Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Blaðsíða 10
VESTFIRSKA
10
Kríslján
talar
ekki viö
Reyni
Eftirfarandi klausu
um Reyni Traustason frá
Flateyri, fyrrverandi
formann Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins
Bylgjunnar, getur að líta
í nýjasta Víkingnum.
Reynir er nú búsettur í
Þorlákshöfn en starfar á
DV:
„Einn útgerðarmaður
er starfandi blaðamaður,
en það er Reynir
Traustason á DV. Mjög
kaldir vindar blása milli
hans og formanns
Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna,
Kristjáns Ragnarssonar.
Kristján mun hafa á-
kveðið að ræða ekki við
blaðamanninn og út-
gerðarmanninn Reyni
Traustason.“
Fecða-
Isa-
fjarðar
endur-
vakið
Ákveðið hefur verið
að endurvekja Ferðafé-
lag ísafjarðar sem er
deild í Ferðafélagi Is-
lands.
Félögum í Ferðafélagi
Islands og öðrum áhuga-
mönnum um ferðamál,
sem búsettir eru á norð-
anverðum Vestfjörðum,
er boðið til fundar um
endurvakningu Ferðafé-
lags Isafjarðar sem hald-
inn verður í næstu viku,
miðvikudaginn 12. apríl
kl. 20.30 í sal Fram-
haldsskóla Vestfjarða.
Fundarefni verður
skýrsla núverandi
stjórnar, kosning stjórn-
ar, lagabreytingar
(breyting á nafni deild-
arinnar) og starfið
framundan. Boðið verð-
ur upp á veitingar og
myndasýningu.
Miðvikudagur 5. apríl 1995
\ TTRÉTTABLAÐIÐ
Atvinnuráðgjafi
á Vestfjörðum
Starf atvinnuráðgjafa á Vestfjörðum er
laust til umsóknar. Atvinnuráðgjafi starfar
undir yfirstjórn framkvæmdastjóra Fjórð-
ungssambands Vestfirðinga. Skrifstofa
ráðgjafans er í Stjórnsýsluhúsinu á ísa-
firði.
Um frekari upplýsingar varðandi starfið er
væntanlegum umsækjendum bent á að
snúa sér til framkvæmdastjóra sam-
bandsins á skrifstofutíma í síma 94-3170
eða 94-4780, eða til formanns stjórnar,
Péturs H.R. Sigurðssonar, í síma 94-
4368.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl og ber að
skila umsóknum til skrifstofu sambands-
ins, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1,
400 ísafjörður.
Stjóm Fjórðungssambands
Vestfirðinga.
Isafjarðarkaupstaður
Kjörfundur
á ísafirðf
119
Nýjar vestfirskar þjóðsögur
Hafþór Gunnarsson
og píptækið
Hafþór Gunnarsson, fréttaritari Sjón-
varpsins í Bolungarvík, á það til að vera
ýtinn og brögðóttur eins og títt er um góða
fréttasnata.
Þegar snjóflóðið féll á hesthús Bolvík-
inga í vetur var lýst þar yfir hættuástandi
af ótta við frekari skriðuföll og þeir einir
fengu að vera á svæðinu sem voru með
píptæki (snjóflóðaýlur). Þar er um að ræða
tæki sem menn hengja framan á sig með
ól, ekki ósvipað vasadiskói tilsýndar.
Hafþór kom á staðinn en var snúið frá
þar sem hann var ekki með píptæki. Hann
kom aftur að vörmu spori með tæki ólað
um sig miðjan með endurskinsborða. Síðan
tók hann myndir eins og hann lysti og viðtöl
á vettvangi. Þar á meðal ræddi hann við
Valdemar Guðmundsson lögreglumann,
sem mælti þá hin frægu og fleygu orð í
sjónvarp allra landsmanna, upprifinn í ún-
íforminu, þegar spurt var hvort aðgerðum
væri lokið og hver hefðu orðið afdrif hest-
anna: „Það er búið að draga alla dauðu
hestana út og þeir eru allir dauðir."
En það er af „snjóflóðapíptæki" Hafþórs
Gunnarssonar að segja, að hér var ein-
faldlega um að ræða venjulegt vasadiskó
að heiman sem hann hengdi framan á sig.
Þetta er ekki nog,
Sghvatur!
- Albert M. Högnason skrifar
Kjörfundur vegna kosninga til Alþing-
is fer fram laugardaginn 8. apríl 1995.
Kosið verður í Grunnskóla ísafjarðar
við Austurveg og Barnaskólanum í
Hnífsdal, í fjórum kjördeildum, og er
skipting í kjördeildir nánar auglýst á
kjörstað.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl.
