Feykir - 19.02.1986, Side 12
Sœlkerahúsiö
Njótiö góöro
ueitinga í
pœgilegu
umhuerfi
19. febrúar 1986
Feykir
4. tbl. - 6. árg.
4~° cf1 ALDREI GLÆSILEGRA
vV /
ALDREI SKEMMTILEGRA
Borðapantanir í síma 5265
o^V?°V
>
HÓTEL MÆLIFELL
Hvammstangk
Skólínn tekinn í notkun
Búið er að taka neðri hluta
nýja skólahússins á Hvammstanga
í notkun. Þar eru fjórar
kennslustofur. Við þetta batnar
aðstaða til kennslu mjög mikið,
en áður fór kennsla fram víða í
þorpinu.
Enn er eftir að ganga frá efri
hluta nýja skólahússins. Eins og
áður hefur verið sagt frá í
blaðinu var búið að ráða smiði til
þess að ljúka þar frágangi í
trausti þess að fé fengist til
verksins á fjárlögum. En þar
sem litlar fjárveitingar fengust
er allt óljóst með framhald á því
verki, en um þessar mundir
liggur öll vinna við þær
framkvæmdir niðri.
(mó)
Blönduós:
Fhignámskeið
Kaupfélag Skagfirðinga:
Styttist í flutninga
Að undanförnu hefur staðið
yfir á Blönduósi bóklegt
námskeið til undirbúnings fyrir
einkallugmannspróf. Námskeiðið
hófst á sunnudag fyrir rúmri
viku síðan og er kennt alla daga
frá morgni til kvölds. Um eða
upp úr næstu helgi munu
nemendur þreyta próf í þessum
fræðum og er það próf sagt
nokkuð strangt.
A námskeiðinu eru 18
nemendur. Flestir eru úr
Austur-Húnavatnssýslu, en einnig
eru þar þrír Vestur-Húnvctningar
og einn Borgfirðingur. Kennari
er Ottó Tynes, flugstjóri.
Það er tæpt ár síðan mcnn á
Blönduósi og í næsta nágrenni
loru að stunda flugnám. A
vormánuðum tóku allmargir
svokallað sólópróf, m.a. nær
allir sem nú eru á bóklega
námskeiðinu. Tvær flugvélar,
önnur fjögurra sæta, en hin
tveggja sæta eru í eigu þessara
manna. Síðan eiga Vestur-
Húnvetningarnir einnig tveggja
manna flugvél.
A bóklega námskeiðinu er
m.a. kennd siglingafræði, flug-
eðlisfræði, veðurfræði, flugvéla-
fræði, landafræði og heilsufræði.
Til þess að öðlast skírteini
einkaflugmanna þurfa menn í
fyrsta lagi að hafa staðist
bóklegt próf í þessum greinum
og í öðru lagi hafa rúma 60
klukkustunda flug að baki og
hafa staðist hæfnispróf á flugvél.
(mó)
Fyrirhugað er að skrifstofur
Kaupfélags Skagfirðinga verði
fluttar í næsta mánuði í nýtt
skrifstofuhúsnæði í Skagfirðinga-
búð. Önnur hæð verslunarinnar
verður tekin undir skrifstofumar,
og víst er að mikil breyting
verður á aðstöðu og aðbúnaði
starfsfólks. Framkvæmdir allar
eru þar vel á veg komnar
jafnframt því sem búið er að
festa kaup á skrifstofuhúsgögnum
frá Selfossi.
Hvað varðar skrifstofuhúsnæði
K.S. í gamla bænum þá er enn
óráðið hvað við það verður gert,
en frést hefur að það muni
jafnvel verða selt.
(sþ)
-------feykjur---------------
Kýr á tvöföldu
Við fréttum þá sögu nýlega
úr V.estur-Húnavatnssýslu að
þar hefði fjárbóndi nokkur
fengið sér eina kú til að þurfa
ekki að kaupa mjólk. Gárungamir
segja nú raunar að þetta hafi
einnig verið til þess að skapa
atvinnu fyrir konuna, sem icu
vera látin mjólka. Nú gerist
það að kýrin tekur upp á þeim
ósið að sjúga sig, voru þá góð
ráð dýr og greip bóndi til þess
ráðs að setja dekk um háls
kýrinnar. Ekki dugði þetta og
var það ekki fyrr en búið var að
bæta öðru dekki við að kýrin
hætti að geta sogið sig. Tala
menn nú um kúna, sem er á
tvöföldu. Þegar fram á vetur
kom fóru menn að tala um
hvort ekki þyrfti að setja kúna
á negld dekk, bóndi kvaðst
ekki þurfa þess enda notaði
hann keðjur (batt kúna á bás).
