Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2008, Side 57

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2008, Side 57
testamentisins fékk ekki í hendur eftir kirkjuþingið neina samþykkt um hvernig endurskoða ætti málfarið. Henni barst hins vegar í maí árið 2000 bréf frá jafnréttisnefnd kirkjunnar þar sem minnt var á jafnréttisáætlunina og endurskoðun málfars út frá jafnréttissjónarmiðum. Það hefði óneitanlega létt starf þýðingarnefndarinnar og síðar þýðingarnefndar Nýja testamentisins ef um ákvörðun kirkjunnar hefði verið að ræða og línur hefðu verið lagðar um það málfar sem hún hefði orðið sammála um. I bréfi jafnréttisnefndar voru tvö atriði óskum hennar til skýringar. Hið fyrra var um notkun orðsins maður. f bréfinu stendur: ,,Það er ljóst að notk- un þessa hugtaks skapar ákveðið vandamál, þar sem það merkir stundum ,,karl og kona“ og stundum ,,karl““. Hitt atriðið er um að karlkynsorðum verði stundum breytt í hvorugkyns orð, orðinu sonur verði stundum breytt í barn og bróðir í bróðir og systir eða systkin. Dæmið sem jafnréttisnefndin tók var úr Matteusarguðspjalli 25. kafla, 40 versi þar sem stendur: ,,allt sem þér gjörðuð einum mínum minnstu bræðra það hafið þér gjört mér.“ Þessu versi var lítið breytt í nýju þýðingunni. Sagnmyndunum gjörðuð og gjört var breytt í gerðuð og gert. Lítum fyrst aðeins á orðið maður. Gömul hefð er fyrir notkun þess, það hefur haft tvenns konar aðalmerkingu allt frá fommáli og sú tvöfalda merking virðist ekki hafa valdið vandræðum að því er séð verður. Hún er lifandi í föstum orðasamböndum og málsháttum eins og maður er manni líkur, það heyrist ekki mannsins mál, gera mann úr einhverjum, margt er um manninn, klæðin gera manninn, svo er margt sinnið sem maðurinn er, þangað koma menn sem menn eru fyrir, maðurinn deyr en mannorðið ekki og svona mætti telja.2 I Studia theologica Islandica 2002 birtust tvær greinar um þetta efni. Onnur er eftir Arnfríði Guðmundsdóttur, dósent við guðfræðideild, en hin er eftir Agústu Þorbergsdóttur, sérfræðing á Stofnun Arna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þær koma báðar að orðinu maður og notkun þess, hvor á sinn hátt. Arnfríður skrifaði (s. 70): 2 Nýlega rakst ég á litla klausu, sem séra Jónas Jónasson á Hrafnagili, sem þjónaði Stóruvallakirkju á Landi 1883-1884, ritaði í eina af vasabókum Björns M. Olsens, sem var þá að safna orðum og orðfæri úr mæltu máli á Suðurlandi: „maðr - homo, menneske. Hún er myndarmaðr, hún er vænsti maðr, hún er gæðamaðr“. 55
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.