Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Side 3
YESTFffiSKA
FRÉTTABLAÐIÐ L
Miðvikudagur 5. apríl 1995
Börnin á Hlíöarskjóli:
Sjávarútvegs-
sýning
í Slunkaríki
Hópur barna á Hlíðarskjóli innan um myndverkin
Slunkaríki.
Þessa dagana stendur yfir í Slunkaríki á ísafirði
sýning á vinnu vetrarins hjá börnunum á Hlíðarskjóli.
í haust ákvað starfsfólk Hlíðarskjóls að vinna að einu
sérstöku verkefni allan veturinn og varð sjávarútveg-
urinn fyrir valinu. Þar voru ekki síst höfð í huga hin
nánu tengsl ísafjarðar og ísfirðinga við sjóinn.
Börnin fóru í vettvangsferðir á vinnustaði, í Neta-
gerð Vestfjarða, Gúmmíbátaþjónustuna, Norðurtang-
ann og íshúsfélagið. Einnig var farið inn í Seyðisfjörð
þar sem gerðar voru rækilegar rannsóknir á fjörunni
og lífríki hennar.
Afraksturinn er hin fjölbreytilegustu myndverk sem
sýnd eru bæði uppi og niðri í Slunkaríki.
Guðmundur Sigurðsson á Flateyri skrifar:
„Hagsmunagæsluflokkur
par exellence"
í öðru tölublaði Vesturlands
er mikil ritsmíð eftir Olaf
Hannibalsson fyrrum athafna-
mann í Selárdal og fer hann
mikinn. Sérstaklega varar at-
hafnaskáldið við sex-
flokknum. Ekki er undirrituð-
um kunnugt um að sex-
flokkurinn hafi boðið fram utan
Ítalíu, enn sem komið er. Þetta
sýnir auðvitað hversu ruglaður
Olafur er í tíma og rúmi og ekki
von að hann viti heldur, frá degi
til dags, hvort hann er til hægri
eða vinstri í pólitíkinni.
Á tignarlegu flugi sínu full-
yrðir Ólafur, að kjósi menn
ekki Sjálfstæðisflokkinn séu
þeir að kjósa yfir sig hrossa-
kaup, sjóðasukk, undanláts-
semi við hagsmunahópa og
spillingu.
Við hverju er sonur Hanni-
bals að vara? Er hann að vara
við því þegar Þorsteinn Pálsson
eyddi einum áramótum í að
selja Síldarverksmiðjur ríkisins
áður en ný stjómsýslulög tóku
gildi? Eða var hann að vara við
því þegar Halldór Blöndal
meinaði útlendu flugfélagi að
tljúga til landsins þar sem
möguleiki var á að boðin yrðu
lægri fargjöld heldur en Flug-
leiðafargjöldin?
Hvar voru hagsmunir al-
mennings þegar Halldór Blön-
dal „Flugleiðaráðherra“ setti
Guðmundur Sigurðsson.
fram ósk um að ekki yrði
fjölgað hér olíufélögum nema
því aðeins að Flugleiðir högn-
uðust á því með algerlega ó-
tengdum ívilunum?
Ekki þarf að fara mörgum
orðum um hagsmuni grunn-
skólanema þegar Ólafur Ein-
arsson menntaráðheiTa beitti
sér fyrir því að skólayfirvöld
keyptu bíómyndir Hrafns
Gunnlaugssonar, þrátt fyrir að
þær væru bannaðar bömum.
Ellert B. Schram, fyrrum
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, ritaði leiðara í DV í vetur
um nýjan stíl Davíðs Oddsson-
ar og segir þar meðal annars:
„En kannske liggur galdurinn í
því að Davíð hefur einmitt
breytt ímynd sinni. Hann verð-
ur landsföðurlegri með hverj-
um deginum og raunar má
segja að forysta hans hafi
breyst í andhverfu sína. I stað
þess að láta sverfa til stáls hefur
formaður Sjálfstæðisflokksins
farið mjúku leiðina. I kvóta-
málurn er bæði haldið og
sleppt, í landbúnaðarmálum er
framsóknarleiðin valin, í kjör-
dæmamálinu og Evrópumálum
er öllu slegið á frest. Þessi
pólitík eða „ekki pólitík“ hefur
sannarlega borgað sig í því til-
liti að Sjálfstæðisflokkurinn
hefur aftur náð vopnum sínum
og gengur sameinaður til kosn-
inga. En Sjálfstæðisflokkurinn
er heldur ekki líklegur til átaka
eða uppstokkunar. Hann er að
sigla í það farið að vera hags-
munagæsluflokkur par
excellence“.
Þetta er það sem Ólafur
Hannibalsson, væntanlegur
varaþingmaður, telur vera það
sem þjóðina vantar helst.
Höfundur er bifreiðastjóri
á Flateyri.
Leikfélag
Bolungarvíkur:
Fpuid-
syning
f
a
föstu
dag
Leikfélag Bolungar-
vfkur er nú að Ijúka æf-
ingum á barnaleikritinu
„Síngjarna sædýrið" eftir
David Wood í leikstjórn
Þórunnar Magneu
Magnúsdóttur. Leikend-
ur eru tíu unglingar á
aldrinum 14 til 19ára.
Leikritið gerist í fjöru-
polli og eru persónurnar
ýmis sjávardýr og fleiri.
Boðskapur verksins
gengur út á umhverfis-
vernd og á erindi til allra
aldurshópa.
Frumsýning verður í
Víkurbæ á föstudags-
kvöldið, 7. apríl kl.
20.00. Aðrar sýningar
verða auglýstar síðar.
VESTFIRDINGAR!
I
KÖSTUM
ATKVÆÐUM
OKKAR
EKKIÁ GLÆ
ílll Framsókii á Vestfjörðum