Feykir - 25.06.1986, Side 4
4 FEYKIR 13/1986
Sauðárkrókur:
Samstarfsyfirlýsing nýs meirihluta
Þorbjörn Árnason nýkjörinn forseti bæjarstjórnar í ræðupúlti.
Fyrsti fundur nýrrar bæjar-
stjórnar á Sauðárkróki var
haldinn miðvikudaginn 18. júní
sl. Fundurinn hófst með því að
Magnús Sigurjónsson fráfarandi
forseti bæjarstjórnar minntist
Guðjóns Sigurðssonar bakara,
sem lést þann 16. júní sl. Síðan
fór fram kjör í embætti, ráð og
nefndir á vegum bæjarins.
Þorbjörn Arnason var kosinn
forseti bæjarstjórnar og Björn
Sigurbjörnsson formaður bæjar-
ráðs. Þá var eftirfarandi yfir-
lýsing lögð fram:
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisllokks,
Alþýðuflokks og Óháðra í
bæjarstjórn Sauðárkróks hafa
komið sér saman um mcirihluta-
samstarf innan bæjarstjórnar
kjörtímabilið 1986-1990.
Þar sem það er álit nýrra
samstarfsaðila í meirihluta bæjar-
stjórnar Sauðárkróks að fjár-
hagsstaða bæjarsjóðs og stofnana
bæjarins sé mjög slæm, teljum
við nauðsynlegt að endur-
skoðandi bæjarins vinni nú
þegar úttekt á fjárhagsstöðu
bæjarsjóðs og stofnana bæjar-
ins og geri jafnframt greiðslu-
áætlun til áramóta. Þá verði lögð
fram greiðsluáætlun á skamm-
tíma- og langtímaskuldum fyrir
árið 1987. Fjárhagsáætlun fyrir
árið 1986 verði endurskoðuð ef
þörf krefur.
Samstarfsflokkamir em sammála
um að eitt af meginverkefnum
bæjarstjórnar sé að halda uppi
fullri atvinnu í bæjarfélaginu að
svo miklu leiti sem það er í
hennar valdi. Með tilliti til mjög
slæms atvinnuástands, sjómanna,
fiskvinnslufólks og ungiinga
munu meirihlutaflokkarnirtaka
þessi mál til sérstakrar athugunar
nú þegar.
Samstarfsaðilar eru sammála
um að fjárhagur hita- og
vatnsveitu verði aðgreindur frá
bæjarsjóði. Dagvextir verði
reiknaðir eftir því sem skuldir
myndast. Bæjarsjóður hafi að-
gang að lánsfé hjá veitunum eftir
því sem fjárhagur þeirra levfir.
Fleiri framleiða
Á ný verði hafist handa um
uppbyggingu hafnarinnar m.a.
með aðstöðu fyrir smábáta.
Unnin verði ný gatnagerðar-
áætlun og hún framkvæmd eftir
fjárhagslegri getu.
Hafist verði handa um
byggingu bóknámshúss Fjöl-
brautarskólans á Sauðárkróki.
Grunnskólarnir verði efldir
eftir því sem tök eru á og nú
þegar verði gengið frá lóðum
allra skólanna. Fundin verði
lausn á húsnæðismálum Tónlistar-
skólans.
Bæjaryfirvöld munu beita sér
fyrir könnun á byggingu
kaupleigu íbúða.
Könnun verði gerð á þörf fyrir
dagvistun barna og unnið að
lausn þeirra mála.
Bæjaryfirvöld beiti sér fyrir
stækkun Sauðárkróksflugvallar
með það í huga að hann verði
varaflugvöllur fyrir millilanda-
nug”
Önggismálanámskeið fyrir
sjomenn a Sauðarkroki
Guðjón Sigurðsson
bakarameistarí látinn
Guðjón Sigurðsson bakara-
meistari á Sauðárkróki lést
þann 16. júní síðastliðinn.
