Feykir - 19.02.1986, Síða 3
4/1986 FEYKIR 3
spurt og spjallaö —
A Hvammstanga
I síðasta blaði var þáttur undir
sama nafni og þessi, „Spurt og
spjallað”, og þá var spjallað við
Orn Þórarinsson. Samtalið fór
fram í gegnum síma og var
ákveðið að halda þessu fyrirkomu-
lagi áfram, hringja í menn
víðsvegar um kjördæmið og reyna
að fá örlitla innsýn í félags- og
menningarlíf á viðkomandi stað.
Að þessu sinni varð fyrir valinu
Hóhnfríður Bjamadóttir á Hvamms-
tanga. Vonum við að þeir sem við
komum til með að hringja til í
framtíðinni taki því vel. Jafnframt
þakka ég Erni og Hólmfríði fyrir
þeirra góðu undirtektir.
Hólmfríður var fyrst spurð
hvemig Hvammstangabúar eyddu
sínum fristundum og hvaða félög
og klúbbar væru starfandi.
„Það eru hér ýmis félög
starfandi, misjafnlega lífleg eins
og gefur að skilja. Ungmenna-
félag og Kvenfélag, þetta
hefðbundna, Lionsklúbbur og
Bridgefélag eru starfandi. Svo er
Leikflokkurinn að setja upp
Ieikritið Grenið eftir Kjartan
Heiðberg. Hér eru margir sem
eiga hesta og eyða miklum tíma í
að sinna þeim. Starfrækt er
líkamsræktarstöð og boðið er
— bragamál —
upp ájógaleikfími og þrekþjálfun.
Einnig er sundlaugin vel
stunduð, enda ansi fullkomin og
vel úr garði gerð”.
Nú eru kosningar í vor. Eru
menn farnir að stinga saman
nefjum í tilefni þeirra?
Ekki er það nú opinberlega.
Fólk er aðeins farið að tala um
þetta, en ekkert sem hægt er að
byggja á ennþá. Það getur vel
verið að menn séu farnir að
skjálfa bak við tjöldin. Ég hef
trú á því að það verði einhverjar
mannabreytingar, en það verður
allt að koma í ljós”.
umsjón:
Ingi V. Jónasson
Nú er mál að standa við gefin
fyrirheit frá síðasta Feyki, og
gefa mönnum færi á að bota
fyrriparta. Var haft samband
við nokkra góðkunna hagyrðinga
hér á Krók og þeir beðnir að gefa
startið með nokkrum fyrripörtum.
Að sjálfsögðu birtast ekki nöfn
þessara ágætu manna, að þeirra
eigin ósk, vegna annálaðrar
hógværðar og lítillætis. En það
er einlæg von mín að hér eftir
komi frumkvæðið að fyrripörtum
frá lesendum. Ekki veit ég hver
er ástæðan fyrir þessari deyfð í
mönnum, en kannski er kveð-
skapur þeirra Gyrðis og Geirlaugs
farinn að skipa hærri sess en
eldri bragarháttur.
Það væri kannski rétt að gefa
mönnum kost á að koma á
framfæri einhverjum léttum
atómkviðlingum með djúpri og
óalþýðlegri speki. Það gæti
kannski lyft þessu á örlítið
hærra plan eins og nóbelsskáldið
okkar sagði forðum.
Hvað um það, Feyki hefur
borist vísa frá manni sem furðar
sig á þeirri furðulegu náttúru
Islendinga að spreða húsgrunnum
um allar jarðir og gera svo
ekkert í mörg ár.
Vísan hljóðar á þessa leið:
Af mammons mærum brunninum,
marga fýsir heyra.
Gumar Hreinn af grunninum,
gerist nokkuð meira?
Og þá eru það fyrripartarnir
sem ortir eru af ýmsu tilefni, s.s.
sunnanátt á miðjum þorra og
komandi kosningum. Þetta ber
þó vorkomunni vitni.
Sunnanáttin sæl og blíð,
syngur norður fjörðinn.
Kosningarnar koma brátt,
kviknar á gömlu skari.
Botna má senda inn hvort
sem er skriflega eða í síma 5757.
Og botnið nú!
í síðasta blaði Feykis kom frétt
um það að einhverjir hefðu áhuga
á að koma upp kapalkerfi. Heldur
þú að þetta sé almennur áhugi hjá
Hvammstangabúum?
„Það er erfitt að segja. Það er
talsvert mikið um að fólk eigi
vídeótæki. Ég held kannski að
þegar fer að minnka í buddum
hjá fólki þá vilji það alveg eins
kaupa efnið á þennan máta. Það
var gerð einhver könnun í haust
og skipuð nefnd í málið eins og
fram kom í Feyki. Þessi
einstaklingur sem hafði látið
athuga aðstæður er fyrir sunnan
á námskeiði í sambandi við
þetta. Ég veit ekki hver
framvindan verður”.
