Feykir - 17.04.1985, Qupperneq 12
Skagaströnd
Rækjufólk
bregður sér
bæjarleið
tíl Lundúna
Þarna stendur gamla Pakkhúsið á Hofsósi
Þjóðminjasafnið gerir upp meridlegt
pakkhús Hönnangaranna á Hofsósi
„Með elstu húsum á Islandi, ” segirþjóðminjavörður
Um 50 manna hópur starfs-
manna úr Rækjuvinnslunni hf. á
Skagaströnd og sjómanna af
rækjubátum þar ætlar í viku
menningar- og skemmtiferð til
London í maí í vor. Fjár til
fararinnar hefur fólkið safnað
undanfarin þrjú ár með veiðum
og vinnslu á rækju utan
hefðbundins vinnutíma. í hópnum
verða einnig nokkrir einstakl-
ingar, sem greiða sína ferð að
hluta eða öllu leyti sjálfir, enda
hafa þeir ekki lagt fram vinnu til
jafns við aðra.
Undanfarin ár hefur verið
leyft að veiða nokkurt magn af
rækju utan kvóta og er þetta
leyfi bundið því að andvirði
aflans sé notað til líknar- og
menningarmála. Á Skagaströnd
hafa sjómenn og rækjuvinnslu-
fólk lagt fram mikla vinnu við
þessar veiðar og vinnslu.
Utgerðin hefur lagt til báta og
Rækjuvinnslan aðstöðu. Af-
raksturinn hefur að mestu
runnið til líknar- og menn-
ingarmála á staðnum. Fé hefur
verið veitt til kirkjubyggingar,
sundlaugar, keypt hafa verið
tæki í leikskólann og nú er verið
að safna í byggingu dvalar-
heimilis fyrir aldraðra á
Skagaströnd. Hluti af þessu
aflafé hefur síðan runnið í
fyrrnefndan ferðasjóð.
Á Blönduósi og Hvamms-
tanga er einnig veidd og unnin
rækja af sjálfboðaliðum til
líknar- og menningarmála. í
blaðinu hefur áður verið sagt frá
því að Hvammstangabúar afla á
þennan hátt fé til kaupa á
pípuorgeli í kirkjuna og fleiri
framfaramál þar á stað hafa
verið studd með þessari vinnu. Á
Blönduósi starfa félagar ýmissa
félaga að vinnslu aflans og fá á
þann hátt fé í líknar- og
menningarsjóði sinna félaga.
Útgerðarfélagið
tapaði 12,1 millj
á síðasta ári
Aðalfundur Útgerðarfélags Skag-
firðinga hf. var haldinn 10. apríl
s.l. Á fundinum kom fram að
rekstrartekjur félagsins árið
1984 voru kr. 133,9 milljónir,
sem er 61% aukning frá fyrra
ári. Rekstrargjöld námu kr.
145,4 milljónum, þar af eru
afskriftir 22,9 milljónir. Tap
félagsins nam kr. 12,1 millj. kr.
Heildarafli skipa félagsins var
9.122 tonn, sem er 31% aukning
frá fyrra ári. Launagreiðslur
námu 45,9 millj. kr. sem greidd
voru til 207 manna. Ársverk
voru hins vegar 78.
Eignir félagsins samkvæmt
efnahagsreikningi eru 123,9
millj. kr. Matsverð skipa
félagsins er 189,1 millj. kr.
umfram bókfært verð þeirra.
Heildarskuldir voru ' 179,8
milljónir króna.
„Það er talið að þetta hús sé frá
árinu 1772 og það mun vera eitt
af tólf slíkum húsum sem
Islands- og Grænlandsverslunin
keypti og lét reisa á verslunar-
stöðum sínum á íslandi og
Grænlandi,” segir Þór Magnús-
son þjóðminjavörður í samtali
við Feyki.
Hús það sem er til umræðu er
Pakkhúsið svokallaða á Hofsósi
en það er í eigu Þjóðminjasafns-
ins. Áformað er að í sumar
hefjist vinna við gagngerar
endurbætur á húsinu og verður
það fært í sitt upprunalega horf
eftir því sem föng eru á.
Feykir bað Þór Magnússon,
þjóðminjavörð, að segja örlítið
af sögu hússins og í hverju
endurbæturnar verði fólgnar.
„Það var lengi vel talið að
húsið væri mun eldra, eða frá
1735, en nú hefur komið í ljós að
sennilegast er það nokkuð yngra
Rækjuveiðar hafa gengið vel í
vetur hjá þeim tveimur bátum
sem stunda veiðarnar frá
Sauðárkróki að sögn Sigríðar
Sigurðardóttur, verkstjóra og
matsmanns hjá Rækjuvinnsl-
Hörpudiskveiðar frá Skaga-
strönd hafa skapað mikla vinnu
þar í vetur, en nú er þeim hætt,
og þá líklega frá 1772. Þetta
hefur verið vörugeymsluhús, en
ekki beinlínis verslunarhús. Á
Hofsósi hafa verið mörg önnur
gömul hús. Það má sjá á gamalli
mynd frá 1915 að þarna niðri við
höfnina hafa staðið á þeim tíma
ein tólf hús svipaðrar gerðar.