Guðjón fæddist að Mann-.
skaðahóli á Höfðaströnd 3.
nóvember 1908. Foreldrar
hans voru hjónin Sigurður
Sveinsson og Guðbjörg Sig-
mundsdóttir. Misseris gamall
fór hann í fóstur til
föðurbróður síns. Árið 1927
flutti hann til Sauðárkróks
og hóf nám í bakaraiðn hjá
Snæbimi Sigurgeirssyni bakara-
meistara.
Til Kaupmannahafnar hélt
Guðjón árið 1930 til að
fullnuma sig í iðngreininni og
kom aftur til. Sauðárkróks
tveim árum síðar. Hann tók
við rekstri Sauðárkróksbakarís
er Snæbjörn lést haustið
1932. Kona Guðjóns var
Olína Björnsdóttir.
Börn þeirra voru þrjú;
Elma Björk er lést 1984,
Birna og Gunnar Þórir.
Guðjón ól upp ásamt Olínu
fimm börn hennar af fyrra
hjónabandi. Olína kona hans
lést árið 1980.
Guðjón var þekktur af
virkni í ýmiskonar félagslífi.
Hann var meðlimur í ung-
mennahreyfingunni um langt
skeið, sat í stjórn Leikfélags
Sauðárkróks og var formaður
þess sama félags í áratug.
Guðjón starfaði lengi í
Rótaryklúbbi Sauðárkróks,
var fyrsti formaður Iðnaðar-
mannafélags Sauðárkróks og
starfaði mikið fyrir lands-
samtök bakarameistara og
iðnaðarmanna. Ótalin eru
þau mörgu trúnaðarstörf
sem Guðjón gegndi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og samtök
hans í Skagafirði. Hann var
kosinn í hreppsnefnd Sauðár-
krókshrepps árið 1946 og ári
síðar í bæjarstjórn, er
Sauðárkrókur hlaut kaup-
staðarréttindi. I bæjarstjórn
sat hann óslitið til 1974 og
var þar af tvö kjörtímabil
forseti bæjarstjómar. Guðjón
var fréttaritari Morgunblaðs-
ins til margra ára.
Með Guðjóni er genginn
persónuleiki, sem mikinn
svip setti á bæjarlífið hér á
Króknum fyrr og síðar.
Feykir vottar aðstandendum
innilegustu samúð sína.
hellur
I síðasta tölublaði Feykis, þar
sem sagt var frá stofnun
Bæjarhellunnar sf. á Sauðár-
króki var m.a. fullyrt að það
væri eina fyrirtækið í kjör-
dæminu, sem framleiddi hellur.
Hér mun ekki hafa verið farið
með rétt mál. Vilhelm Guðbjarts-
Skagfirðingar
eru manna mestir
Þau orð hafa verið látin falla
um Skagfirðinga að þeir séu
mestir hestamenn, mestir kvenna-
menn, mestir hreystimenn, mestir
drykkjumenn og allra manna
verstir með víni. Alltaf bætist við
afrekalistann, og nú í ljósi
nýjustu frétta vilja menn
fullyrða að Skagfirðingar séu
mestir knattspyrnumenn. Sem
lýðum er kunnugt er danski
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu,
Frank Arnesen kominn af
Skagfirðingum í beinan karl-
legg. Langafi hans var Geirlaugur
Ámason, Ámasonar frá Hvamm-
koti á Höfðaströnd eftir þvi sem
ættartölumeistarar Þjóðviljans
og Sögufélags Skagfirðinga
telja.
Heldur kemur það sér illa
fyrir Tindstælinga að Frank
þessi skuli ekki lúta átthaga-
fjötrum af nokkru tagi.
