Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2008, Page 81
því sviði lýsti hann jafnvel yfir áhuga á íslenskri „Encyclopædiu“ sem minnir
á hið mikla alfræðirit sem var einn af glæsilegum ávöxtum frönsku upplýs-
ingarinnar.6 Þá má benda á að hjáTómasi gætti söguskilnings sem einkenndi
hina tiltölulega íhaldssömu íslensku upplýsingu og kenna má við trúarlegar
löggengiskenningar og kennisögu.7 Loks gætti hjá honum viðhorfa til nátt-
úruvísinda sem rekja má til upplýsingarinnar.8
Þegar athygli er beint að guðfræðinni sérstaklega kemur aftur á móti í
ljós að Tómas var boðberi nýrra tíma. Hann gagnrýndi til dæmis upplýs-
inguna eins og hún birtist í Helgidaga predikunum (1822 og 1839) Árna
Helgasonar (1777-1869) stiftprófasts í Görðum á Álftanesi. En því riti var
ásamt sálmabókinni frá 1801 og barnalærdómskveri Nicolais Edingers Balles
(d. 1816 - Sjálandsbiskup) sem kom út hér á landi 1796 ætlað að miðla
stefnunni til almennings.9
Greining Jóns Helgasonar
Jón Helgason (1866-1942) biskup og dóttursonur Tómasar er án efa sá sem
framkvæmt hefur umfangsmesta frumrannsókn á guðfræði hans. Er hún
athygli verð þótt hún sé komin til ára sinna en hún var sett fram í ævisögu
Tómasar þegar 100 ár voru liðin frá dauða hans (1941).
f lýsingu sinni á guðfræði Tómasar víkur Jón Helgason fyrst að aðferða-
fræðilegu atriði. Þar bendir hann á að þeir sem áður hafi freistað þess að
greina guðfræði Tómasar hafi almennt ekki haft á öðru að byggja en Rœðum
við ims tœkifœri sem hann hafi vissulega sjálfur búið til prentunar þótt þær
kæmu ekki út fyrr en eftir hans dag. Á þessu telur Jón þann galla að tækifær-
isræður gefi „sjaldnast neina heildarmynd kennimannsin,s“ því að þær beri
blæ af tilefninu sem varð til þess að þær voru fluttar.10 Til þess að fá
...hina réttu heildarmynd kennimannsins, bæði af því er snertir afstöðu
hans til hinnar kristilegu og trúarlegu lífsskoðunar, og hina kennimannlegu
6 Loftur Guttormsson 1990: 173. Ingi Sigurðsson 2003: 127. Sjá Helgi Magnússon 1990: 196, 211.
Loftur Guttormsson 2000: 343. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín 2006: 460, 464.
7 Ingi Sigurðsson 1990b: 251, 256, 265, 268.
8 Haraldur Sigurðsson 1990: 292.
9 Hjalti Hugason 1990: 121, 138-139, 143. Gunnar Kristjánsson 2000: 23. Torfi K. Stefánsson
Hjaltalín 2006: 465. Sjá þó Torfi K. Stefánsson Hjaltalín 2006: 464-466.
10 Jón Helgason 1941: 134-135.
79