Þegar allar hiiðar þessa máls
eru skoðaðar má ljóst vera að
þarna er mikil kostaskepna á
ferðinni segja heimildir blaðsins.
Venjulega er kýrin látin vera
með tvö dekk og mjólkar vel
f'yrir heimilið, sé hins vegar
ekki tími til að mjólka, t.d. cf
fólkið þarf að skreppa á bæ,
þarf aðeins að kippa dckkjunum
af og sér þá kýrin sjálf um alla
hluti.
Ráðið í stöður
Félagsmálaráð Sauðárkróks-
bæjar hefur m.a. ráðið í stöður
forstöðumanna við íþróttahús
og sundlaug bæjarins. Einnig
var ráðið í eina stöðu
aðstoðarmanns við íþróttahús.
Pálmi Sighvatsson var ráðinn
forstöðumaður íþróttahúss og
Guðmundur Jensson forstöðu-
maður sundlaugar.
í stöðu aðstoðarmanns við
íþróttahús var ráðinn Sigurbjöm
Arriason.
Feykir óskar þcim öllum til
hamingju með nýja starfið.
Maðkað pakkasnakk
Hér á öldum áður höfðu
nýlenduherrar okkar Danir,
þann háttinn á að láta okkur í
té maðkað og myglað korn. En
nú í dag gerist enn slíkt hið
sama. Fyrir skömmu var
ungur drengur á Hofsósi að
snæða Cheerios sem árbít.
Vildi þá ekki betur til en svo að
ormur einn langur, ljótur og
stór skreið uppá diskbarminn
á Hótta undan syndaflóði úr
mjólkurfernu frá K.S. En núer
öldin önnur en á dögum
danska maðkamjölsins. Nú
getur sá stutti í Hofsósi valið og
hafnað, og borðað hafragraut
eða skyrhræring í morgunmat,
í stað maðkaðs pakkasnakks
frá útlandinu.
Drangey lengd..
Fyrirhugaðar eru stórfelldar
breytingar á Drangey, einum
þriggja togara Útgerðarfélags
Skagfirðinga. Lengja á skipið
um tæpa 7 metra ásamt því
sem sett verður í það frystilest,
ný vél, og annað sem ekki
verður rakið hér.
Lánafyrirgreiðsla til breytinga
sem þessara er mjög óljós, en
beðið er reglugerðar frá
stjórnvöldum sem væntanlega
mun leysa úr allri óvissu hvað
þetta varðar.
Lengingin á Drangey mun
verða fyrsta breytingin á þeim
japönsku skuttogurum sem til
eru á landinu, og því er
hugsanlegt að þetta muni ýta á
fleiri til ámóta framkvæmda.
Atvinnulausir iðnaðarmenn
Nokkuð er um atvinnuleysi
á Hvammstanga. Sérstaklega
á þetta við um iðnaðarmenn,
enda lítið um byggingar-
framkvæmdir á staðnum.
Fjölbýlishúsið, sem þar var
reist í sumar er fyrir löngu
orðið fokhelt, en síðan hefur
ekkert verið unnið við það,
enda engir lýst áhuga á að
kaupa þar íbúðir.
Nýtt vatnsfyrirtæki
í Lögbirtingablaðinu 5.
febr. sl. voru tvær tilkynningar
um fyrirtæki til firmaskrár
Sauðárkróks. Það erfyrirtækið
íslenskt lindarvatn, sem er í
eigu Hreins Sigurðssonar Aðal-
götu 20. Tilgangur þess er
útflutningur á lindarvatni úr
Heiðarhnjúkslindum við Tinda-
stól og önnur skyld starfsemi.
Hitt fyrirtækið er í eigu Ágústs
Kárasonar Grenihlíð 9, og
heitir Rafeindavirkinn. Verk-
svið þess er öll altnenn
þjónusta á sviði rafeinda-
virkjunar.
FEYKIR spyr á
Sauðárkróki
Hverjir eru í meirihluta í
bæjarstjórn Sauðárkróks?
Jósep S. Jóhannesson:
„Segjum framsóknarflokkur og
sjálfstæðisflokkur”.
Ingimundur Sverrisson:
„Framsóknarklíkan og Stebbi í
ríkinu”.
Sigurður N. Jóhannsson:
„Framsókn og alþýðubandalag”.
Erla Valgarðsdóttir:
„Ég hef ekki hugmynd um það”.
Eiríkur Hilmisson:
„Framsókn og alþýðubandalag”.