Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Qupperneq 4

Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Qupperneq 4
4 fr------------------ ^ V ESTFI m 1 [ FRÉTTABLAÐIÐ | Vestfirska fréttablaðið er vikublað, óháð stjórnmálaflokkum, Blaðið kemur út síðdegis á miðvikudögum og fæst bæði í lausa- sölu og áskrift. Verð kr. 170 m/vsk. Ritstjórn og auglýsingar: Aðalstræti 2, ísafirði, sími (94)-4011, fax (94)-5225. Ef enginn er við á skrifstofunni er reynandi að hringja í síma (94)-3223 (ísprent). Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon, Túngötu 17, ísafirði, hs. (94)-4446. Útgefandi: Vestfirska útgáfufélagið hf., Aðalstræti 35, ísafirði. Prentvinnsla: ísprent hf., Aðalstræti 35, ísafirði, sími (94)-3223. Vestfirðinga í talninguna Nú líður að kosningum. Allir fjölmiðlar eru kjaftfullir af áróðri á hverjum einasta degi. Pólitískar auglýsingar, pólitískar greinar og pólitískir umræðufundir eru hvar sem litið er. Kosningabaráttunni má líkja við tilhugalíf sem endar með sjálfum kosningunum. Kosninganóttin er þá eins konar brúð- kaupsnótt. Sú var tíðin að maður hlakkaði í margar vikurtil kosninganæturinnar. En það er að verða liðin tíð. Tölvuskratt- arnir koma með hárnákvæmar spár strax með fyrstu tölum og öll spennan er farin út í veður og vind. Þetta er strax búið. Það er einhver munur eða fyrr á árum, þegar spennan fór stigvaxandi fram eftir allri nóttu, þangað til úrslit réðust. Það er lítið gaman að vera farinn að sofa eftir fimm mínútur á sjálfa brúðkaupsnótt- ina. Eina huggunin að Vestfirðingar eru landsþekktir fyrir ótrúlegan vandræðagang í atkvæðatalningu. Við kosningarnar fyrir átta árum þurfti að bíða fram eftir hádegi næsta dag eftir lokahnykknum og svipað má segja af ýmsum kosningum hér vestra síðan. Hvernig væri að kjörstjórnir um land allt fengju vestfirska talningarmenn til starfa til að hleypa dálítið meiri spennu í kosninga- nóttina? Hlynur Þór Magnússon. ktfom' mtUáA,. /LCryClD Bílaleiga VE ■ ^PI Car rental PO TEKUR V® BlLNUM A FLUGVELLINUM PEQAR PÚ KEMUR OG SKILUR MANN EFTIR A SAMA STAÐ PEGAR PÚ FERO Mðvikudagur^aprín995^^^^^^^^^^^^^^^J VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ Vigfús Geirdal: „Myndirðu kaupa notaðan bíl a! þessum manni?" Kögun hf. starfar eingöngu í hergagnaiðnaði og viðsemjandinn er Bandaríkjaher Síðast liðinn miðvikudag sat Gunnlaugur M. Sigmundsson fyrir svörum í Svæðisútvarpi Vestfjarða. Þar kom til tals að hann væri verktaki Bandaríkja- hers. Gunnlaugur brást þá skjótt við og sagði: „Það er eitthvað sem kemur fram í grein Vig- fúsar Geirdals í Vestfirska. Eg er ekkert verktaki hjá Banda- ríkjaher og hef aldrei verið.