjunum,
en í vetur hafa þeir haldið
sameiginlega þrjár söngskemmt-
anir.
1 kirkjukórunum syngja um
50 manns. Á skemmtuninni
söng einnig karlakór undir
stjórn Ólafar Pálsdóttur, sem
nefnir sig Lóuþræla — í höfuðið
á söngstjóranum. Þá hafa
organistar kirknanna myndað
kvartett og sungið á söng-
skemmtunum. Þeir eru Guðrún
Kristjánsdóttir í Staðarkirkju,
Helgi Ólafsson í Hvamms-
Þessir hressu krakkar héldu
hlutaveltu á Sauðárkróki fyrir
páskana og söfnuðu 625
krónum fyrir dvalarheimili
tangakirkju, Ólöf Pálsdóttir í
Melstaðakirkju og Guðmundur
Sigurðsson í Víðidalstungu-
kirkju. Guðmundur tók við
stöðu organista í haust, en hann
býr á Hvammstanga en er alinn
upp í Víðidalstungu.
Auk söngs var hlutavelta á
öllum þessum samkomum. Þá
var þar selt kaffí. Engan
aðgangseyri þurfti fólk aðgreiða
að þessum samkomum, en seld
voru merki. Allur ágóði rann til
viðkomandi kirkju. Samkomur
þessar voru vel sóttar og ágóði
dágóður. Til dæmis var
hagnaður af samkomunni á
Hvammstanga tæpar 70 þúsund
krónur.
aldraðra á Sauðárkróki. Krakk-
arnir heita: Kristján Elvar
Gíslason, Þráinn Björnsson og
Anna Birna Rögnvaldsdóttir.
Glæsilegur skíðaskáli var form-
lega tekinn í notkun á
Skagaströnd á föstudaginn
langa. Skálinn er 60 fermetrar
að grunnfleti. Á neðri hæðinni
eru sæti fyrir 40 manns og þarer
eldhúskrókur, enda ætlunin að
framreiða þar veitingar. Uppi er
svefnloft
Skálinn stendur í hlíðum
Spákonufells, nokkru fyrirofan
þorpið. Þar fyrir ofan er 500 m
löng skíðatogbraut, sem sett var
upp fyrir nokkrum árum. Úr
gluggum skálans er auðvelt að
fylgjast með skíðafólkinu í
brekkunum.
Það er ungmennafélagið
Fram á Skagaströnd, sem hefur
haft veg og vanda af því að
koma þessum skála upp. I
janúar 1984 var stofnuð innan
Ungmennafélagsins skíðadeild
og var deildinni falið það
verkefni fyrst og fremst að koma
upp skála við skíðatogbrautina.
I júní voru sökklar steyptir og
húsið orðið fokhelt í september
Vinna við þennan hluta hússins
var að mestu keypt, en síðan
hafa sjálfboðaliðar unnið við að
fullgera húsið.
Byggingarkostnaður er 1-1,3
millj. króna. Fjár til fram-
kvæmdanna hefur verið aflað
með ýmsu móti ogmargargóðar
gjafír hafa borist.
Við athöfn í skálanum á
föstudaginn langa talaði Magnús
B. Jónsson, formaður skíða-
deildarinnar, og lýsti byggingar-
framkvæmdum og afhenti
formanni ungmennafélagsins
Fram, Lárusi Ægi Guðmunds-
syni, formlega lykil að húsinu.
Fjölmenni var við athöfnina og
veitti ungmennafélagið öllum
kaffí, sem þangað komu.
Mikill hugur er í skíða-
áhugamönnum á Skagaströnd
að halda áfram að byggja upp
aðstöðu í hlíðum Spákonufells.
Tala menn um að næstu skref
verði að kaupa snjótroðara, en
síðar að flóðlýsa brekkurnar.
Jafnframt vonast skíðaáhuga-
menn til þess að ekki verði
margir vetur svo snjóléttir sem
veturinn í vetur. Muna menn
ekki svo snjóléttan vetur á
Skagaströnd í fjölda ára, en
vegna snjóleysis var ekki hægt
að bregða sér á skíði þegar
skálinn var tekinn í notkun, og
hefur raunar aldrei verið hægt í
vetur að setja lyftuna í gang.
Vídeo tæki og spólur
Eitt mesta úrval af vídeomyndum á Norðurlandi vestra
Yfir tvö hundruð titlar í umferð. Nýjar spólur vikulega
eða oftar. Allar myndir með íslenskum texta!
