Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 8

Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 8
8 Skíðamót íslands og lcelandair Cup á ísafiröi: Keppni hefst á morgun - og stendur fram á sunnudag Skíðamót íslands sem haldið verður á skíðasvæði ísfirðinga næstu daga ásamt alþjóðlega Flugleiða- mótinu (lcelandair Cup) verður sett í Isafjarðarkapellu í kvöld, miðvikudagskvöld kl. 20.30. Keppni hefst síðan eftir hádegi á morgun og stendur fram á sunnudag en þá um kvöldið kl. 20.30 fer fram verðlaunaafhending og mótsslit í Framhaldsskóla Vestfjarða. Dagskrá verður sem hér segir, með venjulegum fyrirvara um nauðsynlegar breytingar eftir aðstæðum. FIMMTUDAGUR 6. APRÍL Tungudalur: 5 km ganga kvenna, frjáls aðferð kl. 13.00 10 km ganga pilta, frjáls aðferð 15 km ganga karla, frjáls aðferð FÖSTUDAGUR 7. APRÍL Tungudalur: Stórsvig karla, 1. ferð kl. 10.00 Stórsvig kvenna, 1. ferð kl. 11.00 Stórsvig karla, 2. ferð kl. 12.30 Stórsvig kvenna, 2. ferð kl. 13.15 3x5 km boðganga kvenna kl. 13.00 3x10 km boðganga karla LAUGARDAGUR 8. APRÍL Seljalandsdalur: Svig kvenna, 1. ferð kl. 9.00 Svig karla, 1. ferð kl. 9.45 Svig kvenna, 2. ferð kl. 11.30 Svig karla, 2. ferð kl. 12.45 Skíðastökk kl. 13.00 Norræn tvíkeppni SUNNUDAGUR 9. APRÍL Seljalandsdalur: Svig kvenna, 1. ferð kl. 9.00 Svig karla, 1. ferð kl. 9.45 Svig kvenna, 2. ferð kl. 11.30 Svig karla, 2. ferð kl. 12.45 Samhliðasvig kvenna og karla kl. 15.00 Tungudalur: 7,5 km ganga kvenna, hefðb. kl. 11.00 15 km ganga pilta, hefðb. 30 km ganga karla, hefðb. Viðskiptanetið hf. leitar sér að þjónustufull- trúa fyrír Vestfirði. Krafist er reynslu af sölu- mennsku, innsýni í rekstur fyrirtækja og að viðkomandi sé vel kynntur á svæðinu. Nánari upplýsingar í síma 568-3870. Umsóknir sendist Viðskiptanetinu hf., Skútu- vogi 11, 104 Reykjavík, c/o Lúðvíg Árni Sveinsson. |.jjjjjjji Miðvikudagur^apríH995^^^^^^^^^^^^^^^J VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ Brynhildur Barðadóttir: Traust velferðarkerli - Markviss fjölskyldustefna Þjóðvaki hefur sett fram skýra stefnu um mótun opin- berrar fjölskyldustefnu og traust velferðarkerfi. Þannig leggjum við áherslu á að hér verði öflugt velferðarkerfi sem tryggi rétt allra til við- unandi afkomuöryggis. Markmið hreyflngarinnar er að hlúa að undirstöðum vel- ferðarinnar, tryggja að allir fái notið atvinnu, menntunar, heilbrigðisþjónustu og hús- næðis óháð efnahag, kynferði eða búsetu. Við þurfum fjölþættara vel- ferðarkerfi, víðtækari félags- lega þjónustu og enn markviss- ari jöfnunaraðgerðir með tekjutilfærslum en nú stendur til boða. Lífsgæði snúast ekki eingöngu um efnahagslega af- komu heldur lúta að öðrum fjölbreytilegum þörfum, svo sem öryggi, heilsu og andleg- um verðmætum. I velferðar- hugtakinu er að auki fólginn siðferðilegur mælikvarði sem tengist mannúð, réttlæti og jöfnuði. Þetta er kjarninn í markvissri fjölskyldustefnu. Samfara breyttum lífsháttum hafa verkefni heimilanna breyst til muna. Samfélagið er orðið flóknara