Jökull


Jökull - 01.12.1951, Blaðsíða 14

Jökull - 01.12.1951, Blaðsíða 14
Alain Juset við stýrið á skriðbíl sínurn. Hann fórst i bánaslysi á Granlandsjökli h. 4. ág. sl. Ljósm.: Á. Stefánsson. voru þá enn endurteknar fimm sinnum á svip- uðum stað og daginn áður. Árangur var sem áður óviss, en Joset taldi nu áhöldin komin í svo gott lag, að mælingar gætu hafizt. Tókum við okkur þá upp kl. 12,30, og ókum 5 km í beina stefnu á Eyjólfsfjall. Þar var gerð mæl- ing, en árangur enginn. Skilin eftir stöng nr. 2 með flaggi S2. Þaðan var stefna tekin beint norður og mælt á 5 km millibili. Sbr. uppdrátt af Vatnajökli með mælingastöðum á bls. 3. Frá S2 var stefnt beint norður og ekið 5,4 km að S3. Mæling óviss. Gist þar um nóttina. Miðvikud. 28. marz. Nokkur renningur. Ok- um til S4 og mældum, tjölduðum við S5 Fimmtud. 29. Skafhríð. Mælingar reyndar þrisvar. Árangur óviss eða enginn. Héldum af stað kl. 16,00. Mældum við S6 og S7 með góðum árangri. Við S7 var reist 8 m hátt járnmastur með stögum. Síðan haldið að S9 og gerðar 4 mælingar til að ákveða bylgjuhraða í jöklinum. Tjaldað undir miðnætti. Veður hagstætt, hæg S-gola og fjúkslitringur. Föstud. 30. S-kaldi og renningur. Dimmviðri. Héldum af stað kl. 16,48. Ekið að S10 og mælt. Vaxandi lausamjöll og dimmviðri. Urðum að tjalda milli S10 og S11, vegna þess að klaki settist í beltin og drifhjólin. Laugard. 31. Hæg N-átt, mugga og dimm- viðri. Fórum á lausum bílum um morguninn norður að Sll og mældum. Héldum síðan til baka og tókum tjaldbúðir, en gekk illa vegna lausamjallar. Urðum að senda lausan vísil á undan til að troða slóð fyrstu 2—3 km. Síðan fór færðin batnandi. Ákvað að hætta við ferð- ina austur á Hoffellsjökul vegna þungrar færð- ar og halda .sem hraðast vestur til Grímsvatna. Á leiðinni suður mældum við S8, snerum beint í vestur hjá S7 og tjölduðum við S19A, 5 km vestur af S7. Sunnudag 1. april. Hægviðri, sólfar með köfl- um en þokunróða í kring. Fléldum áfram beint vestur og gerðum mælingar við S19, S20, S21 og S22. Komum þangað kl. 18,30. Var veður þá orðið vel bjart, hiti h- 24 C. Mældum i S22, en fengum ekki árangur. Ókurn að því búnu 5 krn suður frá S22 og mældum í S26. Reyndist þykkt jökulsins þar 1040 m. Gistum við S22. Mánud. 2. Um morguninn gott veður, en þokuruðningur í kring. Héldunr í stefnu á Svíahnúka og reyndum mælingar í S23, S24 og S25, en árangurslaust. Sigurjón fór með stöng upp á Svíahnúka og skyldi nota hana síð- ar við mælingar. Þegar við höfðum lokið mæl- ingu hjá S25 var komin mikil mugga og dimm- viðri. Biðum Sigurjóns, en héldum svo til tjalda. Veður fór versnandi um kvöldið og gekk í slæman hríðarbyl um nóttina. Þriðjud. 3 til föstud. 6. april. Linnulaus N- bylur. Legið um kyrrt í S22 til laugardags. A Köldukvislarjökli h. 14. april 1951. Eftir átta dcegra samfellda stórhríð voru tjöldin hálfgrafin í harðfenni. Ljósm.: Á. Stefánsson. 12

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.