“ Síðan hélt hann áfram og sagði að þetta væri svo fráleitt og svo mikil fásinna, að það væri í rauninni ekki svaravert. „Við erum verktakar hjá Rat- sjárstofnun, sem er íslenska r(kið,“ sagði þessi frambjóð- andi Framsóknarflokksins. Seinna bætti hann við að starf hans væri hemaði alls ó- viðkomandi; það snerist um eftirlit með iífrfki sjávar! Vísvitandi ósannindi Þetta eru merkilegar yfirlýs- ingar. Ekki bara fyrir það að maður- inn sá ástæðu til að brjóta siða- reglur Ríkisútvarpsins með því að ráðast á einstakling sem ekki var í aðstöðu til að færa hönd fyrir höfuð sér. Ekki heldur bara fyrir það að starfsmenn Svæðisútvarpsins skyldu iáta hann komast upp með slíka framkomu. Þær eru merkilegar fyrir það að þarna gerði efsti maður Framsóknarflokksins sig sekan um að fara vísvitandi með ó- sannindi. I Bandarfkjunum þar sem þessi maður er hagvanur væru ósannindi sem þessi talin bera vott um svo alvarlegt dóm- greindarleysi að maðurinn ætti sér ekki minnstu von um að ná kjöri. Ratsjárstofnun er ekki ís- lenska ríkið og það var því ekki íslenska ríkið sem greiddi Kögun hf„ fyrirtæki Gunnlaugs M. Sigmundssonar, 160 millj- ónir króna í tekjur á síðasta ári. Ratsjárstofnun hefur tekið það að sér að annast rekstur og viðhald ratsjárstöðva Banda- ríkjanna og Nató á Bolafjaili, Gunnólfsvíkurfjalli, Stokks- nesi og Sandgerði. Bandaríski flugherinn greið- ir rekstur Ratsjárstofnunar al- farið eins og fram hefur komið ítrekað í skýrslum utanríkis- ráðherra til Alþingis, ár eftir ár. Kögun hf. er undirverktaki Ratsjárstofnunar samkvæmt þessum sömu heimildum. Margsaga um launagreiðandann Gunnlaugur M. Sigmunds- son gaf þó í skyn í samtali sem ég átti við hann í janúar sl. að, það væri hergagnaframleið- andinn Flughes Aircraft sem greiddi starfsmönnum Kögunar úti í Bandarfkjunum meðan á hönnun hugbúnaðarins fyrir Is- lenska loftvarnarkerfið stend- ur. Gunnlaugur sagði mér einnig að Kögun hefði sem undirverktaki Hughes unnið verkefni fyrir „ónefnt land í Asíu“; tæplega hefur íslenska ríkið greitt þá framkvæmd. Til að fá nánari upplýsingar um Kögun benti Gunnlaugur mér sérstaklega á Talnakönnun hf. sem er hluthafi í Kögun. Þetta fyrirtæki gat ekki gefið skýrar upplýsingar um eigend- ur Kögunar. Þeir föxuðu hins vegar til mín blað úr upplýsingariti sem þeir gefa út um íslensk fyrir- tæki. Þar getur að lesa athyglis- verðar upplýsingar, m.a. annars að árið 1993 hafi einkennst af „miklum sparnaði hjá Banda- ríkjaher seni er viðsemjandi félagsins í Bandaríkjunum.“ (Leturbr. mín). Velkist menn enn í vafa um eðli atvinnureksturs Gunnlaugs M. Sigmundssonar þá er hér önnur tilvitnun í þetta ágæta upplýsngarit um Kögun: „Fyrirtækið hefur nú verið viðurkennt sem verktaki í hug- búnaðar- og rafeindaiðnaði hjá Bandaríkjaher. Fyrirtækið starfar eingöngu í hergagna- iðnaði.“ (Leturbr. mín). Einhverjir kunna að segja enn sem svo: Þetta er bara vit- leysa úr Talnakönnun. Gunn- laugur Sigmundsson hlýtur að vita hvað hann er að segja. Mannvirkjasjóður Nató Þá er því til að svara að félagi hans Olafur Þ. Þórðarson hefur tekið af öll tvfmæli um hvers konar atvinnurekstur Gunn- laugur stundar. A framboðs- fundinum á Isafirði sl. föstu- dagskvöld lagði ég spurningu fyrir að því er ég taldi Gunn- laug Sigmundsson sem var þá rétt kominn á fundinn. Þegar á reyndi treysti Gunn- laugur sér ekki til að koma upp á svið. bar við þreytu eftir langt og