Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Síða 2
2
Hrannargötu 2
ísafirði
GRÍMAN
Gríman er sannkallað
augnakonfekt og hin
besta skemmtun sem
svíkur engan.
Með ógnarhraða hefur
grínistinn Jim Carrey
skotist upp á stjörnuhimin
kvikmyndanna á innan
við ári. The Mask er ein
vinsælasta mynd síðasta
árs í kvikmyndahúsum
um allan heim. Þær vin-
sældir koma engum á
óvart sem myndina hafa
séð.
Major League II
Major League var ein af
mest sóttu myndum
Bandaríkjanna árið 1989.
Þetta var saga um hvernig
hægt er að fá hinn am-
eríska draum uppfylltan,
bara ef menn eru tilbúnir
til að leggja það á sig sem
til þarf.
UTSALA
fl GEISLfl-
20%-80%
AFSLÁTTUR
TOPP TÍU
1. City Slickers 2
2. When a Man Loves a...
3. Joshua Tree
4. Maverick
5. Next Door
6. Ace Ventura Pet Detective
7. Beverly Hill Cop 3
8. Four Weddings anda...
9. Lightning Jack
10. The Mask
Miðvikudagur^apnH995^^^^^^^^^^^^^^^j
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
Vígsla í Tungudal 2. apríl:
Nýtt skíðasvæði ísfirðinga formlega opnað
- Búið að koma upp þrem lyftum af sex á mjög víðfemu skíðalandi sem spannar yfir gamla
skíðasvæðið á Seljalandsdal og nýtt skíðasvæði í Tungudal
Sigurður Jónsson (Búbbi)
opnaði nýja skíðasvæðið
formlega með því að gang-
setja neðstu lyftuna og
spennti hann að því búnu á
sig gönguskíðin og lét hana
draga sig upp fjallið.
Síðastliðinn sunnudag (2. apríl)
var nýja skíðasvæði Isflrðinga
vígt formlega að viðstöddu fjöl-
menni. Vígslan fór fram við nýju
skíðalyfturnar í Tungudal og
lýsti Eyjólfur Bjarnason, for-
stöðumaður tæknideildar fsa-
fjarðarkaupstaðar, aðdraganda
og sögu framkvæmda á svæðinu.
Þegar vígslan fór fram vant-
aði þrjá daga upp á að ár væri
liðið frá því er snjóflóðið mikla
féll á Seljalandsdal 5. apríl í
fyrra og lagði öll skíðamann-
virki sem þar voru í rúst að
undanskildum skíðaskálanum.
Síðan hörmungarnar dundu
yfir hafa menn sannarlega látið
hendur standa fram úr ermum
og í raun ótrúlegt að tekist hafi
á svo skömmum tíma að
skipuleggja nýtt skíðasvæði og
koma upp þrem skíðalyftum.
Vegur og vandi af vali og
skipulagi nýja skíðasvæðisins
hefur að stórum hluta hvílt á
þrem mönnum sem bæjarstjórn
skipaði í nefnd á t'undi sínum
þann 15. apríl 1994 og var falið
það hlutverk að gera tillögur að
nýju skíðasvæði fyrir Isfirð-
inga og nágranna. I nefndina
voru skipaðir skíðamennirnir
Þröstur Jóhannesson og Haf-
steinn Sigurðsson auk for-
stöðumanns tækndeildar, Ey-
jólfs Bjarnasonar. Skilaði
nefndin áfangaskýrslu strax
þann 15. maí í fyrra.
Tillaga þeirra þremenninga
gerði ráð fyrir mjög víðfeðmu
skíðasvæði sem næði yfir
Seljalandsdal og Tungudal
með alls sex lyftum. Þann 24.
maí var nefndinni heimilað að
bjóða út smíði á sex lyftum
samkvæmt nýju skipulagi.
Skemmst er frá því að segja
að eftir skoðun á þeim þrem
tilboðum sem bárust var á-
kveðið að taka tilboði frá Is-
traktor um Leitner lyftur sem
hljóðaði upp á um 65 milljónir
króna. Akveðið var í þessum
áfanga að að hefja smíði á
Eyjólfur Bjarnason, forstööu-
maöur tæknideildar ísafjarðar-
kaupstaðar.
Kristján Guömundsson, formaður Skíðafélags ísafjarðar,
afhenti Þorsteini Jóhannessyni forseta bæjarstjórnar
ísafjarðar blóm og bjöllu um hálsinn sem þakklætisvott frá
skíðamönnum fyrir vel unnið verk.
