Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Side 5
VESTFIRSKA
FRÉTTABLAÐIÐ
Miðvikudagur 5. apríl 1995
5
Til hamingju,
ísfirðingar!
Höfnum einangr-
unarstefnu
- Kristín Hálfdánsdóttir skrifar
I dag verður skíðalyftan á
Seljalandsdal tekin í notkun og
er þá lokið fyrsta áfanga í upp-
byggingu skíðasvæðis okkar
Isfirðinga í döiunum tveirn. Eg
vil nota þetta tækifæri og þakka
bæjarstjórn Isafjarðar og bæj-
arstjóra fyrir sköruleg vinnu-
brögð við málið og að gera
okkur mögulegt að njóta þessa
glæsilega skíðasvæðis, aðeins
ári eftir að snjóflóð lagði fyrra
svæðið í rúst.
Réttir menn í
lyftunefndinni
Frá upphafi hafa öll vinnu-
brögð sem málið varða verið til
mikillar fyrirmyndar og byrj-
aði það með vali á hárréttum
mönnum í svokallaða lyftu-
nefnd. Það er ekki síst þeim
þremur mönnum og óeigin-
gjörnu starfi þeirra að þakka,
hve vel hefur tekist til. Málið
var unnið í samvinnu við
skíðamenn og reynt að fá sem
flest sjónarmið og skoðanir
þeirra sem kæmu til með að
nota svæðið.
Einróma afgreiðslur
í bæjarstjórn
Þegar ég hugsa til þess
hvemig staðið hefur verið að
þessu máli frá hendi núverandi
og fyrrverandi bæjarfulltrúa, en
allar ákvarðanir hafa hlotið
einróma afgreiðslu í bæjar-
stjóm, fyllist ég bjartsýni á
framtíðina og von um að þetta
sé sýnishorn af því sem koma
skal. Með slíkum vinnubrögð-
um að framfaramálum bæjarins
er framtíðin björt.
Þakkir til þingmanna
Ég get ekki skilið svo við
þetta að ég þakki ekki þeirn
þingmönnum sem létu málið til
sín taka og leiddu það flókna
leið gegnurn kerfið til þeirrar
niðurstöðu sem raunin varð.
Isfirðingar! Til hamingju
með glæsilegt skíðasvæði í
dölunum tveim.
Sjáumst á skíðum.
Kristín Hálfdánsdóttir.
|
Ti* r’ - T'*rf kvfc&i. JlffillllIíTI
Bfij | ariM | i gPJJJ Jpl 1 Kb&liH . 1 : .
Lítið Panasonic
upptökutœki tapað-
ist á sunnudags-
kvöld á Isafirði.
Finnandi vinsam-
legast hafi samband
við Vestfirska frétta-
blaðið, sími 4011.
Fundarlaun.
TIL SÖLU
3ja herbergja íbúð til afhendingar
strax á Eyrinni.
Upplýsingar í síma 567 8010.
- Halldór Jónsson skrifar
Á laugardaginn ganga Vest-
firðingar að kjörborðinu og
velja fulltrúa sína á Alþingi
næsta kjörtímabil. Sjaldan hef-
ur verið mikilvægara að vanda
valið en einmitt nú. Fulltrúar
okkar á Alþingi þurfa að
tryggja hagsmuni okkar Vest-
firðinga næstu árin.
Undanfarinn áratugur hefur
verið okkur Vestfirðingum erf-
iður. Þar ræður mestu að þau
stjórnunarkerfi sem notast er
við í sjávarútvegi og landbún-
aði hafa komið mjög hart niður
á okkur. Samhliða andstæðu
stjómkerfi í sjávarútvegi hefur
afli minnkað. Við þurfum að
sannfæra aðra landsmenn um
það að hagsnrunir Vestfirðinga
fari saman við hagsmuni ann-
arra Islendinga. Aðeins með
skilningi annarra landsmanna
munum við ná árangri. Við
munum ekki ná árangri með
einangrunarstefnu.