strangt ferðalag. Svo Olafur Þórðarson, sem var ekki eins þreyttur, tók að sér að svara. Að mestu leyti var svar Olafs bull, en í einu tilviki rataðist honum satt orð á munn. Hann nefndi að Islenska loftvarna- kerfið væri fjármagnað af Mannvirkjasjóði Nató. Það þýðir aðeins eitt. íslenska loftvarnarkerfið svokallaða er hernaðarmann- virki og aðeins hernaðarmann- virki! Þessi svokallaði sjóður fjármagnar eingöngu hernaðar- framkvæmdir. Svo verkefni Gunnlaugs og Kögunar hafa allt með hemað að gera. Þessi staðfesting Oiafs Þórðarsonar þýðir einnig að Bandaríkjaher greiðir u.þ.b. 90% af kostnaði við fram- kvæmdina. Það þýðir einnig að Bandaríkjaher greiðir 100% hlutdeild svokallaðs viðtöku- ríkis (host nation) sem ætti að vera hlutur íslendinga í þessari framkvæmd. Þetta þýðir síðast en ekki síst að Bandaríkjaher greiðir þeim verktökum sem verkið vinna allan kostnað en innhemtir hlutdeild annarra Natóríkja síðar. Mannvirkjasjóður Nató hef- ur síðan ekkert með rekstur og viðhald Islenska loftvarnakerf- isins að gera eftir það hefur verið tekið í notkun. Það er al- gerlega í höndum Bandaríkja- hers. Alvarlegur dóm- greíndarbrestur Islenska loftvarnakerfið snýst um stjórnun flugvéla og eftirlit með ferðum óvinaflug- véla. Til þessa kerfis heyra rat- sjárstöðvarnar sem nefndar hafa verið, ratsjárflugvélar, or- ustuþotur á Keflavíkurflugvelli og stjórnstöð á Keflavíkurflug- velli. Þetta kerfi hefur enga getu til að fylgjast með ferðum kafbáta í undirdjúpum, eða lífríki sjáv- ar, eins og Gunnlaugur leyfði sér að halda fram í viðtalinu við Svæðisútvarpið, enda er það ekki til þess hannað. Eg vil taka það fram að ég hef ekkert á móti því að Is- lendingar taki að sér í auknum mæli viðhald og rekstur ýmissa mannvirkja Nató hér á landi. Eg hef hins vegar mjög á móti því að fyrirtæki eins og Kögun skuli nánast komið í eigu einn- ar fjölskyldu. Mér finnst einnig að þessi aðaleigandi Kögunar hafi gert sig sekan urn alvarlegan dóm- greindarbrest þegar hann á- kvað að vera hvort tveggja í senn, þingmaður Vestfirðinga og launþegi Bandaríkjahers. Mér finnst hann síðan kór- óna þennan dómgreindar- og siðferðisbrest þegar hann reynir að skrökva til um þá starfsemi sem hann stundar og ætlar sér að stunda eftir að hann er kominn á þing. Ég lýk þessu skrifi með spurningu sem eitt sinn var spurð um annan frambjóðanda: „Myndirðu kaupa notaðan bfl af þessum manni?“ 70 ápa afmæli Sóley Magnúsdóttir, húsmóðir, Skólastíg 9, Bolungarvík, verður sjötug mánudaginn 10. apríl. Eiginmaður hennar, Hávarður Ol- geirsson, skipstjóri, varð sjötugur 8. janúar sl. Af þessu tilefni taka þau hjónin á móti gest- um í Víkurbæ í Bol- ungarvík mánudags- kvöldið 10. apríl frá kl. 20. Ættingjar, vinir og kunningjar eru boðnir velkomnir til að heilsa upp á afmælisbörnin og þiggja veitingar. T ÖLVUPAPPÍ R LJÓSRITUNARPAPPÍR - hvúurogUtaður FAXPAPPÍR Minnum einnig á ódýru litljósritnðu boðskortin okkar fyrirfermingamar ÍSPRENTHF. PRENTSMIÐJA S 94-3223

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.