Þau eru núna öll horfin og þegar
Þjóðminjasafnið keypti Pakk-
húsið árið 1952 stóð fyrir dyrum
að rífa það líka.
Þetta er með elstu húsum á
landinu. Á ísafirði eru nokkur
hús frá svipuðum tíma, en eldri
hús eru engin hérlendis utan
steinhúsin gömlu, Hólakirkja,
Nesstofa, Stjórnarráðshúsið og
Bessastaðir. Þá eru Viðeyjar-
stofa og Húsið á Eyrarbakka
nokkuð eldri en þessi hús eru öll
með nokkuð öðru sniði en húsið
á Hofsósi. Húsin á Isafirði eru
líkust og byggð á svipaðan hátt,
þ.e. stokkabyggt. Svona hús
unni Dögun hf. á Sauðárkróki.
Alls hafa veiðst um 70 tonn af
rækju upp úr sjó, en það gera um
19 tonn af fullunninni rækju, að
sögn Sigríðar.
Afli bátanna tveggja, Týs og
enda mjög erfitt að selja
hörpudiskinn um þessar mund-
ir.
hafa að sjálfsögðu staðið víða á
einokunartímanum, en nú eru
mjög fá eftir og okkur finnst full
ástæða til að varðveita þau.
Það hefur aldrei verið átt neitt
við viðgerð á húsinu til þessa, en
nú stendur sem sagt fyrir dyrum
að hefja viðgerð á því í vor.
Stefán Gunnarsson, trésmíða-
meistari, sér um viðgerðina á
húsinu. Ég hef ekki talað við
hann nýlega svo vel getur verið
að hann sé eitthvað byrjaður nú
þegar,” sagði Þór Magnússon.
Það kom fram hjá þjóðminja-
verði að margt þarf að gera fyrir
húsið. T.d. þarf að laga
grunninn undir því og víða þarf
að skeyta í bjálka, þar sem þeir
eru farnir að bila og fúna. Einnig
þarf að taka þakið í gegn og
endurnýja það. Það er járn á
þakinu núna, en upprunalega
hefur verið súðþak á því og
skarsúð þar undir. Það á því að
Blátinds, mun hafa dottið niður
um nokkurra daga skeið kring
um páskana, en nú virðast allar
horfur á að veiðarnar séu að
glæðast á nýjan leik.
íslenska útflutningsmiðstöðin
kaupir rækjuna af Dögun og nú
mun vera búið að selja alla þá
rækju sem veiðst hefur það sem
af er vertíðinni og verður það
líklega að teljast gott miðað við
ástandið í þessum málum í
vetur.
setja skarsúð eins og hún var og
síðan rennisúð yfir.
Hvað skyldi svo eiga að nota
húsið í framtíðinni? Þjóðminja-
vörður var spurður hvort
einhverjar hugmyndir væru á
lofti um það.
„Nei, það er nú ekki. Það er
engin serstök notkun fyrirhuguð
á því. í rauninni er ekki auðvelt
að nota það til neins. Það mætti
svo sem geyma eitthvað í því, en
hvað það ætti að vera er ekki
gott að sjá í fljótu bragði.”
— Kæmi til greina að nota
húsið undir einhvers konar
minjasafn?
„Ég veit ekki hvort ástæða er
til að ýta undir það, því
Skagfirðingar eiga eitt minja-
safn i Glaumbæ og þyrfti frekar
að sinna því en koma upp fleiri
söfnum í Skagafirði,” voru
lokaorð Þórs Magnússonar,
þjóðminjavarðar.
Hofsóshreppur
hefur keypt nýja
hafnarvog, sem
kostar um tvær
milljónir króna
Hofsóshreppur hefur fest
kaup á nýrri hafnarvigt og
verður henni komið fyrir í
sumar.
Ófeigur Gestsson, sveit-
arstjóri, sagði í samtali við
Feyki, að þetta væri
framkvæmd upp á um tvær
milljónir króna og yrði því
ekki af öðrum framkvæmd-
um við Hofsóshöfn í sumar.
Ófeigur sagði að þörf fyrir
bætta aðstöðu í höfninni
væri orðin brýn og yrði
þetta forgangsverkefni á
næstu árum.
Rækjuverksmiðjan Dögun hf. Sauðárkrókk
Sjötíu toim af rækju
frá upphafi vertíðar
Hörpudiskveiðum hætt á Skagaströnd