Einn af listum þeim sem nú
eru í boði á Vestfjörðum er
svokallaður Vestfjarðalisti. Þar
eru saman komnir stuðnings-
menn manns sem tapaði í próf-
kjöri innan síns gamla flokks.
Fyrir prófkjör hafði sá maður
aldrei heyrst tala um að hags-
munum Vestfirðinga væri best
borgið með sérframboði. En
maðurinn vill á þing og því
virðist sjálfsagt að nota hvaða
Halldór Jónsson.
leið sem er til þess að ná settu
markmiði.
Stuðningsmenn Vestfjarða-
listans tala einn daginn um að
þetta sé framboð hreinræktaðra
framsóknarmanna en hinn dag-
inn um að hér sé á ferðinni
einhverskonar frelsishreyfing
Vestfirðinga sem öllu rnuni
bjarga. Þeir berja sér á brjóst og
tala um að ef Vestfjarðalistinn
fái þúsund atkvæði, þá sé
hagsmunum okkar borgið.
Jafnframt virðast stuðnings-
menn Vestfjarðalistans hafa
það að markmiði að hafa æruna
af efsta manni Framsóknar sem
hefur það eitt til saka unnið að
vinna prófkjör, óþekktur mað-
urinn. Skyldi fólk hafa spurt sig
hvers vegna óþekktur maður
nær að vinna sitjandi alþingis-
mann? Símhringingar úr
Reykjavík skýra ekki þann mun
sem varð á mönnunum.
Á undanfömum árum hafa
ýrnis sérframboð komið fram
við alþingiskosningar. Þessi
sérframboð eiga eitt sameigin-
legt. Þau hafa engu skilað. Það
mun ekki verða Vestfirðingunr
til framdráttar að á þing setjist
maður sem aðeins hefur tengsl
við tapsára Vestfirðinga.
Við Vestfirðingar þurfum í
sameiningu að sannfæra lands-
menn um það að nauðsynlegt sé
að breyta því stjórnunarkerfi
sem við lýði er í okkar helsta
atvinnuvegi, sjávarútveginum.
Við vitum að hagsmunir Vest-
firðinga fara saman við hags-
muni annara landsmanna.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins hafa lagt fram tillögur
um breytta sjávarútvegsstefnu.
Stefnu sem tryggja mun betur
hagsmuni landsmanna allra.
Tryggjum framgang þessara
tillagna ineð því að veita þeim
brautargengi á laugardaginn.
Kjósum Sjálfstæðisflokkinn og
sköpum með því sterkari Vest-
firði. Aðeins með sterkum
Vestfjörðum verður til betra
Island.
Halldór Jónsson.
Fyrir kosninsavökuna
* Orville örbylgjupopp, 6 pakkar.aðeins 198,-
* Pepsi Max, 2 lítrar..aðeins 138,-
* Egils pilsner, hálfs lítra dós.aðeins 76,-
* Tuborg pilsner, hálfs lítra dós.aðeins 76,-
Ostar — ostakökur — snakk
OPID: m ■ ■■ ■ ' jc
Bjornsbuð
y///sy/sysWsy//z//////YZ/z/y/sÝy////A
Til sölu Til sölu Til sölu Til sölu Til sölu
Skrifstofuhúsnœði að Mjallargötu 1, ísa-
firði, með sérinngangi og WC. Stœrð rúm-
lega 30 fermetrar.
Nánari uppiýsingar í síma
Túngata 1, ísafirði. Tvœr hceðir og ris og
lítil íbúð í kjallara. Bílskúr. Húsið er upp-
gert að mestu leyti.
20 eftir ki. 18.00 á kvöldin
Sumarbústaður í landi Minni-Hattardals í
Álftafirði. Tvœr hœðir, 35 fermetrar hvor. Á
neðri hœð er stofa, eldhús og WC, á efri
hœð eru 2 herbergi og svefnloft.