Nú eruð þið með starfandi
deild innan Samtaka um jafnrétti
milli landshluta. Hvað er að
frétta af hcnni?
„Þetta er fyrsta deildin innan
samtakanna sem fer að starfa
reglulega, verður þriggja ára
gömul núna í mars. Við tökum
virkan þátt í heildarstarfi
samtakanna. Við leggjum til
breytingar á stjórnkerfinu og
viljum dreifa valdinu til byggðanna.
Þetta viljum við gera með því að
koma á fót þriðja stjórnstiginu.
Einnig viljum við gera þátttöku
fólks til alþingiskosninga miklu
meiri. Þó að okkur sé sagt í dag
að við eigum að kjósa sextíu
þingmenn, þá kjósum við ekki
nema tuttugu, hinir eru sjálf-
kjörnir. Unnið er að því að
endurskoða stjómarskrá Islands
og nú er að koma út þriðja
útgáfan af þeirri endurskoðun
frá okkur. Þær eiga ábyggilega
eftir að verða fleiri. Við höfum
haldið fundi með þingmönnum
kjördæmanna á Norðurlandi.
Þeir voru á Hvammstanga 23.
nóvember og á Akureyri í
janúar. Það er fyrirhugað að
halda fundi í hinum kjördæmunum,
en það er ekki búið að dagsetja
þá ennþá”.
Að lokum Hólmfríður. Er
eitthvað sérstakt á döfinni hjá
Hvammstangabúum?
„Ég veit ekki hvað ersérstakt
öðru fremur. Það hefur alltaf
verið haldin vorvaka um
páskana, en ég veit ekki hvernig
það verður núna. Þar hafa
myndlistarmenn sýnt og þá
listamenn sem eiga ættirsínarað
rekja hingað, sem dæmi má
nefna Nínu Björk. Einnig hefur
verið reynt að fá heimatilbúnar
sýningar. Nemendur frá Lauga-
bakkaskóla voru t.d. einu sinni
með sýningu á verkefni sem þau
höfðu unnið um byggðaröskun í
héraðinu. Það hefur verið gert
svolítið að því að sal'na saman
gömlum myndum og stækka
þær og sýna. Og það hafa verið
dregnir fram í dagsljósið ýmsir
listamenn, sem maður vissi ekki
Hvernig eru viðtökurnar?
„Þær eru góðar. Fólk er
kannski hikandi og það spyr
mikið, en það vill breyta og vera
með. Það tekur sinn tíma að
vekja til umhugsunar heila þjóð,
sem búið er að berja niður í
svaðið”.
að væru listamenn og bjuggu
jafnvel í næsta húsi”.
Nú er mál að linni. Við
Feykismenn þökkum Hólmfríði
enn ög aftur fyrir spjallið og
sendum Hvammstangabúum okkar
bestu kveðjur.
(hás)
Tilkynning
Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki
hefur tekið að sér sölu á II flokks steinull
fyrir Steinullarverksmiðjuna hf.
Viðskiptavinir eru beðnir að snúa sér til
Byggingavörudeildar K.S. á Eyri sími
95-5200.
Ullin er nothæf sem varma- og hljóð-
einangrun en uppfyllir ekki þærströngu
kröfur sem verksmiðjan gerir til I flokks
einangrunar.
m
Steinullarverksmiðjan hf.
Samvinnubók!
Hagstæð ávöxtun í heimabyggð!
> « '
Á síðasta ári varð ávöxtun Samvinnubókar 40,65%!
Það er 5,06% yfir verðbólgu samkv. lánskjaravísitölu.
Miðað við núgildandi vexti Samvinnubókar verður
lágmarksávöxtun hennar á þessu ári 43,4%!
Þess utan erávöxtunin á þriggja mánaða fresti borin saman við ávöxtun verð-
tryggðs 6 mánaða reiknings með 3.5% vöxtum, og sé sú ávöxtun hærri, er
mismuninum bætt við höfuðstólinn á 6 mánaða fresti, sem þýðir í raun, að
ávöxtun Samvinnubókar verður ætíð hærri, því slík vaxtaviðbót lögð við
höfuðstól, er þá vöxtuð jafnframt honum næsta tímabil.
Samvinnubókin er því bakhjarl þinn í tvennum skilningi. Annarsvegartryggir
hún hámarksávöxtun sparifjár þíns og hinsvegar stuðlar hún að bættu
atvinnuöryggi þínu og fjölskyldu þinnar.
Samvinnubókm, hagstæð ávöxtun í heimabyggð
Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga.