Jökull


Jökull - 01.12.1951, Blaðsíða 13

Jökull - 01.12.1951, Blaðsíða 13
Tjaldbúðir undir Vesturbjörgum i Esjufjöllum 24. marz 1951. Ljósm.: Á. Stefánsson. skerjabræðra upp að jökuljaðri hjá Mávabyggða- röncl. Um það leyti er þeir voru að ljúka flutn- ingnum, barst Sigurjóni boð í síma sæluhúss- ins frá Árna Stefánssyni að korna sem hrað- ast með varabelti út að Fagurhólsmýri. Kom hann þangað á laugardagskvöld, og var skrið- bíllinn sóttur út að Sandfelli daginn eftir. Eg ætlaði með flugvél til Fagurhólsmýrar föstudag 16. marz. Vegna óhagstæðs veðurs frestaðist sú för til sunnudags 18. marz. Kom ég þann dag að Fagurhólsmýri í sama mund og þeir félagar komu með skriðbílinn frá Sand- felli. Eftir stutta viðdvöl héldum við allir að Kvískerjum og gistum þar. Næsta morgun, 19. marz, héldum við frá Kvískerjum og vísuðu Kvískerjabræður okkur leið með skriðbílana upp að jökli. Þræddum við upp Breiðá allt að Breiðárlóni og siðan eftir því austur undir Mávabyggðarönd. Veður var stillt, en muggulegt, og tók að snjóa með kvöld- inu Fluttum við þegar mestallt dót okkar um 2 km upp á jökul Var þá komið yfir aðalbratt- ann LTm kvöldið tjölduðum við við jökuljaðar. Var þá lognmugga og mikið rafmagn í loftinu. Jökulsporðurinn var snjólítill og glerháll, svo að skriðbílarnir áttu örðugt með að draga hlaðna sleða í bratta. Næsta dag, þrd. 20. marz, var jafnfallinn lausasnjór á jöklinum og færið enn þá örðugt. Fluttum við þá nokkuð af skálaefni 2,5 km upp á jökul og það, sem eftir var af farangri leiðangursins. I síðustu ferðinni lentum við í flughálku, svo að ómögu- legt var að komast lengra með sleðana, og urð- um við að tjalda þar, um 1,5 km frá jökulsporði. Veður var hið sama og kvöldið áður, mugga og hægviðri. Um nóttina snögghvessti á norðan, og vorum við þarna hriðarfastir þangað til á föstudag. Tjaldið rifnaði ofan af okkur á fimmtudagsmorgun, og urðum við að fella það ofan á svefnpoka okkar og leita hælis í skrið- bílunum. Á föstudagsmorgun slotaði veðrinu svo, að við gáturn komizt með sleðana upp að Mávabyggðarönd um 2,5 km frá jökuljaðri. Þar var skilið eftir skálaefni, varabelti og 10 brúsar með benzíni og 15 tómir brúsar. Meðan við vorum að ganga frá þessu, hvessti skyndilega, svo að ekki reyndist unnt að koma upp tjaldi. Urðum við því að sitja í skriðbílunum þá nótt líka. Laugardag 24. marz var veður allgott og bjart, lítill skafrenningur. Fféldum við þá með allan farangur okkar til Esjufjalla og tjölduðum vestan undir Esjufjalla- rönd, rúma 2 km suður af svonefndum Skdla- björgum. A þessum stað vorum við um kyrrt báða páskadagana í góðu veðri. Fyrri daginn könnuðum við Árni og Sigurjón fjöllin og völd- um stað fyrir skála Jöklarannsóknafélagsins. Síðari daginn vorum við að reyna mælinga- tækin, gerðum margar sprengingar skammt vest- ur af tjaldstaðnum, en áhöldin voru treg og illa tilhöfð eftir flutninginn, svo að enginn árang- ur fékkst af þessum mælingum. Á þriðjudags- morgun 27. marz var enn gott veður. Mælingar Arni Stefánssort, Alain Joset, Steþhan Sdnvelian. Lagt upp á skriðbílum úr Reykjavík ti.l Örœfa, 13. marz 1951. Ljósm.: Pálmi Hannesson. 11

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.