Af nýja skíðasvæðinu í Tungudal. Þar eru nú tvær lyftur í gangi og dregur sú efri fólk upp á
Sandfell á Seljalandsdal. Þaðan má renna sér í aðra lyftu sem er í jaðri gamla skíðasvæðisins
á Seljalandsdal.
Páll Gíslason hjá ístraktor, sem er umboðsaöili Leitner
lyftnanna og snjótroðarans, er hér á tali við Hafstein
Sigurðsson sem er einn af höfundum að nýskipulögðu
skíðasvæði á Seljalandsdai og í Tungudal.
lyftum númer I, 2 og 4 sam-
kvæmt skipulagi. Tvær af
þessum lyftum voru síðan
reistar í Tungudal og ein á
Seljalandsdal. Aðalverktaki
við uppsetningu á lyftunum
þrem var Eiríkur og Einar
Valur hf., en þeir áttu lægsta
tilboð í það verk.
Þá var samið við Elísabetu
Gunnarsdóttur arkitekt um að
gera endanlegt skipulag svæð-
isins, sem hún vann ásamt
Einari Olafssyni.
Síðla sumars var hafist
handa og gekk verkið ótrúlega
vel þrátt fyrir tnikla erfiðleika
vegna ótíðar.
Þegar leið fram á haustið var
reyndar svo að jafnvel bjart-
sýnustu mönnum var hætt að
lítast á blikuna varðandi það að
hægt yrði að koma svæðinu í
gagnið á þessum vetri. Með
samstilltu átaki hefur þetta nú
tekist.
Auk þess að koma upp
þessum þrem skíðalyftum
hefur verið unnið að gerð bíla-
stæða og annarrar aðstöðu fyrir
skíðafólk í Tungudal. Þá var
einnig ráðist í að kaupa nýjan
snjótroðara og voru fest kaup
á sýningartroðara frá Leitner
sem aðeins mun vera keyrður
um 600 klst.
Troðarinn kom til Isafjarðar
fyrir skömmu, en maður sem
kom frá Italíu til að vinna við
samsetningu hans fékk að
kynnast ham veðurguðanna og
varhann eina fjóra sólarhringa
á leiðinni frá Italíu til Isafjarð-
ar, en það var ferð sem taka átti
einn sólarhring. Það tókst svo
aðfararnótt sunnudagsins 2.
apríl að koma troðaranum
saman og lauk því verki
klukkan sjö um morguninn.
Hann var því klár í slaginn
þegar vígslan fór fram um há-
degisbil.
Troðari þessi er eins og áður
sagði af Leitner-gerð og mun
vera sá fullkomnasti á landinu
þótt víðar væri leitað. Til
gamans má geta þess að kraft-
mestu troðarar landsins hingað
til hafa verið með 250 hestafla
vélum, en sá nýi er rneð 360
hestafla vél og á mun breiðari
beltum en fyrirrennarar hans á
dalnum.
Þakkaði Eyjólfur öllum
þeim sem nálægt framkvæmd-
unum komu á einn eða annan
hátt, verktökum, þingmönnum
og bæjarstjórn. Þá þakkaði
hann sérstaklega Páli Gíslasyni
hjá Istraktor fyrir hans þátt í að
láta hlutina ganga upp. Sagði
Eyjólfur að ef hann hefði ekki
unnið að þessum málum eins
og hann hafi gert, þá hefðu Is-
firðingar orðið að bíða til
næsta árs rneð opnun skíða-
svæðisins. Þá þakkaði Eyjólf-
ur einnig sérstaklega starfs-
mönnum áhaldahúss sem
staðið hafa sig með mikilli
prýði við uppbyggingu á
svæðinu.
Að loknum ræðuhöldum
var Sigurður Jónsson (Búbbi
prentari) kallaður til að opna
svæðið formlega með því að
gangsetja neðstu lyftuna á
svæðinu.
Búbbi man tímana tvenna
í skíðaíþróttinni og hann var
í hópi þeirra vösku manna sem
komu upp fyrstu stóru lyftunni
á Seljalandsdal. Ekki var fyrir
að fara stórvirkum vinnu-
vélum við uppsetningu á þeirri
lyftu sem var vel yfir einn
kílómetri að lengd.
- hk.
Fullkomnasti og öflugasti snjótroðari landsins er nú kominn í gagnið á nýju skíðasvæði
ísfirðinga. Hann er af Leitner gerð og er með 360 hestafla vél.