Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 1
[
11
FRETTABLAÐIÐ
Fr A
Símar á kosningaskrifstofu eru 5342 oa 5344
Vestfjarðalistinn.
Miðvikudagur 5. aprfl 1995 • 13. tbl. 21. árg.
S 94-4011 • FAX 94-4423
Verð kr. 170 m/vsk.
40. Fjórðungsþing Vestfirðinga:
Johanni T. Bjarnasyni þökkuð
störfin í þágu Vestfiröinga
Fertugasta Fjórðungsþing
Vestfirðinga var haldið sl.
föstudag og laugardag í
Stjórnsýsluhúsinu á Isafirði.
Þar urðu þau tímamót, að Jó-
hann T. Bjarnason lét af starfi
framkvæmdastjóra Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga eftir að
hafa gegnt því með farsæld í
tæpan aldarfjórðung. Við tók
Eiríkur Finnur Greipsson á
Flateyri.
í þinglok tóku fjölmargir
vestfirskir sveitarstjórnarmenn
til máls og þökkuðu Jóhanni T.
Bjarnasyni störf hans í þágu
Vestfirðinga og samstarfið á
liðnum árum. Rifjuð voru upp
ýmis þjóðþrifamál hér vestra
sem Jóhann átti frumkvæði að
eða beitti sér fyrir, þótt flestir
væru í byrjun harla vantrúaðir
á framgang sumra þeirra, svo
sem jarðgöngin undir Breiða-
dals- og Botnsheiði og Stjórn-
sýsluhúsið á Isafirði.
Vestfirska fréttablaðið
þakkar Jóhanni T. Bjarnasyni
sérstaka lipurmennsku og ljúf-
mennsku í öllum samskiptum
gegnum árin.
A næstunni mun Vestfirska
fréttablaðið að venju gera
rækilega grein fyrir málum
þeim sem til umfjöllunar voru
á Fjórðungsþingi.
Framkvæmdastjóraskipti hjá Fjóröungssambandi Vestfirðinga: Jóhann T. Bjarnason er
staöinn upp úr stólnum fyrir Eiríki F. Greipssyni.
Framboðs-
fundirnir trún-
aðarmál???
Kynning á sameiginlegum framboðsfundum í kosninga-
baráttunni hér vestra hefurfrá upphafi verið í algerum ólestri.
Segja má að hápunktur ræfildómsins og ómennskunnar hafi
verið á ísafirði um síðustu helgi, þar sem tveir helstu fundir
kosningarbaráttunnar á Vestfjörðum voru haldnir. Á föstu-
dagskvöldið var sameiginlegur fundur í Alþýðuhúsinu á Isa-
firði og mættu þar sárafáir, enda var farið með þann fund
eins og mannsmorð eða trúnaðarmál og hann því ekkert
auglýstur. Almenningur á ísafirði vissi ekkert af jjeim fundi
og þeir sem kannski hefðu viljað koma áttu þess þvi engan
kost.
Svipuðu máli gegnir um fundinn sem útvarpið stóð fyrir og
haldinn var í nýja íþróttahúsinum á Torfnesi á laugardag. Þar
voru örfáir tugir fólks mættir í gímaldið og lætur nærri að
þriðjungur þeirra er í húsinu voru hafi verið frambjóðendur
og starfsmenn. Enda var sá fundur heldur ekkert kynntur
nema í útvarpinu.
Litli leikklúbburinn:
Fnumsyning
á föstudag
Litli leikklúbburinn á (safirði frumsýnir gamanleikinn Á
svið eftir Rick Abbott, í þýðingu Guðjóns Ólafssonar kenn-
ara, föstudagskvöldið 7. apríl kl. 20.30 i félagsheimilinu í
Hnífsdal.
Miðapantanir í símum 3856 og 3645 eftir kl. 19 á kvöldin.
Birna Guömundsdóttir, Feguröardrottning Vestfjaröa 1993, krýnir hér Ásu Brynju Reynisdóttur,
Feguröardrottningu Vestfjaröa 1995. Vinstra megin er Ljósmyndafyrirsæta Vestfjarða 1995, Una
Guörún Einarsdóttir, en hægra megin á myndinni er Vinsælasta stúlkan, Helena Halldórsdóttir.
Asa Brynja
Reynisdóttir
Ása Brynja Reynisdóttir, 21
árs úr Bolungarvík, var kjörin
Fegurðardrottning Vestfjarða í
Krúsinni á laugardagskvöldið.
Ljósmyndafyrirsæta Vest-
fjarða 1995 var kjörin Una
Guðrún Einarsdóttir, 18 ára og
einnig úr Bolungarvík. Þátt-
takendur kusu síðan úr sínum
hópi Vinsælustu stúlkuna og
kom sá titill í hlut Helenu
Halldórsdóttur, 18 ára ísfirð-
ings.
Kynnir og veislustjóri á
krýningarkvöldinu varMagnús
Ólafs Hansson. Alls tóku fimm
stúlkur þátt í keppninni.
Kosninga-
krossgáta
eftir
Hafliða
Magnússon
á Bíldudal
- bls. 6
PÓLLINN
HF. ® 3092
Sala & þjónusta
©
PÓLUNN HF
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafelndaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
FRÁBÆRT TILBOÐSVERÐ Á LASER TÖLVUM
MACINTOSH TÖLVUM - HP PRENTURUM
MARGMIÐL UNARPÖKKUM
PC - leikir i miklu urvali
Daglegt áætlunarflug
um Vestfirði. Leiguflug
innanlands og utan,
fimm til nítján farþega
vélar.
FL UGFEL AGIO Brottför
frá ísafirði
jr kl' 11 alla virka daaa.
ISAFIROI
Sími 94-4200
Sjúkra- og
neyðarflugsvakt
allan sólarhringinn