22.00.
Yfirkjörstjórn vekur athygli kjósanda
á eftirfarandi ákvæði laga nr. 10/1991:
„Er kjósandi kemur inn í kjörfundar-
stofuna gerir hann kjörstjórn grein
fyrir sér með því að framvísa nafnskír-
teini eða á annan fullnægjandi hátt. Ef
hann þannig á rétt á að greiða atkvæði
samkvæmt kjörskránni afhendir odd-
viti honum einn kjörseðil. “
Undirkjörstjórnir og umboðsmenn
lista skulu mæta hjá yfirkjörstjórn ísa-
fjarðarkaupstaðar í Grunnskólanum
kl. 9.00 að morgni kjördags.
Yfirkjörstjórn ísafjarðarkaupstaðar.
Það er með ólíkindum að
Vestfirðir eigi iðnaðarráðherra
og hafi átt í mörg undanfarin ár.
Nú á dögunum sendi iðnað-
arráðherra starfsmönnum
Skipasmíðastöðvarinnar á Isa-
firði bréf undir rauðri rós, sem
hefur valdið mikilli kátínu
þeirra sem þekkja málið. Ráð-
herrann setti nýlega reglugerð
sem átti að bjarga skipasmíða-
iðnaðinum í landinu. En það
virðist nú vera svo, að hann hafi
ekki vitað hvað sú skipasmíða-
stöð sem staðsett er í hans
kjördæmi þarfnast, því reglu-
gerð þessi miðar við að skip
undir 100 brl. falli ekki inn í
hana. En það er einmitt sú
stærð skipa, sem hentar þessari
stöð best að smíða.
Það var því lítið gagn að
þessari ráðagerð fyrir vest-
firskan skipasmíðaiðnað.
Jón Sigurðsson og Marel
Annar iðnaðarráðherra krata,
- og líka Isfirðingur, reyndist
ísfirskum rafeindaiðnaði álíka.
Það var Jón Sigurðsson sem réð
Geir Gunnlaugsson, sem nú á
sæti í stóriðjunefnd, sem for-
stöðumann Utflutningsskrif-
Albert M. Högnason.
stofu iðnaðarráðuneytisins.
Þetta er einmitt sami Geir sem
veitir Marel forstöðu. Er það
eðlilegt, að maður sem á sjálfur
svo mikilla viðskiptahagsmuna
að gæta, sitji í svo valdamiklu
opinberu embætti? Það sjá allir
hvað samkeppnisstaða Póls-
rafeindavara á Isafirði er veik
gagnvart Marel í þessu dæmi.
Hverjir eru Vestfirðingar
í raun?
Núna, rétt fyrir kosningar er
gaman að skoða hverjir eru
Vestfirðingar í raun. Við sem
erum að halda uppi nýsköpun
í atvinnustarfsemi úti á landi,
þurfum á góðum tengslum að
halda við mennta- og rann-
sóknarstofnanir á okkar svið-
um. I haust sýndi Einar K.
Guðfinnsson gott framtak í
þessurn málum, þegar hann
bauð hingað fulltrúum Raun-
vísindastofnunar Háskóla ís-
lands til kynningarfundar með
ísftrskum fyrirtækjum.
Við áttum mjög góðan fund
saman og eftir hann hafa
myndast tengsl milli Háskól-
ans og iðnfyrirtækja á ísafirði.
Fyrir mitt fyrirtæki get ég
sagt, að þetta framtak alþingis-
mannsins Einars K. Guðfinns-
sonar skilaði meiru en allt það
sem hinn svokallaði iðnaðar-
ráðherrahefur gert fyrir vest-
firskan iðnað.
Albert M. Högnason.
Fasteignaviðskipti
Skrifstofan verður lokuð
til 24. apríl nk.
Amar G. Hinriksson
Silfurtorgi 1, sími 4144
Bílaleigu-bílar / Danmörku
Ódýrara fyrir ísientiinga
í boði eru:
Opel Corsa
Opel Astra
Opel Vectra
Opel Omega
Ford Mondeo
Vikugjald
dkr. 1.495
dkr. 1.995
dkr. 2.195
dkr. 3.495
dkr. 2.895
Audi A4 dkr. 2.895
VWGolf dkr. 1.795
VW Caravelle
8-10manna dkr. 4.995
Allt nýir bílar. Leitið tilboða.
Til afgreiðslu á Kastrup, Billund, eða skv.samkomulagi.
International Car Rental ApS.
Sími 00-45- 75 12 32 40 Fax 00-45- 75 12 60 59
— eða leitið aðstoðar ísíma 94-3745, fax 94-3795.