SÝNISHORN AF MEST TEKNU MYNDUM
MÁNAÐARINS:
Sloane. Spennumynd í sérflokki
Ellis Island. Vlnsælasta mini-serían þessa
dagana. Richard Burton og Fay Dunaway í
fararbroddi stjörnuleikara.
Játnlngar ökukennara. Litið ekið, en mikið...
Rauðklædda konan. Gene Wilder í bráðskemmti-
legri mynd. Tónlistin samin og flutt af Stevie
Wonder (Woman in red).
Devll Day. Hryllingsmynd fyrir þá sem eiga erfitt
með að sofna á kvöldin.
Andllt í speglinum. Ein sú vinsælasta gerð eftir
metsölubók Sidney Sheldons.
Húslð. íslenska myndin sem sló öll aðsóknarmet
árið 1983. Jóhann Sigurðsson og Lilja Þóris-
dóttir í aðalhlutverkum.
Fyrir börnln: Nýjar spólur með Mikka mús og
Strumpunum. Laddi hefur lánað Strumpunum
rödd sína. Núna eigum við 9 spólur með Mikka
og 4 með Strumpunum.
Verið velkomin
ÁBÆR
Sfmi 5371, Sauðárkróki
Teiknisamkeppni í grunnskólum
í tilefni alþjóðaárs æskunnar
stendur yfir í 6.-9. bekk
grunnskóla teiknisamkeppni um
fíkniefni. Hér á landi standa
Menntamálaráðuneytið, Áfengis-
varnaráð og Samtök skóla-
manna um bindindisfræðslu að
keppninni sem er alþjóðleg.
Vinátta er meginþema sam-
keppninnar sem kallast: Hollir
vinir - heilbrigt líf. Vinátta er
öllum mikilvæg og gefur lífinu
aukið gildi. Þetta á e.t.v.
sérstaklega við um unglingsárin.
Þörfin fyrir félagsskap leiðir
stundum til skaðlegrar neyslu
tóbaks, áfengis eða annarra
fíkniefna. Á hinn bóginn geta
góðir vinir stuðlað að heilbrigð-
um lífsháttum og hjálpað hver
öðrum til að forðast þær hættur
sem steðja að.
Með myndarlegum stuðningi
hefur Búnaðarbanki íslands
gert kleift að veita glæsileg
verðlaun. Fimm bestu myndirn-
ar fá 10.000 króna verðlaun
hver, auk réttar til þátttöku í
úrslitum alþjóðakeppninnar í
ágúst í sumar. Einnig verða veitt
25 aukaverðlaun og allir
þátttakendur fá viðurkenning-
arskjal.
Foreldrar og kennarar eru
hvattir til að benda unglingun-
um á þessa samkeppni. Allir
grunnskólar hafa fengið sendar
nákvæmar upplýsingar um
keppnina en skilafrestur er til
30. apríl n.k.
Skólarnir veita myndum
viðtöku.
Norðlendingar!
Leka þök eða svalir hjá ykkur? Með
„Sarnafil” þakdúk er lekavandamálið úr
sögunni. Hafið samband við skrifstofu
okkar í síma 91-28230 og okkar menn á
Norðurlandi mæla upp flötinn. Við
gerum fast verðtilboð ykkur að
kostnaðarlausu.
Nú þegar 100 þúsund fermetrará íslandi.
Sarnafíl
Niardvikurkirkja: Sarnalil-SE og vidbótareinangrun.
VIÐHALDSFRÍTT ÞAKEFNI
Á ÞÖK - Á ÞAKSVALIR
FAGTÚN HF LÁGMULA 7. 105 REYKJAVIK SIMI 28230
Edith Piaf slær í gegn
Leiksýningin Edith Piaf á
Akureyri hefur slegið í gegn svo
um munar. Edda Þórarinsdóttir
hefur hlotið frábæra dóma fyrir
túlkun sína á lífi og söng
frönsku söngkonunnar Edith
Piaf, sem lést í París 1963 aðeins
47 ára að aldri eftir stórbrotið
líf. 1 leiknum koma fram urn 40
persónur, ýmsar nafntogaðar
eins og Marlene Dietrich,
boxarinn Marcel Cerdan og
frægir franskir söngvarar sem
Piaf kom á framfæri. Leikarar
eru auk Eddu Þórarinsdóttur:
Sunna Borg, Guðlaug María
Bjarnadóttir, Emelía Baldurs-
dóttir, Marinó Þorsteinsson,
Pétur Eggerz, Þráinn Karlsson,
Theodór Júlíusson og Gestur E.
Jónasson. Auk þeirra koma
frani dansararnir Haraldur Hoe
Haraldsson og Helga Alice og
níu manna hljómsveit undir
stjórn Roars Kvam.