Jökull


Jökull - 01.12.1951, Síða 2

Jökull - 01.12.1951, Síða 2
Jöklarannsóknafélag Islands FÉLAGIÐ var stofnað á fundi í Tjarnar- kaffi í Reykjavík miðvikudaginn 22. dag nóvembermánaðar 1950. Til fundarins var boðað af nokkrum mönnum, sem áhuga hafa á jöklarannsóknum og jökulferðum. Á fundinum var einróma samþykkt að stofna félagið, bráðabirgðastjórn kosin og ákveðið að halda framhaldsstofnfund í febrúar til þess að ganga frá félagslögum. Á fundinum lét 41 maður skrá sig í félagið. Framhaldsstofnfundur var haldinn á sama stað h. 7. dag marzmánaðar 1951. Var þar gengið frá stofnskrá félagsins og kosin stjórn. Stofnskráin er í 7 greinum, og segir þar m. a.: 2. gr. Markmið félagsins er að stuðla að rannsóknum og ferðalögum á jöklum landsins. Það gengst fyrir fræðandi fyrirlestrum um jökla og myndasýn- ingum, þegar ástæður leyfa. 3. gr. Félagar geta allir þeir orðið, er áhuga hafa á rannsóknum á jöklum og jök- ulferðum. 5. gr. Stjórn félagsins skipa fimm menn og þrír til vara. Formaður skal kosinn til þriggja ára í senn, en fjórir með- stjórnendur, þrír varamenn og tveir endurskoðendur til eins árs. Stjórnin skiptir með sér verkum að öðru leyti. Kosningar eru skriflegar, nema aðal- fundur óski annars. 6. gr. Félagar greiða 100 kr. við inngöngu í félagið, en síðan 25 kr. árlega. Fá þeir ókeypis ritgerðir, sem félagið kann að gefa út. í stjórn félagsins voru kosnir: Formaður: Jón Eyþórsson veðurfræðing- ur, Bergþórugötu 61, Reykjavík. Ritari: Guðmundur Kjartansson jarð- fræðingur, Suðurgötu 75, Hafnarfirði. Gjaldkeri: Sigurjón Rist vatnamælinga- maður, Laugateig 18, Reykjavík. Meðstjórnendur: Árni Stefánsson bif- vélavirki, Barónsst. 43, Reykjavík. Trausti Einarsson prófessor, Sundlaugaveg 22, Reykjavík. í varastjórn: Einar Magnússon mennta- skólakennari, Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur, Þorbjörn Sigurgeirsson fram- kvæmdastjóri. Endurskoðendur: Páll Sigurðsson verk- fræðingur, Kristján Ó, Skagfjörð stórkaup- maður J. Félagið hefur reist tvo járnskála við Breiðamerkurjökul, annan í Esjufjöllum, en hinn undir Hálfdánaröldu, um 2 km frá jökuljaðri. Er nánar skýrt frá skálum þess- um hér á eftir. ★ The Glaciological Society of Iceland was esta- blished in Nov. 1951. Its object is to further glaciological work and travels on the Icelandic glaciers. Neiu members pay 100 kr. as entrance rate, then 25 kr. annually. RIT þetta er aðeins prentað í 500 ein- tökum. Verður það afhent félagsmönn- um, augljsendum og helztu styrktar- mönnum félagsins ókeypis. í lausasölu kostar það 100 kr.

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.