Jökull


Jökull - 01.12.1951, Blaðsíða 18

Jökull - 01.12.1951, Blaðsíða 18
Hal Lister og félagar hans mœla lofthita, raka og vindhraða í mismunandi hœð yfir jökulis vestan undir Mávabyggðarönd. Ljósm.: Sverrir Scheving. hverju ári síðan 1948. Leiðtogi þeirra í sumar var Bob Young, landfræðingur að sérmenntun. Einn af þessum leiðangursmönnum, Hal Lister, lagði stund á mælingar á leysingu jökuls- ins við mismunandi veðurskilyrði. /. Ey. ★ Þrándarjökull. í lok júlí 1947 gekk ég yfir Þrándarjökul. Gekk ég á Sunnutind upp úr Geithellnadal og síðan inn yfir miðjan jökul- inn. Af jökulgörðum mátti greinilega sjá, hvað jökulröndin hafði dregizt til baka í seinni tíð, eða frá því að jöklar tóku að rýrna fyrir um hálfri öld. Á flugmyndum sjást þessir garðar einnig, og eftir myndunum hef ég áætlað meðal- hörfun jökulrandar um 450 m. Flatarmál jök- ulsins hefur þá minnkað úr 36 km2 í 27 km2 lauslega reiknað eða um 25%. Jökull þessi, sem nær aðeins lítið eitt upp fyrir snælínu, er sýni- lega mjög viðkvæmur fyrir breytingu á árferði. Trausti Einarsson. ★ Jöklamcelingar 1950 og 1951. Riti þessu er ætlað að flytja greinar um jöklarannsóknir hér á landi og erlendis, eftir því sem við verður komið. Á því vel við að birta hér árlegar skýrslur um breytingar is- lenzkra jökla, en mælingar á þeim eru gerðar allvíða á hausti hverju. Hér fara á eftir breytingar nokkurra skrið- jökla frá hausti til hausts 1949/50 og 1950/51, að svo miklu leyti sem mér hafa borizt mælinga- skýrslur, þegar þetta er ritað. Breytingin er tal- in í metrum,, og þýðir styttingu, en -f, að jökull hafi gengið fram. Drangajökull 1949/50 1950/51 Kaldalónsjökull -t- 37 + 15 Leirufjarðarjökull -í- 8 + 4 Reykjarfjarðarj. 1948/51 -t- 152 Sncefellsjökull Hyrningsjökull 4- 30 + 35 Jökulháls 4- 20 + 30 Blágilsjökull + 0 + 10 Mýrdalsjökull Sólheimajökull, vestan . . + 5 + 15 Sólheimajökull, austan . . + io + 10 Jökulhöfuð + 15 + 5 Vatnajökull Skeiðarárjökull, austan til 4- 8 + 17 Morsárjökull 4- 22 + 10 Skaftafellsjökull 4- 50 + 28 Svínafellsj., norðan til . . + 2 + 18 Svínafellsj., sunnan til . . 4- 6 + 13 Virkisjökull + 5 + 6 Kvíárjökull + 45 + 7 Hrútárjökull + 41 + 7 Fjallsjökull + 3 + 10 Breiðamerkurj., vestan ár + 44 + 42 Breiðamerkurj., austan ár + 23 ? Hofsjökull Múlajökull + 12 + 25 Nauthagajökull + 7 + 19 Kerlingarfjöll Loðmundarjök. 1945/51 + 36 Hrútafell Miðjökull .... 1948/51 + 30 (3 ára b.) NV-jökull .... + 70 Langjökull Þjófadalir .... 1946/51 + 125 (5 ára b.) Víða er mælt á 2—5 stöðum við sama skrið- jökul, og er þá birt meðaltal þeirra mælinga. Nokkrir jöklar hafa gengið dálítið fram á þess- urn árum, en flestir hafa stytzt. ★ Fjármál. Félagið sneri sér til fjárveitinganefndar al- þingis með beiðni um 25 þús. króna fjárveit- ingu til kaupa á skriðbíl. Hefur nefndin brugðist vel við þessu, og verður féð veitt með því skilyrði, að vegamálastjórnin hafi bílinn til reynslu á fjallvegum, þegar félagið þarf ekki að nota hann. Mun þannig fást reynsla af far- artækjum þessum til almennra nota. J. Ey. 16

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.