(ivj)
son framkvæmdastjóri Steypu-
þjónustunnar á Hvammstanga
hafði samband við blaðið og
kom fram í máli hans að á
Hvammstanga er starfrækt
fyrirtækið Steypuþjónustan hf.,
sem er í eigu nokkurra aðila
þ.á.m. hreppsins og kaupfélags-
ins. Steypuþjónustan hf. rekur
alla almenna verktakastarfsemi
og steypusölu auk þess sem þar
eru framleidd steinrör, brunnar
og fjórar gerðir af gangstéttar-
hellum.
(jgj)
Dagana 10.-12. júní stóð yfir
námskeið í öryggismálum fyrir
sjómenn á Sauðárkróki. Var það
haldið á vegum slysavarnar-
deildarinnar Skagfírðingasveitar
í samvinnu við Slysavarnarfélag
Islands. Þrír leiðbeinendur voru
á námskeiðinu. Frá Slysavamar-
félagi Islands komu þeir Þor-
valdur Axelsson og Þórir
Gunnarsson og Höskuldur
Einarsson frá Landssambandi
slökkviliðsmanna.
Þorvaldur Axelsson var spuiður
eftir því hver væri tilgangur
námskeiða af þessu tagi. „Að
kenna mönnum að komast af og
tóra þar til hjálp berst er
markmiðið, og einnig að hrista
upp í mönnum þannig að
1 f
Hljómsveitin Fást
hefur störf að nýju
Hljómsveitin Fást hefur hafið
störf að nýju eftir nokkra hvíld.
I sumar mun hljómsveitin
vera skipuð eftirtöldum:
.Egir Ásbjömsson: gítar og söngur.
Magnús Helgason: söngur.
Kristján Baldvinsson: trommur.
Sigurður Ásbjömsson: hljómborð.
Ulfar Haraldsson: bassi.
Hljómsveitin mun leika nýjustu
lögin hverju sinni auk gamallra
góðra laga.
öryggismál hætti að vera
feimnismál”.
Þorvaldur sagði að sá hópur
sem verið hefði á þessu
námskeiði væri góður og þar
hefðu komið saman menn með
margþætta og misjafna reynslu.
Þórir Gunnarsson og Höskuldur
Einarsson útskýrðu nánar hvemig
staðið er að þessum nám-
skeiðum. Að þeirra sögn standa
þessi námskeið þrjá daga að
jafnaði, en því miður væri ekki
hægt að hafa þau lengri, eins og
þegar óhapp hendir, skyndi-
hjálp, slökkvistörf og með-
höndlun öryggisbúnaðar. Segja
má að megintilgangurinn sé þó
að vekja menn til umhugsunar
um eigið öryggi og eigið líf.
Þeir félagar Höskuldur og
Þórir sögðust binda miklar
vonir við að varðskipið Þór sem
nú er verið að gera upp sem
æfinga- og kennsluskip kæmi að
góðum notum við öryggis-
fræðslu fyrir sjómenn.
Að lokum vildu þeir þakka
M.a. var æfing í því að komast í gúmmíbjörgunarbáta.
efnið biði uppá m.a. vegna
inniverutíma skipa. Þetta kæmi
fram í því að yfirferð væri allt of
hröð.
Nú er um ár liðið síðan farið
var af stað með námskeið þessi
og er helst að þakka góðri
samvinnu við björgunarsveitir,
sjómenn og slökkvilið víðsvegar
um land hve vel hefur gengið. Á
jafn stuttum tíma og námskeiðin
standa er reynt að kenna
mönnum grundvallarviðbrögð
hvernig bregðast á við
öllum hér á Sauðárkróki sem
hlut áttu að þessu námskeiði
fyrir þeirra framlag en þó
sérstaklega slökkviliði Sauðár-
króks.
En hvað höfðu sjómenn að
segja um gildi námskeiðsins.
Stefán Pálsson sjómaður:
„Það er margt sem rifjast upp
fyrir manni, en helst breytir
þetta hugsunarhættinum og
viðhorfunum hjá manni, sem
gjarnan hafa verið þau aðekkert
komi fyrir hjá mér”. (ivj)