og heimilislífið hefur orðið að laga sig að því. Farsælt samspil atvinnu og fjölskyldulífs er nánast orðið kjarni málsins varðandi tilvist heimilanna. Atriði eins og langur vinnudagur fullorðinna utan heimilis, aukið hlutverk skólanna í uppeldi barna og fjölgun aldraðra á vistheimil- um, hefur líklega Ieitt til þess að fjölskyldurnar hafa á vissan hátt fengið önnur hlutverk. Opinber tjölskyldustefna verður að taka mið af þörfum allra fjölskyldumeðlima, barna jafnt sem aldraðra, kvenna jafnt sem karla. Hún viðurkennir fjölskylduna seni vettvang til- finningalegra tengsla og gagn- kvæmrar ábyrgðar og leitar jafnvægis milli þess að mæta þörfum hennar fyrir opinbera þjónustu annars vegar og þess að varðveita hlutverk hennar og Brynhildur Baröadóttir. mikilvægi hins vegar. íslendingar eiga hlutfalls- lega flest börn af Norðurlanda- þjóðum en verja hins vegar minnstu til velferðarmála. Hér er tekið mið af skiptingu út- gjalda til félags- og heilbrigð- ismála sem renna til fjöl- skyldna 0£ barna á Norð- ulöndum. I hlutfalli af lands- framleiðslu nema fjárhæðirnar 2,5% á fslandi, 5,1% í Svíþjóð og 3,5% í Danmörku, Finnlandi og Noregi. Fjölskyldunum verður að vera kleift að takast á við þau verkefni sem þær eru best fallnar til að annast. Eitt helsta viðfangsefni heimilanna er uppeldi og umönnun barna. Oft er þetta tímabil í lífi fjölskyld- unnar tiltölulega stutt og því mikilvægt að þannig sé búið að barnafjölskyldum að þær geti, á viðunandi hátt, sinnt þessu verkefni. Hér skiptir miklu máli atriði eins og samspil heimil- anna, atvinnulífs og skóla, ekki síður en örugg daggæsla fyrir ung börn. Samskipti heimila og skóla hafa mikil áhrif á velferð barna og er mikilvægt að sam- vinna foreldra og þeirra sem annast börn þeirra daglangt flesta daga vikunnar sé í góðum farvegi. Viðurkenning á heimilis- störfum og sá kostnaður sem foreldrar hafa af því að sækja vinnu eru atriði sem skipta fjölskyldulíf miklu máli. Hjón og sambýlisfólk fá ónóga að- stoð frá opinberum aðilum vegna barnagæslu, samfelldur skóladagur er ekki orðinn al- mennur og ekki er samræmi milli vinnudags foreldra og viðveru barna í skóla. Efnahagsaðgerðir ríkis- stjórna undanfarinna áratuga hafa almennt ekki tekið mið af þörfum fjölskyldunnar sem heildar og barnafjölskyldur hafa því miður liðið fyrir að ekki er til opinber fjölskyldu- stefna í landinu. Þjóðvaki hefur sett fram sjö áherslu atriði við endurskipulagningu velferðar- kerfisins og framkvæmd mark- vissrar fjölskyldustefnu; * Sett verði löggjöf um op- inbera fjölskyldustefnu og komið á fót fjölskylduráðgjöf um allt land. * Endurskipulögð verði öll þjónusta og stuðningur við barnafjölskyldur, sem taki mið af framfærslumöguleikum fjöl- skyldna og stöðu á vinnumark- aði. * Megináhersla verði lögð á öflugt forvarnarstarf. * Styrkja ber vímuefnavarnir af alefli, bæði forvarnir, með- ferð og löggæslu. Taka ber hart á öllum brotum á áfengis- og vímuefnalöggjöfinni. * Auka þarf endurmenntun, stoðþjónustu og liðveislu fyrir fatlaða og bæta aðbúnað fólks sem þjáist af langvinnum sjúk- dómum. * Heimaþjónusta og heima- hjúkrun verði efld og verði á ábyrgð sveitarfélaga. Framkvæmd opinberrar fjöl- skyldustefnu á að vera sameig- inlega á ábyrgð ríkisvalds og sveitarfélaga. A vettvangi rik- isvaldins felst hún einkum í því að fela tilteknu ráðuneyti að hafa heildaryfirsýn yfir málefni fjölskyldunnar og bera ábyrgð á markvissri fjölskyldustefnu sem falli best að þörfum henn- ar. Hvað viðkemur þætti sveit- arfélaganna verður þeirra hlut- verk að framfylgja stefnunni og sjá til þess að öllum þáttum hennar sé fullnægt. Þó verður að vera tryggt að sveitarfélög- um séu tryggðir tekjustofnar til að framfylgja markvissri fjöl- skyldustefnu með allri þeirra auknu þjónustu við íbúa sveit- arfélaganna sem henni fylgja. Til langs tíma litið tel ég að það myndi leiða til hagræðingar og sparnaðar fyrir sveitarfélögin þar sem þau munu hafa betri yfirsýn yfir alla málaflokka og þá betri aðstöðu til að skipu- leggja og hagræða í fram- kvæmd þegar allir þættir þjón- ustunnar eru á sömu hendi. Þetta á til dæmis við fram- kvæmd heimaþjónustu og heimahjúkrunar. Þjóðvaki er eina stjórnmála- aflið seni hefur sett fram skýra stefnu um markvissa fjöl- skyldustefnu og traust velferð- arkerfi og byggir á raunhæfum leiðum til að allir landsmenn geti hér búið öruggir um eigin afkomu og fjölskyldna sinna. Fólk á ekki að þurfa að horfa upp á fjárhagslegt hrun heimil- anna þó upp komi erfiðleikar eins og atvinnuleysi, veikindi, fötlun eða aðrir félagslegir erf- iðleikar. Hlutverk velferðar- kerfisins er að tryggja að grunninum sé ekki kippt undan einstaklingum og fjölskyldum þó syrti í álinn stöku sinnum, fólk á að geta treyst því að velferðarkerfið sé svo traust að það þurfi ekki að horfa upp á afkomugrundvellinum kippt undan sér þrátt fyrir erfiðleika og áföll. Atkvæði greitt Þjóðvaka er atkvæði greitt traustu velferð- arkerfi, auknum jöfnuði og bættum lífskjörum. Leggið ykkar af mörkum til að þessum markmiðum verði náð með því að greiða ÞJÓÐVAKA at- kvæði ykkar 8. apríl n.k. Höfundur erfélagsmálastjóri á Isafirði og skipar 2 sœti á framboðslista Þjóðvaka á Vestfjörðum. „Guð láti flott á vita" I yfirlýsingu sex lækna við FSÍ/HSÍ er látið að því liggja, að ég hafi gefið í skyn að ósætti væri aftur upp komið í lækna- hópnum. Það er langt í frá. Eg gagnrýndi hins vegar Einar Axelsson, heilsugæslulækni, fyrir skrif, sem ég taldi ósæmi- leg. Þar réðst hann með ósann- indum og söguburði að emb- ættismönnum heilbrigðisráðu- neytisins með ráðuneytisstjór- ann í broddi fylkingar, að framkvæmdastjóra FSI/HSI og öðru fólki, sem ekkert hefur til saka unnið. Eg taldi skrif þessi ómakleg og að læknirinn gætti ekki sóma síns. Ég fagna því hins vegar, að læknirinn skuli ekki líka eiga í útistöðum við kollegana. Guð láti gott á vita. Sighvatur Björgvinsson. HJA OKKUR FÆRÐU NYJUSTU MYNDBONDIN 350 Videoúrval Hafnarstræti 11 • ísafirði Sími 3339

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.